Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 28

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 28
EKKó EKKó EKKó „Stúdentaleikhúsið virðist œtla að vera eina apparatið sem mœtir ári œskunnar eins og á að gera. “ Með þeim orðum lauk Páll Valsson leikdómi sínum um EKKÓ í síðasta tölublaði Stúdentablaðsins. Undir þau orð vil ég taka. Þessi leikför stúdentaleikhússins er hið merkilegasta framtak. En nóg um það. Það var fádœma hress hópur sem kom í bœinn þann 24. september eftir mikla reisu. Stúdentablaðið notaði fyrsta tœkifæri sem gafst og tók tvo úr hópnum tali. Það voru þau Ágúst Karlsson sem er á öðru ári í sálfræði og Asta Arnardóttir sem er að hefja nám í bókmenntafræði. Pað var ekki við Hringdnir au annað að allir sem voru < salnum feng)u að vera með á myndinm. ðkennaÁstuog Fyrsta spurningin var auðvitað sú hvort þau væru ekki þreytt eftir ferð- ina? „Nei, nei, það er enginn þreyttur,“ sögðu þau einum rómi. „Maður kemur endurnærður úr svona ferð,“ bætti Ágúst við. En hvað gera þau í sýningunni? Ágúst: „Eg spila á gítar í hljómsveit- inni. Það er hún sem heldur fjörinu uppi.“ Ásta: „Það eru nú allir sem halda fjörinu upp“ —„já auðvitað“ grípur Ágúst fram í „þetta byggist allt á samvinnu. Hún Ásta leikur Afró.“ „Afró er ein úr klíkunni,“ bætir Ásta við. Hvað gerðuð þið svo á þessum fjórum vikum? Ásta: „Þetta voru 22 sýningar á 21 stað. Við þurftum að gera bókstaflega allt. Dagurinn gekk þannig fyrir sig að við vöknuðum snemma“ „það fór nú eftir því hversu langt var í næsta áfangastað“ greip Ágúst fram í og Ásta hélt áfram: „já, eftir morgunmat var lagt af stað, ekið þangað sem leiðin lá og þar var byrjað á því að snæða heitan mat, annað hvort í mötuneytum frysti- húsanna eða á einhverju hótelinu.“ Ágúst: „Síðan þurfti að koma öllu dótinu fyrir, láta leikmyndina passa inn í sviðið, koma fyrir ljósum, gera hljóðprufanir o.s.frv. Það fóru stund- um 6 klukkutímar í það allt.“ Ásta: „Við byrjuðum fljótlega á því að fara um staðina og auglýsa okkur upp. Fórum í frystihúsin, kaupfélögin og tókum þar eitt lag úr leikritinu.“ „Ágúst: „Já, það held ég hafi skilað sér vel.“ Já vel á minnst. Hvað með aðsókn- ina? Þau líta hvort á annað áður en þau byrja bœði að svara. Og raunar verður ill mögulegt að halda þvísundurgreindu sem þau segja eftirþað. .S’vo við skulum bara hafa þetta allt sameiginlegt — það virðist líka vera vel við hœfi. „Aðsóknin var misjöfn. Það var svolítið pínlegt í Stykkishólmi en æðis- legt á Þórshöfn, eða Borgarfirði eystra; þar komu 70 manns í 150 manna þorpi!“ Hvað var þetta eiginlega stór hópur sent var á ferðinni og hvernig gengu samskiptin? „Þetta var ótrúlega samstæður hópur. Enda var æðislega gaman. í genginu voru 21 + Andrés leikstjóri sem stundum var með og stundum ekki og svo voru tveir bílstjórar. Aðbúnaðurinn var allavega. Allar næturnar nema þá fyrstu og síðustu sváfum við á gólfinu — í samkomuhús- um eða íþróttahúsum. Mönnum leið misvel enda með misþykkar dýnur. En það gekk allt vel. Á kvöldin eftir sýningar gengum við alltaf frá öllu í bílana. Eftir það áttum við frí og dótuðum þá oft saman, fórum í samkvæmisleiki og fleira. Tvisvar sinnum fórum við á ball, einu sinni á sveitaball og svo á busaball á Egilsstöð- um. Þegar við vorum á Akureyri — við stoppuðum þar í fimm daga — fórum við öll saman út í Hrísey og fengum hina einu sönnu holdanautasteik." Nú voruð þið heilar fjórar vikur í ferðinni og gátuð náttúrulega ekkert 28 STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.