Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 4

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 4
RITNEFND STUDENTABLAÐSINS: LÁNÞEGAR!!! ATHUGIÐ. Viðtalstími fulltrúa SHÍ í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna er á fimmtudögum milli kl. 17 og 18. Snúið ykkur til þeirra ef um meiriháttar vandamál er að ræða. Smærri vandamál ætti starfsfólk skrifstofu SHÍ að geta leyst, s.s. aðstoð við útfyllingu umsókna. Frá félagi stúdenta í heimspekideild: Það er nú það. Fyrsta fundi ritnefndar Stúdentablaðsins var að ljúka réjt í þessu. Greinilegt var að margir vissu ekki hvað ritnefndin er eða til hvers. A.m.k. var mætingin slök, þrátt fyrir að búið væri að hafa samband við nær alla sem skipa áttu í nefndina. Sökum þess hve fáir fund- armenn voru kom fátt mark- vert fram á fundinum, en þó ýmsar ábendingar til ritsjóra um hvernig mætti haga efnis- öflun í blaðið. Ekki orð meira um það. Þann 19. ágúst lét hún Soff- ía Karlsdóttir af störfum sem starfsmaður á skrifstofu SHÍ. Var hún mörgum orðin að góðu kunn, enda búin að starfa á skrifstofunni síðan í janúar 1984. Við stúdentar þökkum henni fyrir gott starf og sam- veruna. Hún er þó ekki alveg fjlí ^ Það er hins vegar skorað á þau deildarfélög sem enn hafa ekki skipað fulltrúa í þessa ritnefnd að gera það hið snarasta. Þessari ritnefnd er m.a. ætlað að sjá um að ritstjóri hafi einhverja nasa- sjón af því sem er að gerast í deildunum. Og einhvern veg- inn verður hann að frétta það. Næsti fundur ritnefndar verður þriðjudaginn 29. okt- óberkl. 17:15. Sérstök athygli er vakin á því að fundurinn er öllum opinn og að kaffi verð- ur á boðstólum. horfin okkur því hún er ein af leikurunum í EKKÓ. Jafnframt bjóðum við vel- kominn til starfa nýjan starfskraft Björgu Kristjáns- dóttur en hún hóf störf á skrifstofunni 19. september. Skrifstofan hefur nú verið opnuð samkvæmt vetraráætl- un og er opin alla virka daga kl. 10-17. Það hefur farið fram hjá mörgum að þetta félag er til og því full ástæða til að kynna það lítillega. Hlutverk þess er fyrst og fremst að gæta sameiginlegra hagsmuna stúdenta í Heim- spekideild, svo og að efla tengsl og samstarf milli stúd- enta í hinum ýmsu greinum deildarinnar. Stjórn félagsins er skipuð tveim stúdentum sem jafn- framt eru fulltrúar stúdenta í deildarráði. í tengslum við félagið starfar Samstarfs- nefnd F.S.H. í henni eiga sæti deildarfundarfulltrúar stúdenta og einn fulltrúi stú- denta úr hverri námsnefnd innan deildar auk deildar- ráðsfulltrúa. Samstarfsnefnd kemur saman að minnsta kosti einu sinni á hverju misseri og ræðir málefni sem varða stúdenta, deildina og Háskólann. Félagið hvetur greinafélög til að hraða skipun náms- nefndafulltrúa þar eð náms- nefndir eru eini vettvangur- inn þar sem stúdentar hafa jafnan atkvæðisrétt og kenn- arar. Með meiri virkni náms- nefnda og samstarfsnefndar F.S.H. geta stúdentar haft meiri áhrif á starfssemi deild- arinnar. Stúdentum er bent á að snúa sér til námsnefndar- fulltrúa sinna eða beint til stjórnar F.S.H. (deildarráðs- fulltrúa) með öll þau mál sem varða hagsmuni stúdenta. Á þessu skólaári ’85-’86 skipa þær Svanhildur Óskars- dóttir (S: 25716) og Svala Þormóðsdóttir (S: 16428) stjórn F.S.H. 4 STUDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.