Fálkinn


Fálkinn - 21.12.1935, Page 39

Fálkinn - 21.12.1935, Page 39
F Á L K I N N 37 Núpur i Fljótshlíð. Markarfljótsaurar frá Eyvindarmiíla. austan Rangór, en meðfram herini, er dásamlega fagurl skóglendi sem heitir Hraunteigur. Fyrir góðra manna atbeina (Gunnlaugs Iírist- mundssonar o. fl.) eru sár Land- sveitar sem óðast að gróa, sem bet- ur fer. í hinum víðáttumiklu sand- girðingum getur nú að líta stórar lendur grasi grónar, er fyrir stutiu var svartur sandur. (Stóruvallagirð- ing og víðar). Getur svo farið, að stórbýlið forna, Stóri-Klofi, óðal Torfa sýslum. Jónssonar (er endir gerði á æfi Ljenharðar fógeta að Hrauni i Ölfusi 1502), sem nú er að mestu leyti undir sandi, verði aft- ur orðið að stórbýii eftir 2—3 ára- lugi. Landmenn eru annálaðir búmenn, '' þó náttúra agi þá stundum strangt, og vafasamt er, að nokkur sveit á landinu eigi gildari sveitarsjóð en ])eir. Af þjóðveginum í miðjum Holt- um, blasir við mjótt skarð í fjalla- hringinn út úr hinum mikla dal í botni hans. Situr Hekla gamla svip- mikil og tignarleg sunnanmegin skarðsins, en vikapiltur hennar Búr- fell að norðanverðu. Hafa þau gætt þess vel ó undanförnum öldum, að eigi færi nema úrvalalið í gegnum skarðið, Sprengisandsveg, til Veiði- vatna, Landmannaleið til Skaftár- tungu, eða til fjárleita á Holta- og Landmannaafrjetti. Er sennilegt, að þau hafi litið með velþóknun á, þegar ferðagarpar eins og Guðni i Skarði, Ólafur í Austvaðsholti, Lár- us í Klaustri o. fl. o. fl. leituðu á skarðið með fylgdarlið sitt. Gegnum skarðið renna tvær elfur, Rangá ytri syðst í því, — og eru upptök hennar litlu innar— og Þjórsá norðar. Móts við Búrfell er i henni stórfenglegur foss er heitir Tröllkonuhtaup. Eru hamfarir Þjórs- ár þegar hún steypir sjer fram af Tröllkonuhlaupi, svo jötunelfdar, að að nærri liggur að jörðin umhverfis bifist við. Og þarna fær hún að lík- • indum að syngja sina „þungu sigur- söngva“ að eilífu fyrir tröllkonurn- ar steinrunnu til heggja handa, (þ. e. í tröllkonugili í Búrfelli og tröll- t konugili í Næfurholtsfjöllum) sem einhverntíma aftur i grárri forn- eskju, hlupu yfir Þjórsá eftir hólm- unum í fossbrúninni, (og þar frá er nafnið komið á fossinum) m. a. til þess, að fá lánuð áhöld hvor hjá annari, svo sem pott, til að sjóða i menn er fóru um skarðið, sbr. þjóð- söguna um viðureign annarar við Gissur á Botnum, Gissur á Lækjar- hotnuin. Nú er orðið býsna langt síðan þær reyndu að nó sjer í mann í soðið. Nú liafast þær ekki annað að, en hlusta á hljómleika Þjórsár frá þeim stað, er þær gengu yfir liana áður þurrum fótum. Allir sem um skarðið fara, ættu að skoða Tröll- konulilaup, — og senda gömlu systr- unum koss af fingri, um leið og fram hjá þeim er farið, eins og i þalck- lætisskyni fyrir þolinmæðina, að húka þarna i giljum sínum um alda- raðir. — Útvörður dalsins (eða dal- anna beggja) að austanverðu er Eyjafjallaskallinn gamli, en Vest- mannaeyjar rísa úr hafi fyrir mynni hans austast, og gæta þess vendilega að ekkert óhreint komist að hon- um úr þeirri átl. — Rangárvellir, sem sýslan dregur nafn af, eru milli Rangánna, sem báðar voru brúaðar á öðrum tug aldarinnar. Til forna var Rangár- vallasveit miklu stærri en hún er nú og er hún þó enn með stærri sveit- um sýslunnar. Öfl eyðileggingarinn- ar hafa leikið hana grátt. Eldril herma að um 50 hæir hafi farið í eyði ó Rangárvöllum í