Fálkinn - 08.03.1930, Blaðsíða 4
4
F Á L K I N N
Snjóbíllinn
í síðasta mámiði kom hinf/að til
lands nýjasta gerð af snjóbíl Citro-
ens, sem rússneski verkfræðingur-
inn Iíegresse smíðaði fyrir nálægt
tíu árum og síðan hafa verið gerðar
endurbætur á. Farartæki jietta er
einskonar samblaiid af bifreið og
tönkunum, sem notaðir voru í stríð-
inu, vagninn sjálfur smíðaður sem
bifreið að öðru leyti en Jwí, að í
stað afturhjóla eru aluminiumvarin
togleðursbönd, sem ganga á mörg-
um völtum. Dreifist Jiví þyngdin á
stórt svæði og valtararnir sjálfir
fá jafnan gott átak því þeir snúast
innan í togleðursböndunum. Sje bíll-
inn notaður í snjó eru skíði höfð á
framhjólunum og ganga hjólin um 10
cm. niður úr skiðunum, svo að þau
nema ekki við jörð nema mjúkt sje
undir. Vagninn er þyngri en venju-
legar bifreiðar, eða nær tvær smá-
lestir, en vegna þess að þunginn
dreifist á svo stóran flöt sekkur bif-
reiðin ótrúlega litið í lausum snjó.
Vjelin er um 40 hestöfl og með þvf
að fara hœgt getur bifreiðin farið
snarbrattar brekkur og yfir ótrúleg-
ustu torfœrur. Bifreiðin ber átta
farþega og dálitinn flutning og er
þannig hagað, að skifta má rúminu
milli flutnings og farþega..
Hinn 26. f. m. var blaðamönnum
boðið upp á Kolviðarhól til að skoða
bifreiðina, en þar verður hún höfð
til ferðalaga, þegar öðrum bifreið-
um er ófært. Voru í ferðinni for-
sœtisráðherra, vegamálastjóri og
samgöngumálanefndarmenn beggja
deilda Alþingis, auk blaðamanna.
Voru farnar þrjár fcrðir með bif-
reiðinni en lengst þeirra og merk-
ust var sú, sem farin var kringum
Reykjafjöll. Var farinn þjóðvegurinn
austur, upp í Hveradali og bifreið-
inni hleypt þar á snarbratta brekku
og þótti sœta undrum hve vel henni
vanst upp brekkuna. Síðar var hald-
ið austur undir Smiðjulaut en beygt
þar út af veginum til vinstri og yfir
vegleysurnar norður á Grafningsveg-
inn gamla og niður Hellisskarð að
Kolviðarhóli. Mun þeirn sem þekkja
Hellisskarð þylcja ótrúlegt, að þar
gæti bifreið farið upp eða niður.
Jörð var alstaðar undir snjó á leið-
inni og sumstaðar svo mikill snjór
og laus, að gangandi menn sukku
upp í mjöðm, en þar skreið bifreið-
in Ijettilega yfir og sölck aðeins 15—
20 cm. Sumstaðar voru snarbrött
höft á leiðinni, en bifreiðin mjakað-
ist yfir þau, með fullu vjelarafli en
aðeins 2—3 kilómetra hraða. Þar
sem greiðfært var fór hún með um
30 km. ferð en mun geta farið með
40 km. hraða mest.
Þessi tilraun, sem hjer hefir verið
gerð, er einkar eftirtektarverð. Er
það varla of mikil bjartsýni að full-
yrða, að hún geti haldið uppi ferð-
um yfir Hellisheiði, jafnvel þó snjór
sje svo mikill, að illfært eða ófært
sje með liesta yfir heiðina. Og hið
sama gildir vitanlega um fjölmarga
aöra fjallvegi á landi hjer og snjóa-
hjeruð. Vitanlega verður svona tæki
miklum mun dýrari í rekstri en
venjulegar bifreiðar, en um hitt er
mest vert, að það tæki sje til, sem
getur boðið snjónum byrginn. En
þess má geta, að það er alls ekki
einkaviðfangsefni þessarar bifreiða
að glíma við snjóinn. Ein af fyrstu
bifreiðum þessarar gerðar var fyrsta
vjelknúða farartœkið, sem komst
yfir eyðimörkina Sahara. Og full-
yrða má, að beltabifreiðarnar geti
mjög viða komið að notum lijer á
landi, þar sem vegir eru ekki svo
fullkomnir, að færir sjeu venjuleg-
um bifreiðum. Þœr komast yfir þýfi
og þær fara yfir mýrarfen, sem ill-
fær eru hestum. Væntanlega verður
hið mesta gagn að þessu samgöngu-
tæki hjer á landi.
