Fréttablaðið - 21.09.2009, Page 29
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 15híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●
Til að hressa upp á lúið parket er
gott að slípa það upp og lakka en
þannig getur það orðið nánast eins
og nýtt. Þá er líka auðvelt að lýsa
það eða dekkja sé vilji til þess.
Eigi útkoman hins vegar að vera
til fyrir myndar er nauðsynlegt að
huga vel að undirbúningnum.
Í fyrstu þarf að fjarlægja allt
úr því herbergi sem á að slípa,
þar með talin blóm og glugga-
tjöld. Ef um er að ræða gömul
furugólf þarf að reka niður alla
nagla eða að draga þá upp. Í rifur
sem eru breiðari en tveir til þrír
millimetrar þarf að fella lista en
minni rifur þarf að fylla með tré-
fylli. Öðrum viðgerðum á parket-
inu þarf að ljúka áður en hafist er
handa við slípunina.
Ávallt þarf að slípa margar
umferðir með mismunandi gróf-
um sandpappír, grófum í fyrstu
en fínum síðast. Fjöldi umferða
fer eftir ástandi gólfsins og fyrri
meðhöndlun.
Best er að nota slípivél til verks-
ins en þær má meðal annars leigja
hjá Parka. Vélinni er ýtt áfram á
jöfnum hraða og dregin til baka
í sama farið aftur. Hún er síðan
færð til annarrar hvorrar hand-
ar sem nemur um tíu sentímetr-
um í einu. Sé gólfið óslétt þarf að
slípa í 45 gráðum en sé það slétt
eru allar umferðir farnar langs-
um eftir viðnum. Þegar gólfið
hefur verið þrifið er það tilbúið
til lökkunar.
Nánari upplýsingar um vélar til
verksins og sandpappírstegund-
ir er að finna á www.parki.is en
oftast er byrjað með sandpappír
númer 60 og endað í númer 100
eða 120. - ve
Parketið eins og nýtt
Nýslípað parket er nánast eins og nýtt.
Það færist í vöxt að fólk fái sér
myndavélar kringum heimili
sín í öryggisskyni. Flestir láta
þó hefðbundin heimavarnar-
kerfi nægja.
Öryggismyndavélar kringum hús
hafa verið að ryðja sér til rúms á
síðustu mánuðum í auknum mæli
og sumir hafa fengið sér vakt-
verði, að sögn Ómars Arnar Jóns-
sonar, markaðsstjóra hjá Öryggis-
miðstöðinni. Fyrir því finnur líka
Þorsteinn Gunnarsson, markaðs-
stjóri hjá Securitas. Báðir segja
þó langflesta láta hin hefðbundu
heimavarnarkerfi duga. Þau geta
skynjað hreyfingu, reyk, vatn, gas
og rafmagnsleysi, allt eftir því
hvað fólk velur og greiðir fyrir
visst mánaðargjald.
„Við komum með búnað, setj-
um hann upp, vöktum síðan kerfið
og sinnum útköllum ef með þarf,“
lýsir Ómar. „Kerfið gengur alla
daga ársins, allan sólarhringinn
og ef eitthvert boð berst frá því
bregðumst við við og sendum ör-
yggisvörð á staðinn. Hann kannar
hvað er í gangi og grípur til viðeig-
andi aðgerða.“
Búnaðurinn er einfaldur og
tengingar yfirleitt þráðlausar í ör-
yggiskerfum heimilanna. Mynda-
vélarnar eru öðruvísi dæmi og
mun kostnaðarsamara enda meira
að umfangi. - gun
Varna þjófum,
vatni og eldi
Kerfin skynja hreyfingu, reyk, vatn, gas
og rafmagnsleysi að sögn Ómars Arnar
Jónssonar, markaðsstjóra hjá Öryggis-
miðstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Öryggisbúnaðurinn bregst meðal annars við hreyfingu.
Við önnumst m.a.:
- múrviðgerðir
- þakviðgerðir
- málningarvinnu
- trésmíðavinnu
- pípulagnir
- raflagnir
- flísalagnir
Sími 567 6699
Sendu okkur email og við gerum þér tilboð - kristjan@vidhald.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
3