Fálkinn - 08.03.1930, Blaðsíða 8
8
i,
FÁLK.INN
Margar sögur hafa gengið um Sing-Singfangelsið í Neu> York, bæði illar og góðar. Sumir telja, að þella fangelsi luifi gengið
flestum öðrum framar, að því er snertir ómannúðlega meðferð á föngunum, en á hinn bóginn er sagt, að fangelsið hafi
á síðustu árum verið endurbætt svo að nú standi það framar flestum fangelsum i heimi, að því er snertir ■■ tilraunir til
þess að gera fangana að betri mönnum. Hjer birtast nokkrar myndir úr þessu annálaða fangelsi. 1) Fangaklefi, sem virð-
ist ekki standa að baki herbergi á sæmilegu gistihúsi. Þar er meðal annars útvarpstæki, svo fanginn getur skemt sjer við
að hlusta á þær skemtanir, sem útvarpið hefir að bjóða. 2) Rafmagnsstjóllinn, sem allir nefna með hryllingi. 3) Nokkur
hluti byggingarinnar. h) Bókasafnið; þaðan fá fangarnir lánaðar ýmsar bækur. 5) Móttökustofun, þar sem föngunum er
leyft að tala við ættingja sína, undir eftirliti umsjónarmanna.
Þetta risavaxna hús, er hjer
sjest á myndinni til vinstri er
nýlega fullgert í Berlín. Er það
lcvikmyndahús og tekur 2300 á-
horfendur.
Þessi myml er af Maríu drotn-
ingu í Jugóslaviu, sem nýlega er
orðin þrítug, og syni henar.
í borginn Boulogne í Norður-
Frakklandi vdr nýlega svo mik-
ið skriðuhrun í nágrenni við
borgina, að henni þólti hætta
búin. Eru þar leirlóg í hlíðun-
um og eftir miklar rigningar
komst heil landspilda á hreif-
ingu. Það svarta, sem sjest á
myndinni er skriðan og sjest að
liún hefir komist fast að húsL