Hjer birtast nokkrar myndir af
fcrðalagi snjóbilsins. Vegna þess að
mjög dimt var í lofti og stundum
snjókoma, er þær voru teknar eru
þœr ekki vel skýrar, en gefa þó lxug-
mynd um, hvernig þetta merlcilega
farartæki lítur út. — Á einni mynd-
inni sjest í baksýn nýji bærinn á
Kolviðarhóli, sem fullger var fyrir
skömmu.
Hálfníræður verður í næstu
viku maður, sem að minsta
kosti flestir eldri Reykvíldngar
þekkja: Bjarni Mattliíasson
hringjari Dámkirkjunnar. Hann
er fæddur l'i. mars 181/5, son-
ur hjónanna Matthíasar J. Matt-
híasen kaupmanns og Guðrún-
ar SteindársdótturWaage. Hing-
að til Reykjavílmr fluttist hann
ellefu ára gamall árið 1856 og
hefir verið heimilisfastur hjer
síðan, eða í 7h ár. En hringjara-
störfum hefir lmnn gegnt sam-
fleytt í rúm 39 ár, og nmnu því
fáir núlifandi Reykvíkingar eða
líklega enginn liafa komið jafn-
ofl í kirkju og hann. Og enginn
íslendingur mun hafa hringt
eins marga menn tit moldar og
hann. Bjarni er hið mesta prúð-
menni í framgöngu og nýtur á-
slciftra vinsælda þeirra, sem
hann þekkja. Munu margir
senda honum hlýjar óskir á af-
mæli hans.
Franski myndhöggvarinn Fayard
hefir nýlega gert einkennilegt veð-
inál við læknadeild háskólans í París.
Hann segist geta lifað 200 ár, mcð því
að fara eftir sjerstökum reglum, sem
hann liefir reynt á sjálfum sjer. Peir
læknarnir vildu ekki trúa þessu og
svo varð veðmál úr. Ef P'ayvard verð-
ur ekki 200 ára renna allar eigur
lians læknadeildarinnar. En verði
hann 200 ára skuldbindur lækna-
deildin sig til að þrefalda eigur hans.
F’ayard er talsvert kunnur fyrir regl-
ur, sem hann hefir fundið um, hvern-
ig menn eigi að anda. Og nú er hann
vitanlega á hvers manns vörum fyr-
ir veðmálið og allir vilja eignast
höggmyndir eftir hann.
-—■—x----
Dr. Dey heitir formaður alþjóða-
hihlíurannsóknafjelagsins, hann segir
i:ð dómsdagur verði árið 2914, en ekki
nefnir hann þó mánaðardaginn. Hefir
hann verið að halda fyrirlestra uin
jietta í Stockholmi. Eftir dómsdag
byrjar Paradísarlíf hjer á jörðu, segir
hann, — þá fæðast engin hörn framar,
kynferðismunur hverfur á jörðinni en
ollir lifa saman eins og englar. Hjóna-
bönd verða vitanlega elcki til. Dr. Dey
hefir ennfremur lesið út úr biblíunni,
að bráðlega muni koma nýtt stríð,
liið síðasta i sögu mannkynsins. —
Ja, mikið vita þeir!
----x----
Kvikmyndaleikkonan Mabel Nor-
mand, sem hefir verið veik nokk-
ur ár, liggur fyrir dauðanum í Pasa-
dena í Kaliforniu.