Fálkinn - 09.07.1932, Page 8
8
F A L K I N N
Á síðasia afmælisdegi William Shake-
speare, hins ódauðlega skálds Eng-
lendinga, var Hamlet valinn til sýn-
ingar, enda er sá leikur einna vinsæl-
astur af öllum leikjum skáddsins. Aðr-
ar þjóðir hafa regnt að leika Hamlet
og önnur leikrit Shakespeares sem nú-
tíma leikrit, láta persónurnar vera í
nútímabúningum og því um líkt, en
Bretar hafa meslu skömm á slílcu. —
Myndin hjer til vinstri er tekin af einu
atriðinu í teiknum eins og hann var
sýndur í London nú síðast.
Páfinn er mesti framfaramaður og
gerir ýmsar umbætur í hinu litla ríki
sinu og tekur upp nýjungar, sem sum-
um fyrirrennurum hans mundu þykja
ganga guðlasti næst. Iiann hefir komið
upp símastöð fyrir páfagarð og nú hef-
ir hann látið gera járnbraut, sem er í
sambandi við ítölsku ríkisbrautirnar.
Hjer sjest eimlestin, en Pjeturskirkjan
í baksýn.
Myndin hjer að ofan gefur nokkra
liugmynd um, hve risavaxin hin
stærslu farþegaskip heimsins eru. Hún
er af skipinu Berengaria, tekin meðan
skipið lá i þurkví, til þess að fá gert við
skemdir, sem urðu á stýrisumbúnaðin-
um. Fólkið á landgöngubrúnni næst á
myndinni er eins og flugur í saman-
burði við risann í baksýn.
lþróttir eru iðkaðar af kappi við am-
eríkönsku háslcólana ekki síður en við
þá ensku og eru flestir ameríkanskir
stúdentar, sem vilja heita menn með
mönnum fjölliæfir íþróttamenn. En
uppáhalds skemliíþrótt þeirra er golf.
Ameríkumenn hafa tekið upp þá ný-
lundu, sem Englendingar lcunna elcki
við, að leika golf við hljóðfæraslátt.
Hjer sjest þesslconar skemtun. Myndin
er tekin á Wilson College í Kaliforníu.