Fálkinn - 23.09.1933, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
Hinar svokölluðu garðveislur konungs-
hjónanna ensku, er þau halda í hallar-
garðinum við Buckingham Palace;kon-
ungshöllina í London, eru oft ærið
fjölmennar, eins og sjá má hjer á
myndinni, sem tekin er í garðveislu í
sumar og sýnir konungsfjölskylduna
heilsa gestunum.
Jackie Cooper, drengurinn, sem hefir
fengið svo marga aðdáendur fyrir leik
sinn í kvikmyndum, var nýlega skor-
inri upp vegna hotnlangabólgu. Hjer
á myndinni sjest liann í rúmi sínu á
sjúkrahúsinu, en honum þarf ekki að
leiðast, því að dags daglega eru honum
send blóm, sælgæti og leikföng frá aö-
dáendum sínum. Sjá myndina að
neðan.
Ríkisbankinn þýski Iiefir komið sjer
upp skotbraut, þar sem starfsmenn
bankans æfa sig í því að skjóta með
skammbyssu. ltjer á myndinni að of-
an sjást nokkrir starfsmenn að æfingu,
að hrinda af sjer ímynduðu áhlaupi
ræningja, sem vilja ná i guU bankans.
Við baðstaðinn Zoppot við Eystrasalt,
sem oft er kallaður „riviera Norður-
Evrópu“ er á hverju sumri haldin sjer-
stök hátíðavika og er ofi glatt á hjalla.
Baðgestirnir siiga dans í fjörunni í-
klæddir baðfötum og náttfötum. Sjesl
þessi dansleikur á myndinni til vinstri.