Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 5

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 5
FYRSTI FORMANNAFUNDURINN Með reglulcgu millibili í vetur vcrða haldnir fundir með stjórn SHÍ og formönn- um deilda- og greinafélaga. Fyrsti fundur vetrarins var haldinn þann 24. septcmbcr. Þar fluttu Guðmundur Jóhannsson formaður SHÍ, Ólafur Arnarson fulltrúi SHÍ í stjórn LÍN, EyjólfurSvcins- son háskólaráðsfulltrúi, Ársæll Harðarson fram- kvæmdastjóri FS og ritstjóri Stúdentablaðsins stuttar tölur þar sem þcir ræddu sína málaflokka og kynntu stöðu þeirra fyrir formönnunum. Margt af því hcfur þegar komið fram hér í Stúdenta- blaðinu. Félagslíf innan skólans var talsvert rætt svo og málcfni Félagsstofnunar. Helsta nýmælið varðandi félagslífiö var sú hugmynd sem stjórn SHÍ kom fram með að haldin yrði mikil íþróttahátíð innan skólans. Voru menn almennt sammála um að þar yröi að blanda saman kappi og lcttleika. Sennilega verðursá háttur hafður á að haldnar verða útsláttarkeppnir milli þeirra liða sem fram koma en sjálf úrslítin verði síðan á einni heljarmikilli íþróttahá- tíð. Aö öllum líkindum vcröur kcppt í fótbolta, handbolta og körfu.bolta. Stjórn SHLvinnur nú ötullega að undirbúningi þcssarar hátíðarog vonast er til að hún vcrði haldin á þcssu misscri. Faö hclsta scm kom fram hjá Ársæli var varöandi aðstöðu deildarfélaganna í luisi Félagsstofnunar. Uröu úm það nokkrar umræður manna á milli scm ekki voru á citt sáttir um stcfnu Félags- stofnunar í þcssu máli. Eru þau mál kynnt sérstaklcga hér í blaðinu. Einnig komu fram mót- mæli við pappírsgjaldinu scm gert var að greiöa í sumar. Haföi ío.rmaöur félags lækna- ncma forgöngu í því máli scm gerð eru sérstök skil annars staöar'í blaðinu. LÆKIWíEMAR Þau ánægjulegu tíðindi spurðust út nú í septembcr að allir læknanemar sem náðu fyrsta ársprófum í vor hafi komist áfram upp á annað árið. En eins og margir vita þá hafa verið og eru í gildi reglur sem takmarka fjölda nema á öðru ári í læknisfræði. Forsaga málsins er með þeim hætti að Stúdentablað- inu finnst rétt að rekja hana fyrir stúdentum. Auk þess sem hún sýnir vel hversu allar reglur um fjöldatakmarkanir eru fáránlegar. Síðasta vor náðu 43 lækna- nemar tilskildum árangri á prófum. Reglugerðin sem Há- skólaráð samþykkti síðasta vor hljóðaði upp á að aðeins kæmust 36 nemar upp á ann- að árið (sami fjöldi og verið hefur undanfarin ár). Það þýddi að 7 nemendur voru úti í kuldanum, þrátt fyrir að hafa skilað tilskildum árangri. Til viðbótar þessum 36 nem- um sem venjulega hafa verið á öðru ári hafa oftast verið 6 erlendir stúdentar. Þeir hafa hins vegar verið fyrir utan takmörkunarreglurnar á þeim forsendum að þeir færu yfirleitt til síns heima áður en komið væri að verklega þættinum í kennslunni, þ.e. þeim þætti hennar sem fram fer á sjúkrahúsum borgarinn- ar. I vor bar hins vegar svo við að einungis 1 erlendur stúd- ent náði tilskildum árangri. Þess vegna héldu sjömenn- ingarnir sem úti voru og nú væri tækifæri fyrir þá og sóttu um til deildarráðs að komast inn vegna þessa. Því hafnaði deildarráð alfarið. Það gerðist nælst að einn af þeim heppnu sem komist hafði upp hætti námi og einn af sjömenningunum einnig. Þá voru 6 eftir og af þeim átti einn að fara upp á annað ár. Reglurnar um það hverjir komast upp segja svo fyrir að þeir 36 nemar sem hæsta mcðalcinkunn hafi skuli kom- ast upp. Séu tveir eöa fleiri með sömu meðaleinkunn skal einkunn úr líffærafræði ráða. Það var cinmiltt það sem gerðist hér. Þrír af þessum 6 sem eftir voru höfðu sömu meðaleinkunn og því átti líf- færafræðin að ráöa. Voru læknanemar að von- um óhressir yfir þessu og skutu málinu til háskólaráðs. Eftir nokkurt stapp tókst aö fá það tekiö til afgreiðslu þar enda stóðu fyrir dyrum haustpróf hjá annars árs ncm- um í læknisfsræði. Og á síð- asta háskólaráðsfundi Guö- mundar fráfarandi rektors gerðist það að fallist var á rök læknanemanna og samþykkt var með 9 atkvæðum gegn 2 að hleypa öllum 6 inn á annað árið. í dag er því staðan sú að 41 læknanemi er á öðru ári. Þetta hlýtur að skoðast sem áfangasigur í baráttunni fyrir afnámi fjöldatakmarkana - sem flestir eru sammála um að séu með öllu óverjandi. Það er nauðsynlegt að stúd- entar haldi vöku sinni í þessu máli, svo virðist sem þessi leið fjöldatakmarkana cigi upp á pallborðið hjá fleiri og fleiri deildum. Gegn þeirri tilhneigingu ættu stúdentar að berjast með oddi og egg. AFSLÁTTARKORT AFSLÁTTAR- SKÍRTEINI Þeir sem enn eru ekki búnir að ná scr í bláa kortið og rauða spjaldið ættu að drífa sig hið allra snarasta inn á skrifstofu nemendaskráningar . og verða scr úti um þessi þarflegu kort. Allir ný- nemar eiga áð fá þau um ’íeið og þeir fá skólaskír- teinin sín. Hinir „gömlu” verða .að mæta á staðinn með göntlu skírtcinin, láta gata þau og fá kortið og spjaldið. Bláa kortið er ekki svo merkilegt í sjálfu sér. Þar er að finna upplýsingar um þau fyrirtæki sem veita háskólanemum afslátt á vöru sinni og þjónustu — og það getur munað um minna. Hins vegar þurfa menn ekkert að vcra að flagga þeim í búðum. Það dugir að sýna skólaskír- teini — með gildu gati. Rauða spjaldið er frá Þjóðleikhúsinu. Því er betra aö týna ekki, a.m.k. ætli menn sér að nýta þann 50% afslátt sem þar er boðiö uppá. En umfram allt; nýtiö þið ykkur þessa þjónustu og þennan afslátt, til þess er hann. Leiðrétting Stúdentablaðiö biðst afsök- unar á þeim leiðu mistökum sem uröu í síðasta blaði að föðurnafn rektors var misrit- að. Hann hcitir Sigmundur Guðbjarnason. STÚDENTABLAÐID

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.