Stúdentablaðið - 01.10.1985, Page 30
FUNDUR í F.S. 24. OKT.
„ÍLEITAÐLÍFSSTEFNU“
- GETUM VIÐ TREYST BIBLÍUNNI
í ÞEIRRILEIT?
hinu fjölbreytta nútímaþjóðfélagi? Er
þess virði að stofna fjölskyldu og fæða
nýja einstaklinga inn í þennan heim? Á
hvaða tind skal stefnt? Og þegar næsta
tindi er náð, hvert stefni ég þá annað
en í gröfina?
Þegar þannig er spurt er spurt um
lífsstefnu, spurt um þann farveg sem líf
okkar rennur um. Hver er sá farvegur?
Hvert leiðir hann?
Fimmtudaginn 24. október kl. 20:30
ræðir prófessor Þórir Kr. Þórðarson
um ofanskráð efni í félagsstofnun stúd-
enta.
í upphafi fundarins verður flutt stutt
tónverk en að því loknu mun prófessor
Þórir leiða okkur í ýmsa þanka um
„lífið og tilveruna" og hina fornu bók,
Bibliuna. Gott tækifæri mun síðan gef-
ast til að ræða efni kvöldsins og atriði
er hann ræddi um í SALT-blaðinu.
Að spá í „lífið og tilveruna“ er
hverjum íslenskum stúdent í blóð
borið. Hann telur sig hafa slitið barns-
skónum og vera kominn af mesta
gelgjuskeiðinu. Framundan eru ýmsar
erfiðar og afdrifaríkar ákvarðanir sem
hinn fulltíða einstaklingur kemst ekki
undan að takast á við. Hvað ætla ég að
verða, nú þegar ég er orðin(n) svona
stór? Hvernig get ég best fótað mig í
Fundurinn í Félagsstofnun stúdenta
hefur þessar spurningar allar í huga en
einnig þá spurningu hvort Biblíunni sé
hægt að treysta með einhverjum hætti
við úrvinnslu þessara spurninga.
Fundurinn er öllum opinn.
DAGSKRA KSF:
Dagrkrá KSF (fundir eru að Freyju-
götu 27 3. hæð, nema annað sé tekið
fram)
24. okt.
Fundur í Félagsstofnun stúdenta (sjá
nánar á þessari síðu)
1. nóv.
Nehemí 1:1 — 6:16
Hópur sér um fundinn
8.-10. nóv.
Söluferð með bækur SALTS
15. nóv.
Bænin
Margrét Hróbjartsdsóttir talar
22. nóv.
Kýli þjóðfélagsins
Tekið sameiginlega á málinu
30
STÚDENTABLAÐIÐ