Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Síða 8

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Síða 8
PAPPÍRSGJALDIÐ: Á fyrsta fundi formanna deidlarfélaga með stjórn SHÍ komu fram mótmæli vegna pappírsgjaldsins sem nem- endurn var gert að greiða til viðbótar við venjulegt innrit- unargjald nú í sumar. Á þess- um fundi var samþykkt eftir nokkrar umræður að fela fé- lagi læknanenta að semja bréf til háskólaráðs þar sem þessu gjaldi yrði mótmælt og þess jafnframt krafist að háskóla- ráð endurgreiddi deildarfé- lögum þessa peninga. Verður bréfið lagt fyrir næsta fund formannanna og munu þeir væntanlega allir skrifa undir það áður en það verður sent háskólaráði. En hver er forsaga þessa máls? Flestir munu sammála um að afgreiðsla þess hafi öll verið með hinu undarlegasta móti. Á fundi háskólaráðs þann 18. apríl var samþykkt að innritunargjöld skyldu verða kr. 1.800 skv. tillögu frá Stúdentaráði. Síðan gerist það að réktor Háskólans ákveður að lcggja þetta 500 kr, pappírsgjald ofan á þá upphæð. Var sú ákvörðun tekin án nokkurs samráðs við háskólaráð eða stúdentaráð, enda kom hún mönnum gjörsamlega í opna skjöldu. Strax og þetta fréttist sam- þykkti stjórn SHÍ að mót- mæla þessu gjaldi harðlega. Var sent bréf til háskólarekt- ors þar sem þessu var mót- mælt sem og vinnubrögðum við afgreiðslu málsins. Jafn- frantt var kannaður réttur rektors til slíkra ákvarðana og kom í Ijós að hann hafði fullan rétt til að ákveða þetta uppá sitt eindæmi — því miður. Á fundi stúdentaráðs þann 13. júní var sfðan samþykkt ályktun þar sém þessu var mótmælt og hún send yfir- stjórn Háskólans. En annað gerðist ekki og nemendur þurftu að gréiða þetta gjald hvað sem öllum mótmælum leið. Nú hefur málið sem sagt verið tekið upp að nýju og vonandi endurtekur þetta sig ekki á næsta ári. Félagstofnun og fleira skemmtilegt Eins og kynnt var hér f síðasta blaði eru ýmsar breyt- ingar orðnar á rekstri Félags- stofnunar stúdenta. Menn hafa eflaust tekið eftir breyttum matseðli matstof- unnar sem dregið hefur að sér fjölda manns — svo marga að helsta vandamál matsölunnar er hversu löng biðröðin getur orðið rétt eftir kl. 12. Nokkrar breytingar verða gerðar á innréttingum Stúd- entakjallarans. Borð ogstólar sem þar eru verða seld og ný húsgögn keypt í staðinn. Verður staðurinn eitthvað stúkaður niður eins og tíðk- aðist í „gamla daga“ og nýja kaffivélin er rétt ókomin. Sú nýbreytni hefur og verið upp tekin að tvisvar í viku, á þriðjudags- og laugardags- kvöldum verða tónlistaruppá- komur í Stúdentakjallaran- um. Og auðvitað hvetjum við alla til að kíkja ofaní „kjallar- ann“ sinn. Hann verður fram- vegisopnaður kl. 3ádaginn. Þá hefur stjórn F.S. ákveð- ið að leigja út sal Félagsstofn- unar í vetur á almennum markaði. Á með því móti að reyna að ná inn tekjum til að standa undir föstum kostnaði við húsnæðið. Þannig má gera ráð fyrir að oft verði mikið um að vera; dansleikir, hljómleikar og hver veit hvað. Þetta á þó ekki að koma í veg fyrir að ýmis félagasam- tök stúdenta geti nýtt sér salinn eins og þau hafa gert undanfarin ár. Eitthvað smá- vegis verða menn látnir borga fyrir afnotin (allt að 2.000 kr. hefur heyrst) en það fer bæði eftir því hvenær menn vilja fá salinn og til hverra nota hann er ætlaður. En allar upplýs- ingar um þetta mál fást að sjálfsögðu á skrifstofu F.S. Eru þeir sem áhuga hafa ein- dregið beðnir um að snúa sér til hennar sem fyrst. Varðandi fundaaðstöðu sem hin ýmsu félög höföu í hliðarsal Félagsstofnunar þá er það mál óleyst að hluta til ennþá. Minni fundi geta menn haldiö í fundaherbergi SHI á annarri hæð Félags- stofnunar (þó ekki stærri en 12 manna fundi). Ein leið til lausnar þar til einhver framtíðarlausn finnst er að fá að halda fundi á kaffistofunum. STÚDENTABUAÐID

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.