Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 21

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 21
garða. Þeir koma aldrei nálægt reikningum hússins, og er því líklegast notuð til að punta ferðaskrifstofuna eða til að klæða stúdentakjallarann marmara. Félagsstofnun er ekki gróðafyrirtæki En látum nú vera þó þeir hirði tvisvar af okkur greiðslu fyrir eina og sömu þjónustu. Látum vera þó þeir hirði 1.400 kr. milljón sem með réttu er okkar. 1.400 kr. fyrir afborganir af lánum hússins er hins vegar engan veginn hægt að sætta sig við. P WÍ. HRrn. yar að kynna starfsemi F.S. fyrir nýnemum. Pví þar er ekki aðeins um peninga að ræða, heldur grundvallarsjónarmið fé- lagsstofnunar: Á F.S. að vera félagslega rekið fyrirtæki eða fyrirtæki óháð stúd- entum sjálfum þar sem öll þjónusta er seld fullu verði; stúdentar hugsi svo hver um sitt skinn? Sé síðari kosturinn valinn, eins og stefnan er nú, hvers vegna er þá fyrirtækið á ríkisstyrkjum og til hvers borga þá nemendur Háskólans árlega háa upphæð í sameiginlegan sjóð fyrir- tækisins? Sama spurning vaknar í sambandi við annan rekstur F.S. Tökum sem dænti bóksöluna, en hún er öllum námsmönn- um jafn mikilvæg sé hún rekin með hagsmuni stúdenta fyrir brjósti, eins og ætla inætti fyrst fyrirtækið á að heita þeirra. f>ar ættu sem sé að fást bækur og gögn á lægra verði en gengur hjá einkafyr- irtækjum úti í bæ. Raunin er aftur sú að Bóksala stúdenta er cngu ódýrari en aðrar bókaverslanir, nemasíðursé. Stútí- entar hagnast því ekkert á að versla í eigin búð. Þá má nefna ferðaskrifstofuna sem þeir hjá F.S. státa sig gjarnan af og sem nú hefur verið stækkuð og prýdd. Skyldi hún vera góöur kostur námsmönnum á ferðalagi? Nei, það er af og frá. Hún býður kannski heppilegar heimsreisur og Síberíutúra ódýra miðað við lengd, þ.e. ferðir sem venjulegir námsmenn hafa hvort eð er ekki efni á. Ætli hins vegar 50 manna hópur nemenda Háskólans að bregða sér stutta ferð til Amsterdam að flytja íslenska kórtónlist, þá hefur ferða- skrifstofan ekki betri kost en svo að hópurinn leitar út í bæ til viðskipta. Samt tíðkast um allan heim margs konar náms- mannaafsláttur, svo ferðaskrifstofa í eigu stúdenta ætti öðrum ferðaskrifstofum frentur að geta krækt í hagstæða samn- inga. Stúdentum úhýst Hverjar skyldu svo vera síðustu að- gerðir stjórnar F.S. varðandi þessa ferða- skrifstofu; sem er stúdentum gagnslaus, Jú, með miklum tilfæringum og peninga- sóun fluttu þeir hana inní upppuntað funda- herbergi stúdenta, sem um leið máttu hypja sig annað. Og þá er komið að einum þætti í hinni nýju stefnu fram- kvæmdastjórans, sem er sá að hirða af stúdentum félagsheimili þeirra. Nú fá ekki félög stúdenta framar að nota sam- komusalinn í byggingu þeirra við Hring- braut nema þau borgi fyrir. Þá hefur stjórnin rekið Stúdenta- leikhúsið út, svo hún geti leigt salinn utanaðkomandi aðilum en leikhúsið fær náðarsamlegast að halda þar sýningar, svo fremi ákveðið sé með miklum fyrir- vara hvenær þær skuli haldnar. Þetta finnst Ársæli Harðarsyni ákaflega sniðugt og gengur svo langt að státa sig af, í umræddu viðtali. Og spyrillinn hlustar þegjandi á þessa undarlegu athugasemd: „Stúdentaleikhúsið sýndi það í sumar aé það er hægt að æfa leikrit annarsstaðar en sýna hérna í F.S." En í sama blaði á santi spyrill viðtal við framkvæmdastjóra, Stúdentaleikhússins. Þar kemur í ljós að leikararnir eru á þvælingi urn allan bæ, sem auðvitað hefur í för með sér erfiðleika og aukin útgjöld, og var hagurinn slæmur fyrir. Þessi eru laun fólksins sem með ómældri sjálfboða- vinnu hefur aukið hróður stúdenta og eflt tengsl þeirra við almenning, en flestir eru sammála um að ekki veiti af. Einkarekstur á kostnað ríkisins og stúdenta Þannig cr stjórnviskan og læt ég nú upptalningu lokið. Ársæll Hararson. Þegarþiðfélagarhafið að fullu náð stofnuninni af stúdentum og rústað öllum félagslegum einkennum hennar; þegar þú þykist hafa skólast nóg í framkvæmdastjórn og tclur þig geta stjórnað fyrirtæki svo sem frjálshyggju- manni særnir, þá standa þér trúlega allar dyr einkafyrirtækja opnar. Þá muntu komast að því, að það er engin skraut- fjöður að reka með gróða fyrirtæki sem auk þess að njóta ríkisstyrkja, fær árlega miklar greiðslur frá eigendum sínum. Það er hins vegar Ijótt að taka við slíkum greiðslum en selja samt greiðendunt alla þjónustu fullu verði. Enn verra er hitt, að taka við félagsgjöldum íbúa hjónagarða og græða svo á þeim með því að láta þá borga skuldir sem sannarlega eru ykkar. Og allt þetta peningaplokk án þess að nokkur hagnaður sjáist, hvorki í pening- um né aukinni eða bættri þjónustu fyrir stúdenta. Nei, haldist þú einhvern tíma innan dyra hjá einkafyrirtæki verðurþað ckki vegna hæfileika þinn að halda vcl á spöðunum, heldur vegna svívirði- lcgra vinnubragða þinna. En slíkt hefur víst alltaf þótt nokkuð fínt. Það skal tekið fram að allar upplýsingar og skodanir scni seltar cru fram í grein þessari eru alfarið á ábyrgð höfundar hennar. Stúdentablaðið Aðui SOLSALOON LAUGAVEGI99 Símar22580 og 24610 Bamavideo og ekta ffufubad Aukaleffa: Slendertone ffrenmnffar- og vödvaþjálfunartœki Frábært vid staöbundinni fitu og vöövabólffu Háyœda sólbekkir M.A. professional U. W.FJ. studio-linc Verðið brún á aðeins 5 tímum t speyla perum (Quick Tan) Uollasta ott áhrifarikasta prran á markatm- um 10 tímar t Belarium-S o<j Gold sunnperum VERID VELKOMIN STÚDENTABLAÐIÐ 21

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.