Heklugosum og af sandfoki.. Þ‘ar ó meðal voru mörg stórbýli, t. d. Tröllaskógur (öðru nafni Stóri-Skógur), Dagverð- arnes gamla, (þar er sagt að hafi verið 50 liurðir á járnum), Stóra- Skarð o. fl. En ný sköpunarsaga er að hefjast þar, eins og i Landsveit innan sandgirðinganna. Og ef dug- lega er að verið, — og Hekla gamla verður jafnprúð og hún hefir verið nú í 90 ár — verða Rangárvellir eftir aldarfjórðung orðnir aftur ein með fegurstu sveitum sýslunnar. Bílfært er víða um neðri Rangár- velli t. d. að Geldingalæk, Gunnars- holti, (þar rekur ríkið búskap og stórfelda sandgræðslustarfsemi), Reyðarvatni, Kirkjubæ, Keldum, Hofi og Odda. -— Nú skal vikið aftur að ferðasög- unni. Flesl ferðafólkið var með öllu ó- kunnugt í hinu söguríka Itangár- bjeraði; hafði aldrei komið þangað fyrri. Eins og líkum lætur, átti það að vera hlutverk þess, sem hlotið hafði titilinn „fararstjóri", að fræða fólkið um eitt og annað er fyrir augun bar, og um sagnir við það bundnar, eftir þvi sem unl var. Byrjaði hann þetta starf með því, að sýna því helstu sögustaði er sást til af þjóðveginum. Þegar komið er nokkuð austur fyrir ytri Rangá, blasir hinn frægi staður Oddi við til hægri handar. Nafnið (Oddi) mun dregið af þvi að bærinn er bygður á landodda, sem myndaður er af þremur vatns- föllum, Rangánum báðum og Hró- arslæk, sem nú er venjulega nefndur Varmadalslækur. Þórgeir Ásgrímsson, Úlfssonar gyldis, hersis á Þelamörk í Noregi, bygði fyrstur bæ i Odda. Keypti hann Oddalönd af Hrafni Hœngs- syni, fyrsta lögsögumanni, er þá bjó á föðurleyfð sinni Hofi á Rang- árvöllum. Kona Þorgeirs hjet Þuríð- ur, dóttir Eilifs í Litla-Odda. Eru Oddaverjar frá þeim komnir. Þorgeir mun hafa keypt Odda- land, af Hrafni lögsögumanni — sem áður var hluti af Hofslandi — nál. 935. Dóttir Þorgeirs og Þuriðar hjet Helga. Hún giftist Svarti Úlfssyni örgoða, bróður Runólfs goða i Stóra Dal, og bjuggu þau í Odda eftir foreldra hennar. Eftir þau Svart og Helgu, hýr í Odda sonur þeirra Loðnmndur prestur og síðan sonur hans, Sigfús jjrestur, faðir Sæmundar fróða. Og var Helga Þorgeirsdóttir, fyrsta heimasætan í Odda, langamma hans. Sonur Sæmundar fróða, Eyjólfur prestur tekur við Oddastað eftir föður sinn, en síðan eftir hann, sonarsonur Sæmundar, Jón Lofts- son, er talinn var á sinni tíð mestur höfðingi á íslandi — og líklega má telja svo enn þann dag í dag. Eftir hann taka við Odda ætt- menn hans mann fram af manni. Vigfús Guðmundsson fræðimaður frá Keldum, telur að Oddaverjar (10 ættliðir) hafi búið í Odda, manu eftir matín, í nær því hólfa fjórðu öld. (Sbr. V. G. Saga Oddastaðar). A tíð fjögra merkustu Oddaverja (Sæm. fróða, Eyjólfs, Jóns Loftss. og Sæmundar sonar hans) var skóli i Odda; annar elsti skóli lands- ins. Fyrsti skólinn (elsti) var i Haukadal í Biskupstungum. Meðal þeirra er lærðu í Oddaskóla var Snorri Sturluson. Oddi hefir alla tíð verið eitt helsta stórbýli og höfð- ingjasetur ó landinu, og þar hafa setið margir mestu merkismenn and- legu stjettarinnar frá fyrstu tíð, og fram á þennan dag. Og OddaStað hafa haft að veitingu 7 prestar er síðar urðu biskupar, (Ólafur Rögn- valdsson, Jón Arason, Björn Þorleifs- son, Ólafur Gíslason, Árni Þórar- insson, Steingr. Jónsson og Helgi Thordarsen) og hefir Oddi met i Jiessu. Næst er Skálholt með 6 bisk- upsefni, Hólar 5, Staðarstaður 4 og Reykjavík 4, auk tveggja síðustu