Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 20

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 20
I I LUiSSTOI Xn STÚDEISTA Ti;iíL\ Á ItLIAIO Eítir Giiimar Porstcin Halldórsson í fyrsta Stúdcntablaöi þessa vetrar cr viðtaí við framkvæmdastjóra Félagsstofn- unar stúdenta, Ársæl Harðarson. Fær hann þar á einni opnu að prísa sjálfan sig og stofnun sína, og fjölyrða um nauðsyn þess að þeir sem nú ráða þessari stofnun megi stjórna henni sem lengst, og helst þannig að stúdentar sjálfir komi þar hvergi nærri. Ekki ncnni ég að ræða allar hinar einkennilegu athugasemdir fram- kvæmdastjórans. Fað eitt fær mig til að skrifa, í reiði minni og hneykslan, sem ekki kom fram í viðtalinu. Ársæll lofsyngur óspart verk sín og stjórnar sinnar, rekstur F.S., rétt eins og allt sé þar í stakasta lagi. En það hvarflar hvorki að spyrli né viðmælanda aö minn- ast svo sem einu orði á versta mál sem upp hefur komið um langa hríð varðandi þessa stofnun og er deilur okkar íbúa hjónagaröa og stjórnar F.S. frá í sumar. Pað mál þótti ekki ómerkilegra en svo að dagblöðin slógu því upp á forsíðu. Hjá blöðunum reyndist umræðan þó fremur ætluð til að gagnast fjárhag þeirr en lesendum. svo almenningur fékk ranga mynd af málum en stúdentar allir biðu hnekki af. Pví hefði mátt ætla að Stúd- entablaðið gerði grein fyrir deilunum eða að Ársæll sjálfur sýndi stúdentum þá kurteisi að tjá sig um þær, fyrst hann fékk tækifæri til. Það þóknaðist honum ekki, sem kannski er engin furða því sagan er ljót. En það er best ég segi han;(, og hnýti við í leiðinni nokkrum athugasemdum varðandi stofnun þá sem á að heita félagsstofnun okkar stúdenta. Hjónagarðsdeilan Aðurnefndar deilur hófust þegar stjórn F.S. tilkynnti íbúum Hjónagarða fyrir- varalausa hækkun leigunnar úr 4.400 kr. í 5.200 kr. Þótti okkur nóg komið af hækkunum, brugðumst því ókvæða við og neituðum að borga nema hinir háu herrar hittu okkur fyrst og ræddu málin. Pví var ekki sinnt, heldur sendu þeir hverjum íbúa skeyti og fleiri en eitt í sömu andrá. Þau voru á kostnað hinnar fátæku stofnunar, en skilaboðin voru í mörgum orðum þessi: „Borgiðeðahypjið ykkur út“. Nú er rétt að taka fram að upphæð sú sem við borgum fyrir okkar 36 fermetra holur, ýmist dimmar, kaldar eða lekar, er ekki aðeins þessi. Að auki borgum við um 1500 kr. fyrir rafmagn og hita á mánuð, fyrir eigin rafmagnstæki borgum við 250 kr. til viðbótar fyrir hvert tæki, og enn bætist við þvottavélakostnaður, því hann er ekki reiknaður með rafmagninu, 500-800 kr. á mánuði. Samtals borgar því hver fjölskylda upp undir 8000 kr. á mánuði fyrir vistina. Pað kann svo sem að þykja lítið sé miðað við almennan leigumarkað. Okkur finnst þetta hins vegar hátt verð fyrir litlar íbúðir, reknar á félagslegum grundvelli. Menn skulu athuga að hér er um aö ræða hús stúdenta fyrir stúdenta, og einmitt fyrir þá stúd- enta sem eru verst settir, húsnæðislausir. Það er nefnilega valið úr umsækjendum íbúða og þeir komast inn scm stjórn F.S. tclur helst þurfa á íbúð að halda. Pess vegna búa hér námsmenn með eitt og allt upp í 4 börn á framfæri sínu, cinstæðar mæður og fólk utan af landi sem ekki á þess nokkurn kost að búa í foreldrahús- um meðan á námi stendur. Eru stúdentar ölmusufólk? Stjórn F.S. þekkir vel aðstæður íbúa hússins. En hún kýs að horfa fram hjá þeim og hefur það citt að markmiði að reka hjónagarða á núlli, að eigin sögn. Sú krafa er þó ekki orsök deilnanna, því íbúðar hjónagarða taka fullt tillit til henn- ar. Innifalið í leigunni, þessum 5.200 krónum, er nefnilega allur rekstur hússins og viðhald; íbúar borga allar framkvæmd- ir og sjá um þrif og annað slíkt sjálfir. Utgjöld F.S. eru engin. Það sem okkur gremst er aftur á móti þetta: Mánuð hvern greiðir hver fjölskylda 1.400 kr. í afborganir af lánum sem á húsinu livíla. Við erum með öðrum orðum að borga upp það hús sem F.S. ætlar að eiga. Þetta er sama andstyggilega aðferðin og tíðkast nú á verstu tímum við íbúðakaup: Maður hefur aðstöðu til að búa frítt og á fyrir útborgun í íbúð, hann notfærir sér eymd lítilmagnans og leigir honum íbúðina fyrir okurprís og notar aurinn í afborganir. Að nokkrum tíma liðnum á maðurinn íbúð- ina, hann rekur lítilmagnann út og sá byrjar að nýju að borga upp annars manns hús. Um þetta snýst deilan fyrst og fremst. En þetta þykir Ársæli Harðarsyni eðli- legt. Svo og Vöku-mönnum og Umbóta- sinnum, fulltrúm stúdenta í stjórn F.S. Þessum mönnum finnst eðlilegt að þeir sem helst þurfa á húsi stúdenta að halda borgi það sjálfir, en án þess þó að eignast hlut í því. Frjálshyggjusjónarmiðið er alls ráðandi: „Sjáið um ykkur sjálf aum- ingjar; okkar krónur fáið þið ekki.“ A4eð tilliti til eðlis og hlutverks Félags- stofnunar er hins vegar eðlilegt að húsið sé borgað úr sameiginlegum sjóði stúd- Stúdentakjallarinn — myndin er tekin þegar enta, af stofnuninni sem kemur til með að eiga það og nota fyrir þá félaga sína sem helst þurfa með hverju sinni. Á sama hátt er eðlilegt að rekin sé matsala fyrir þá félaga sem ekki hafa aðstöðu til eldamennsku, þótt sú matsala veröi ekki rekin með hagnaði. Stúdentar eiga m.ö.o. kröfu á að Félagsstofnun sé liags- munafyrirtæki stúdenta en ekki gróðafyr- irtæki eða eldisstöð framkvæmdastjóra og framagosa. En það er fleira sem ergir okkur hjónagarðsbúa. Enn má nefna tölu sem er innifalin í leigunni og er kölluð gjald fyrir skrifstofurekstur, eða eitthvað í þá veru. Það sama borgum við með innritun- argjaldi Háskólans, en eins og mönnum er kannski kunnugt rennurum helmingur þess til F.S. íbúarhjónagarða — einstæðu mæðurnar þar á meðal — greiða því tvisvar fyrir sama hlutinn. Þá má nefna styrki sem Ríkissjóður borgar ár hvert til F.S., þ.á.m. til hjóna- 20 STÚDENTABI.AÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.