Fréttablaðið - 21.09.2009, Síða 14

Fréttablaðið - 21.09.2009, Síða 14
14 21. september 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is Skáldsagan Hobbitinn kom fyrst út í Bretlandi á þessum degi árið 1937. Sagan er eftir rithöfundinn J.R.R. Tolki- en. Hún fjallar um leiðangur hobbitans Bilbó Bagga, þrettán dverga og galdrakarlsins Gand- alfs til að endurheimta fjarsjóð nokkurn úr höndum dreka að nafni Smeyginn. Hobbitinn var upphaflega hugsuð sem barnabók en náði brátt vinsældum meðal full- orðinna og gat af sér hina víðfrægu Hringa- dróttinssögu, sem kom út í þremur bindum á árunum 154 til 1955: Föruneyti Hringsins, Tveggja turna tal og Hilmir snýr aftur. Marg- ar af persónum Hobbitans koma við sögu í henni, þar á meðal Bilbó, Gandalf og kvikind- ið Gollrir. Von er á kvikmynd byggðri á Hobbitanum úr smiðju hinna sömu og færðu Hringadrótt- inssögu á hvíta tjaldið. ÞETTA GERÐIST: 21. SEPTEMBER 1937 Hobbitinn kemur út MERKISATBURÐIR 1919 Reykjanesviti skemmist allnokkuð í jarðskjálfta. 1936 Franska herskipið L’Aud- acieux kemur til Reykja- víkur og kafa menn á þess vegum niður að flaki Pourquoi-pas?, sem lá á níu metra dýpi við skerið Hnokka innst í Faxaflóa. Skipið var þá næsthrað- skreiðasta skip heims og gekk á 44 hnúta hraða. 1963 Eiríkur Kristófersson, fyrr- verandi skipherra á skip- um Landhelgisgæslunnar, er sæmdur æðstu orðu Breta, sem erlendir menn geta fengið, fyrir fram- göngu sína við björgun breskra sjómanna. 1964 Malta fær sjálfstæði frá Bretlandi. STEPHEN KING FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1947. „Hafirðu ekki tíma til að lesa, þá hefurðu hvorki tíma né tæki til að skrifa.“ Rithöfundurinn Stephen King þykir afkastamikill með eins- dæmum en hann hefur sent frá sér smásögur, skáldsög- ur, framhaldssögur, ritgerðir og kvikmyndahandrit. Meðal verka hans má nefna Carrie, The Green Mile, Misery og The Shining. „Þessi deild hefur leikið stórt hlutverk í mínu lífi, hún hefur nánast haldið mér gangandi,“ segir Edda Heiðrún Back- man, sem er í forsvari fyrir landsöfn- un fyrir endurhæfingardeildina Grens- ás. Hápunktur söfnunarinnar verður þriggja klukkustunda löng sjónvarps- útsending á RÚV þar sem margir af þekktustu skemmtikröftum landsins koma fram og landsmenn geta lagt sitt á vogarskálarnar. Hátt í fjögur þús- und manns nýta sér Grensásdeildina á hverju ári, flestir fara á dagdeildina og margir þurfa að dveljast þar langdvöl- um vegna erfiðra veikinda og bílslysa. Edda segir það nánast lífsnauðsyn- legt að stækka deildina. „Við verðum að losa fólkið upp úr ólöglegum kytrum og bæta allt aðgengi; það er ein lyfta í húsinu og sundlaugarlyftan er þrjá- tíu ára gömul. Svo er aðeins einn inn- gangur fyrir bæði sjúkrabíla og gesti þannig að það má ekki mikið fara úr- skeiðis,“ segir Edda, sem hefur fallega draumsýn um hvernig væri hægt að gera allt umhverfið í kringum Grensás- deildina mannúðlegra. „Draumsýnin er sú að fjölskyldur skjólstæðinganna fái líka sína aðstöðu, að umhverfið virki hvetjandi en ekki letjandi fyrir þá að koma í heimsókn. Að þarna verði sjálf- stætt rekið mötuneyti, bókasafn, íhug- unarherbergi eða kapella. Aðstand- endur eru nánast hornreka og fæstir sjúklingarnir eru á einstaklingsstof- um. Það er því mjög erfitt fyrir fólk að ræða viðkvæm mál eða eiga einlæga stund,“ segir hún. Edda segir að þrátt fyrir bága að- stöðu sé starfsfólkið á Grensásdeild- inni einstakt. „Þetta er starfsfólk sem er sennilega fremst meðal jafningja í heiminum en við verðum að hlúa betur að því. Aðstaðan fyrir starfsfólkið er þess eðlis að það endist ekki lengi í starfi og við megum alls ekki við því að missa þetta góða fólk. Þarna gerast kraftaverk á hverjum degi,“ segir Edda og bætir því við að það hljóti að vera allra hagur að fólk komist sem fyrst út í lífið á ný. „Grenás er deild sem hefur snert nánast alla landsmenn og við verðum að hafa hana í lagi.“ freyrgigja@frettabladid.is EDDA HEIÐRÚN BACKMAN: SAFNAR FYRIR GRENSÁS Þar sem kraftaverkin gerast SAFNAR FYRIR GRENSÁS Deildin leikur stórt hlutverk í lífi Eddu Heiðrúnar en hátt í fjögur þúsund manns fara í gegnum deildina á ári hverju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda faðir og afi, Jóhannes S. Sigvaldason pípulagningameistari Sóltúni 13, andaðist á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 10. september sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur vilja færa starfsfólki Droplaugarstaða þakkir fyrir einlæga umhyggju og mikla alúð. Kristbjörg Ólafsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Okkar ástkæra frænka, Birna Björnsdóttir til heimilis að Laugarnesvegi 40, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann 8. sept- ember sl. Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 21. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. F.h. aðstandenda, Sigríður Antoníusdóttir Jón Antoníusson Jóhann Antoníusson Erlingur Antoníusson Björn Benediktsson Haraldur Benediktsson Guðrún J. Michelsen Anna S. Björnsdóttir Jóhanna Björnsdóttir og fjölskyldur þeirra. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Haraldur Albert Guðlaugsson Hraunbæ 103, Reykjavík, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 12. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 24. september kl. 13.00. Unnur Lilja Hermannsdóttir Heba Gunnrún Haraldsdóttir Una Guðlaug Haraldsdóttir Örn Sigurðsson Haraldur Örn Arnarsson Friðjón Arnarsson Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda- móðir, amma og langamma, Guðrún Guðmundsdóttir Hrafnistu í Reykjavík, lést fimmtudaginn 17. september. Guðmundur I. Kristófersson Ósk Davíðsdóttir Guðríður Kristófersdóttir Hallgrímur Jónasson Sigurður Kristófersson Hjördís Árnadóttir Ingveldur Þ. Kristófersdóttir Helgi Már Guðjónsson Hannes Kristófersson Guðríður Ólafsdóttir Helgi Kristófersson Guðrún Eysteinsdóttir Valgerður Eygló Kristófersdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, og langafi, Bragi Jónsson flugvélstjóri, Strikinu 8, Garðabæ, andaðist á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut laugardaginn 12. september. Útförin verður gerð frá Garðakirkju miðvikudaginn 23. september kl. 13.00. Lilja Bragadóttir Sigþór Hákonarson Hartmann Bragason Örn Bragason Ásdís Bragadóttir barnabörn og barnabarnabörn. AFMÆLI LIAM GAL- LAGHER söngvari 37 ára. JÓN ARNÓR STEFÁNSSON körfubolta- maður er 27 ára.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.