biskupanna sem ekki voru þar áður sóknarprestar). Til vinstri handar, gegnt Odda sjest Kirkjubær, þar sem Otkell bjó til forna, og Njóla segir að Hallgerði húsfreyju á Hliðarenda, hafi fund- ist vera of mikið til af mat. Fyrir austan Strandasýki var hið gamla höfuðból Strönd. Jörðin hef- ir tvívegis lagst í eyði vegna sand- foks; 1709 og 1882. Nú er búið að girða nokkuð af landi Strandar, og er það sem óðast að gróa upp í kringum mjög myndarlegan heima- vistarskóla, sem Rangvellingar hafa hygt á Strönd nýlega. Þegar kemur austur undir eystri Rangá, sjest Stóra-Hof nokkuð upp með ánni á vestari bakka hennar. Þar reisti Ketill Hœngur landnáms- maður fyrstur bæ í Rangárþingi — en landnám hans var alla leið frá Þjórsá að Markarfljóti. A Njálutíð hjuggu á Stóra-Hofi, feðgarnir Val- garður grói, og Mörður sonur hans. Voru þeir höfðingjar miklir og vel ættaðir. Koma þeir mikið við Njáls- sögu, og eigi ætíð á þann veg cr líklegt eða sennilegt má telja. Næstu bæir við Stóra-Hof, upp með Rangá, eru Minna-Hof, Stokka- lækur og Keldur, þar sem Ingjaldur Höskuldsson bjó á dögum Njáls, og síðar Jón Loflsson, eftir að hann var búinn að sleppa Odda við Sæ- mund son sinn. Kirkjubær, Stóra- Hof og Keldur, hafa löngum verið stórbýli og eru það enn. Af þjóðveginum milli Strandar og eystri Rangár, er mjög fagurt að lila til fjallanna, Þríhyrnings, Vatns- dalsfjalls og Hvolfjalls og bæjarins á Stórólfshvoli, (sem er beint fram- undan) einkum i síðdegissól. Djúpidalur heitir snoturt dalverpi rennsljelt austan við brúna á eystri Rangá. Er þar eitt býli hygt fyrir stuttu. Austan við Djúpadal tekur við Hvolsvöllur austur fyrir Stór- ólfshvol. Stórólfshvoll stendur suðvestan undir endanum á Hvolsfjalli. Þar bygði fyrstur bæ Stórólfur, sonur Kelils hængs. Ormur hinn sterki var sonur hans. Eru til margar sagnir um af) hans og hreysti, og liefir honum kipt i kyn til föður síns, sem var „hamrammur mjög“, og ])að svo, að Dufþakur gamli í Duf- þaksholti, sem heldur þótti illur viðureignar, varð þó að láta undan honum síga. Á Stórólfshvoli liafa oft búið erri- bættismenn, sýslumenn, prestar og læknar. Síðustu áratugina hefir ver- ið þar læknissetur. Miklar bygging- ar eru á Stórólfshvoli, því auk bygg- inganna er læknissetrinii fylgja, er þar sjúkrahús, kirkja og þinghús. Og fyrir neðan túnið eru byggingar Kaupfjelags Hallgeirseyrar. Fyrir sunnan Stórólfshvol eru vegamót. Liggur aðalþjóðhrautin beint áfram til suður yfir nýju brýrnar á Þverá, Affalli, Álum og Markarfljóti, meðfram Eyjafjöllum, og alla leið að Kirkjubæjarklaustri á Síðu, — og jafnvel að Kálfafelli i Fljótshverfi um hásumarið. Hinn vegurinn liggur inn í Fljóthlíðina, og er fær bílum að Múlakoti. Stutt frá vegamótunum er Efri- Bleiksárgljúfur. Hvoll, austan undir IIvolsfjalli. Sím- leiðis höfum við pantað þar hress- ingu, mjólk og kal'fi, og var það til reiðu er þangað var komið. Þar býr nú sýslumaður Rangæinga Björgvin Yigfússon. Áður en hann kom að jörðini fyrir rúmum 20 árum var þar margbýli (5 kot). Nú er hann búinn að gera þessa jörð að stórbýli. Eftir nokkra viðstöðu á Efra- Hvoli var haldið inn í Fljótshlíðina. Liggur vegurinn fyrir neðan bæjar- röðina, en bæirnir (flestir) standa uppi i hliðinni. Ysti eða vestasli bær í Fljótslilíð heitir Núpur. Er það snoturt bóndabýli með fallega

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.