Spegillinn - 01.12.1971, Page 13

Spegillinn - 01.12.1971, Page 13
(KlEP^uíZ kerfi fyrir veðrið í skrifstofu minni, tek ég við að útrýma öllum Anti-Möggum með mannúðlegum aðferðum. Ég eyði þessu helvítis aukarafmagni beint í hausinn á þeim, sem ekki hafa nægi- legt vit til að sýna mér tilhlýðilega virðingu og eru jafnframt á móti fleiri virkjunum. Ég sé þennan glæsta draum í anda, langar biðraðir brjálaðra Anti- Magga hlykkjast marga kílómetra út frá innganginum á stórum raflosta- spítala, sem verður að bíða eftir næstu virkjun, svo anna megi eftirspurninni, hagnaðurinn alveg geggjaður, því svona snarvitlaus þjóð hlýtur að þurfa ó- hemju raflostamagn sér til heilsubótar. Og ekki þarf að efa notkunarþörf ann- arra skoðanabræðraþjóða minna á slík- um tækjum og ofnotkum af þeim, heilir farmar af Tékkum og öðrum þrákálfum streyma til landsins, alger- lega óútreiknanlegar tekjur. Segi menn svo, að ég hafi ekki viðskiptavit. Ekki má heldur gleyma því, að heitu vatni hættir til að gufa upp. Þá set ég bara á laggirnar varahitaveitu, sem verður hituð upp með rafmagni. Ég er alltaf að sjá það betur og betur, að ég er al- gert sjení. Það mætti jafnvel halda, að ég væri múrari. Ég sé ekki betur en ég verði að láta kalla heim fleiri hagfræð- inga til að vinna úr öllum þessum hug- myndum mínum. Ég gæti látið kalla hann Halla Jó heim frá Kuala Lumpur. Hann hlýtur að hafa lokið við að koma öllu efnahagslífi þar fyrir kattarnef. Örn er ég búinn að fá í niðursuðuna

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.