Fréttablaðið - 21.09.2009, Síða 37

Fréttablaðið - 21.09.2009, Síða 37
MÁNUDAGUR 21. september 2009 17 menning@frettabladid.is ATH kl. 12. Halldór Gíslason arkitekt heldur fyr- irlestur um uppbyggingu og stofnun Listaháskóla í Mapútó í Mósambík. Fyrirlesturinn fer fram á Kjarvals- stöðum. Halldór vann að stofnun hönnunardeildar LHÍ fyrir bráðum tíu árum, en hann hefur starfað að undanförnu í Mapútó við kennslu og þróun á menntun í hönnun ásamt Sóleyju Stefánsdóttur, grafískum hönnuði. > ekki missa af … Tónlistarmennirnir og hjóna- kornin Pawel og Agnieszka Panasiuk koma fram í Salnum í tónleikaröðinni TÍBRÁ, þriðju- daginn 22. september kl. 20. Þau flytja verk eftir Schnitt- ke, Chopin, Rachmaninoff, Schumann, Þorkel Sigurbjörns- son og Sigfús Halldórsson. Tilkynnt var í vikunni að þýski rithöfundurinn og gagnrýnandinn Hans Magnus Enzensberger fengi í ár Sonning-verðlaunin dönsku. Hans er á áttugasta ári. Sonning-verðlaunin eru mesti heiður sem veitt- ur er þeim mönnum sem hafa lagt fram lífsstarf sitt til að auðga evrópska menningu. Þau nema nú einni milljón danskra króna og voru sett á stofn af ritstjóranum C. J. Sonning. Meðal fyrri verð- launahafa eru Halldór Laxness, Niels Bohr, Ingmar Bergman, Günter Grass og Vaclav Havel. Er Hans Magnus þrítugasti og þriðji verðlaunahafinn. Hans tók á unga aldri að hafa skoðun á menn- ingu álfunnar. Hann tilheyrði Gruppe 47, hópi vinstrisinnaðra þýskra skálda sem kom fyrst saman árið 1947. Fyrstu ljóðabók sína gaf hann út 1957, en áhrif hans urðu hvað mest fyrir þátttöku hans í umræðu í stjórnmálum á örlagamiklum tímum í lífi Evrópu þegar hann ritstýrði frá 1965 til 1975 hinu áhrifamikla tímariti Kursbuch. Fyrr á þessu ári hlaut hann Griffin-ljóðaverðlaunin. Meðal verka hans eru ljóð, skáldsögur og barnabækur, heimildaverk og rannsóknartextar á mótum menningarfræða, sagn- fræði og heimspeki. Hann hefur frá 1985 ritstýrt röðinni Die Andere Werk. Meðal verka hans er Ach Europa! þar sem hann skoðar menningu nokkurra landa álfunnar og sérkenni sem hann segir að verði að njóta sín svo álfan eigi sér framtíð. Hans heiðraður HANS MAGNUS ENZENSBERGER Fær Sonning-verð- launin í ár. Norrænu barnabókaverðlaunin eru heiðursverðlaun sem samtök norrænna skólasafnakennara standa að. Þau hafa verið veitt frá árinu 1985. Verðlaunin eru 15.000 danskar krónur ásamt heiðursskjali og lista- verki. Þetta er í sjöunda sinn sem norskur höfundur hlýtur þessi verðlaun. Bókin Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnars- dóttur var framlag Íslands þetta árið. Íslenskir rit- höfundar sem hlotið hafa norrænu barnabókaverð- launin eru: Guðrún Helgadóttir, Kristín Steinsdóttir, Ragnheiður Gestsdóttir og Brynhildur Þórarinsdótt- ir. Höfundurinn, Stian Hole, er fæddur 1969 og og uppalinn í Hokksund í Noregi. Hann er hönnuður, myndskreytir og barnabókahöfundur og er handhafi margra verðlauna, bæði fyrir ritstörf og hönnunar- verk. Bókin Garmanns gate er önnur myndabókin um söguhetjuna Garmann. Garmanns gate fjallar meðal annars um kynni Garmanns og gamla mannsins sem kallaður er frímerkjamaðurinn og býr innst í Gar- mannsgötu. Stian Hole er einnig höfundur myndanna í bók- inni. Hann notar stafræna verkfærið Photoshop og hefur þróað mjög sérstakan eigin stíl við myndsköp- unina. Það er frekar lítill texti á hverri síðu en þær eru ríkulega skreyttar myndum. Textinn í Garmanns gate er að mestu línuleg raunsæisleg frásögn. Ekki er þó endilega samhengi milli mynda og texta og gefur það lesendum tækifæri til að beita eigin ímynd- unarafli og verða nokkurs konar meðhöfundar. Aðrar bækur eftir höfundinn eru Den gamle mann- en og hvalen sem út kom árið 2005 og Garmanns sommer frá árinu 2006. - pbb Norræn verðlaun barnabóka veitt BÓKMENNTIR Opnuskreyting eftir Stian Hole úr einni bók hans um Garman. Gunnar Þórðarson, söngvasmiður, tónskáld og gítarleikari með meiru, hefur á liðnu ári farið víða og troð- ið upp einn með gígju sína. Hefur hann hvarvetna reynst aufúsu- gestur og tekist á við eldri ópusa og kynnt aðra nýja. Nú er komið að Reykjavík en Gunnar heldur tónleika í Borgar- leikhúsinu ásamt úrvalshljómsveit og flytur öll sín þekktustu lög. Safn- ið er stórt: Gunnar hefur samið 650 lög, auk stærri tónsmíða. Stærsta hluta lagasafnsins hafa aðrir flutt, en hérna gefst einstakt tækifæri til að sjá höfundinn sjálfan flytja lögin. Áhorfendur mega búast við því að heyra nýjar útgáfur af mörg- um lögunum og sögurnar á bak við tilurð þeirra. Hér eru sem sagt í boði óraf- magnaðir ferilstónleikar með einum fremsta listamanni þjóð- arinnar í einum besta tónleika- sal landsins. Sérstakir gestir eru skemmtibandið Buff og trúbadúr- inn Svavar Knútur, en hljómsveit sem leikur með Gunnari er skipuð þeim Jóhanni Ásmundssyni á bassa, Kjartan Hákonarsyni sem leikur á flugelhorn/trompet og Þóri Úlfars- syni sem leikur á píanó og orgel. Miðasala er á tonlist.is en Bravó stendur fyrir tónleikunum, sem verða hinn 2. október. Gunnar spilar í Borgó TÓNLIST Gunnar Þórðarson, söngva- smiður og tónskáld. • Þægindin endast. Viðhalda raka augnanna og þægindin endast allan daginn. Minni hætta á þurrki í augum. • UV geislavörn: Hjálpa til við að vernda augun fyrir UV-A og UV-B útfjólubláum geislum. UV vörn fyrir augun* • Hentugleiki/Þægindi: Á hverjum degi er notað nýtt og ferskt linsupar, sem gerir linsunotkunina einfalda og þægilega. *UV verndandi augnlinsur koma ekki í staðinn fyrir sólgleraugu þar sem þær hylja ekki allt augnsvæðið. ACUVUE® og MOIST® er skrásett vörumerki Johnson & Johnson Vision Care, JJVC 2009. 1 • DAY ACUVUE® MOIST® Viðhalda raka augnanna og veita þægindi sem endast allan daginn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.