Fálkinn - 23.09.1933, Blaðsíða 1
HITLER TALAR VIÐ HINDENBURG
Hvað er að gerast í Þijskalandi? Enginn veit það með vissu og enginn veii hverir Ijúga meiru Hitlersmenn eða andstæð-
ingar hans. Þó vita menn það fyrir víst, að skoðanafrelsi er ekki til í Þýskalandi síðan Hitler og Göring urðu alls ráðandi
þar.og að frjálslyndir menn, sem eigi hafa viljað gangast undir að tala og skrifa eins og nazi-stjórnin vill, hafa ýmist flúið
úr landi eða sitja nú í fangaherbúðum stjórnarinnar. — Um hitt vita menn ekki hvort líkur benda til að stjórninni muni
takast að koma atvinnumálum þjóðarinnar á rjettan kjöl aftur, enda mun sjórnin varla þykjast geta sýnt slíkt í verki nema
á lengri tíma. — En verði það ekki má fullyrða að einveldisbrölt Hitlers verði þjóðini dýrt. — Hjer að ofan sjest lýðurinn
vera að hylla Hitler er hann kemur úr viðtali við Hindenbur g forseta.