Spegillinn - 01.11.1970, Page 31

Spegillinn - 01.11.1970, Page 31
31 lax á eina SÁ sjaldgæfi atburöur gerðist11 í Laxá í Leirársveit sl. föstu- dag, að alls veiddist 31 lax á , eina stöng. Hinn frækni veiði- I maður var Rafn Hafnfjörð, offsetprentari, og veiddi hanni alla þessa laxa á flugu á efra svæðinu í ánni. Samanlagður þungi fengsiná var um 200 pUnd. Aðspurður kvaðst veiði- maðurinn ekki hafa verið til- takanlega þreyttur eftir af- rekið. Veiði í ánni hefur verið góð í sumar, og hefur hún ver ið mikið leigð útlendingum. 'aj.&i . scPr. '?o Spegillinn til sólarlanda Nýjung í ferðamálum. Spegillinn býður lesendum sínum upp á algjöra nýjung í ódýrum ferðum umhverfis hnöttinn. Farmiðaverði er stillt í hóf þannig að verð hvers miða œtti að vera í sam- rœmi við fjárhagslega getu opinberra starfsmanna, þ. e. kr. 2.350,00. Ferðazt verður með nýjustu tegund þvottabala. Gegn vœgu aukagjaldi verður vænt- anlegum farþegum séð fyrir árum. Hverju farartœki fylgir prímus og fœri, svo að farþegar geta komizt í snertingu við hið frumstœða og Ijúfa líf náttúrubarnsins og annast fœðuöflun á ódýran en fyrsta flokks hátt. Látið langþráðan draum yðar rœtast og bjóðið tengdamóður yðar í þessa bráð- skemmtilegu ferð okkar. Sunnuútsýn Spegilsins. 31

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.