Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 19

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Qupperneq 19
ÁTTU BARN? — vantar Þig pening Jú það er málið. Það fylgir því kostnaður að eiga börn. Hvernig tekur Lánasjóðurinn tillit til barnafólks í námi? LÍN skiptir barnafólki í tvo flokka eins og venjan er um þennan undarlega lióp fólks sem á börn. Annars vegar eru það einstæð foreldri. Fram- færslukostnaður þess liækkar um 50% vegna fyrsta barns, um 30% vegna annars barns og um 20% vegna hvers barns umfram tvö. Þannig að sé námsmaður einstætt foreldri, búi í leiguhúsnæði, hafi tekjur innan þeirra marka sem LÍN reikriar honum í framfærslu í leyfi og eigi 3 börn (!) þá fær hann 1,0+0,5+0,3+0,2=2,0 eða tvöfalt lán. Það ber að athuga að meðlagsgreiðslur hafa áhrif á þessa útreikn- inga. Hins vegar eru það ekki- cinstæð foreldri, þ.e. gift og hálfgift fólk. Framfærslu- kostnaður „slíks" námsmanns hækkar um 20% vegna fyrsta barns og um 15% vegna hvers barns umfram það. Barneign hefur einnig áhrif á fram- færslukostnað maka. Sé hann einnig við lánshæft nám þá gildir þetta fyrir þau bæði, enda er hver námsmaður meðhöndlaður sem einstakl- ingur hjá sjóðnum. Sé maki ekki við lánshæft nám hækkar framfærslu- kostnaður hans um 10% vegna fyrsta barns og um 5% vegna hvers barns eftir það. Þannig að, svo dærni sé tekið, ef námsmaður er í sambúð og maki er heimavinnandi þar sem þau eiga 3 börn þá myndi viðkomandi námsmaður fá stuðulinn 1,0+0,2+0,15 +0,15+0,5+0,1 +0,05+0,05 = 2,2 eða örlítið meira en hinn einstæði námsmaður með þrjú börn. Enda er þá makinn á framfæri hans líka. Eitt í viðbót ætti barnafólk að athuga. Greiði námsmenn meðlög með börnum sínum geta þeir sótt um að fá nárns- lán fyrir þeim greiðslum. Um það þarf að sækja sérstaklega til sjóðsins og slík viðbótarlán eru greidd beint til réttra aðila. Og fái námsmenn greidd meðlög með börnum sínum kemur það til lækkunar á láni til þeirra þar sem meðlög eru meðhöndluð sem tekjur. STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.