Fálkinn - 08.03.1930, Blaðsíða 9
9
FALKINN
'• 1 1 ' '!=-
iikii
Vm fátt hefir verið rætt meira undan-
farnar vikur en flotamálaráðstefnuna
i Londoh, sem hófst seint í janúar.
Mætti vel við una, ef fulltrúar stórveld-
anna væru orðnir svo miklir friðarvin-
ir, að hinn einlægi samkomulagsvilji,
sem komið hefir fram í ráðstefnunni,
i þá átt að draga úr herskipasmíðum,
ælti rót sína að rekja til þess að þjóð-
irnar væru orðnar afhuga stríði. En
þess mái líka gæta, að flolasmíðarnar
koma óþægilega við buddurnar hjá
stórveldunum og þau geta ekki boðið
Bandaríkjunum byrginn, því það er
eina ríkið sem hefir hendur fullar fjár.
Hjer á myndinn til hægri sjást ýmsar
herskipagerðir stórveldanna. Efst til
vinstri ný beitiskipategund, sem ítalir
hafa smíðað á síðustu árum og hefir
36 mílna hraða á ldst. Að ofan til hægri
>,Nac.hi“ nýjasta skipa Japana. Áð neð-
an t. v. franska skipið „Suffren“ en til
hægri Bandaríkjaskipið „Pensacola",
nieð PiO.OOO hestafla vjelum. Litla
tnyndin er af skipinu York, sem talið
er að hafa fullkomnastan tundur-
skeytaútbúnað í heimi.
‘Myndin hjer að ofan er frá Cayenne og sýnir flokk sakamanna,
sem hafðir eru til þes að róa bátum milli lands og Djöflaeyj-
nnnar, sem liggur þar skamt undan landi og illræmd er orðin.
Bifreiðastöð Philadelphiu ónýtti nýlega 500 vagna, sem orömr
voru óhæfir til aksturs, og keypti aðra nýja í staðinn. Fundust
ekki önnur ráð betri til að losna við vagnana, en að brenna þa,
og sjest sú athöfn á myndinni.
Hjerna sjást nokkrir hæsllaunuðu kvikmyndaleikarararnir í
heiminum. Chaplin hefir k miljónir króna í arstekjur, rom
Mix 5 miljónir, Jackie Coogan, sem á orðið 15 miljónir, græðir
16.000 kr. á viku, en Harold Lloyd yfirstígur þó alla. Hann
hefir 8 miljónir kr. árstekjur.
apanska sendinefndin á flotamálafundinum í London Ijet það
íera sitt fyrsta verk, er hún kom þangað, að halda ýmsum
lelstu stjórnmálamönnum Englande veislu á Savoy-hotellinu.
Sýnir myndin nokkra veislugestina.