Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1936, Side 15

Fálkinn - 15.02.1936, Side 15
F Á L K 1 N M 15 Wmmmmá SUESSKIJRÐURINN. í sambandi við hernað ítala og Abessiniumanna hefir margt verið rætt u’m Súesskurðinn, sem er nauð- synleg fararleið, bæði fyrir ítali, til þess að ná til nýlenda sinna í Eri- treu, en þar er bækistöðin fyrir aðal- innrás þeirra í Abessiníu norðan- verða, og eins til Somalilands, þar sem þeir einnig eiga nýlendur, er þeir hafa notað til innrásar í sunn- anverða Abessiníu. Þegar þetta er ritað, eru jafnvel liorfur á, að suð- urherir ítala muni reynast sigur- vænlegri til þess að yfirbuga Abess- iníumenn og norðurherirnir. — Út- lend blöð fluttu fregnir um það, þegar í byrjun ófriðarins, að Bret- ar mundu neyta valds síns og loka Súesíjkurðinum, til þess að afstýra flutnin'gi hermanna og hergagna til vígstöðvanna, en svo hefir þó ekki r’eynst. Þó að Bretar eigi mikinn íneirihluta i fyrirtæki því, sem Súes- skurðurinn byggist á, líta þeir þó fremur á það sem hreint atvinnu- fyrirtæki en sem varnartæki í ófriði, svo framarlega sem hann ekki snert- ir Miðjarðarliafið sjálft eða Austur- lönd. — Hjer að ofan er mynd af ítölsku kaupfari á leið um Súes- skurðinn. — En litla myndin sýnir uppdrátt af skurðinum, frá Port Said til Sues, ásamt Rauðahafinu. Hermann Göring átli 43. ára afmæli í janúar og hjelt svo eftirminnilega upp ii það að jafnað er til veislanna i þann tíð, sem ,,junkararnir“ voru i mestum ha- vegum í Þýskalandi. Hjelt hann þetta samkvæmi í Ríkis- öperunni og stóð það fram á morgun. Þar voru 2100 gestir en hver varð að greiða 50 mörk fyrir að- ganginn og ekki gátu aðrir fengið aðgang en persónulegir kunningjar Görings eða aðrir, sem höfðu fengið áskorun um að koma. Þarna var i)ll stjórnin viðstödd nema Hitler og Göbbels. En þaö munaði líka mikið um, að þá skyldi vanta. Leikhúsið hafði verið lokað marga daga vegna undirbúnings og gerður úr því danssalur. Ivostaði 10.000 mörk að gera breytinguna. Voru salirnir blómum skreyttir, gos- hrunnar voru í hverjum krók og kílómetrar af silki og flaueli hengdir tipp til prýði á veggina. Þarna var krónprinsinn í spariein- kennisbúingi sínum. Sat hann i stúku ásamt vinum sínum og nokkr- um ljósliærðum meyjum. August Wilhelm var þarna líka, í einkenn- isbúningi S.A.-manna. í annari stúku sat Ferdinand fyrverandi Búlgariu- konungur og sló takt þegar Wienar- G. Helgason & Melsted h.t. valsarnir vortt leiknir og brosti til dansmeyjanna, þó gamall sje. í stúku Görings og konu hans var m. a. Mafalda prinsessa dóttir Ítalíu- konungs og Filippus prins af Hess- en maður hennar. — Myndin er af Hermann Göring og frú hans, mestu hefðarkonu Þýskalands þangað lil Hitler giftist. Bandarikjastjórn hefir veitt 250.000 dollara til þess að auka skilyrði til skemtiferða um vestur-indisku eyj- arnar, sem fyrrum voru danskar. Er talið að hægt sje að auka ferða- strauminn þangað afar mikið. Fjenu verður fyrst og fremst varið til vega- bóta og gistiskálabygginga. Talið er að um 200 inanns hafi frosið í hel í Bandaríkjunum í vetur fram undir janúarlok. Hafa kuld- arnir verið óvenjulega miklir þar, t. d. hafa rneiri kuldar verið i Boston en nokkurntíma á undan- förnum 33 árum. Og Niagarafoss- arnir eru frosnir. ----x---- Einkennilegur gestur hefir undau- farnar vikur heimsótt skrifstofur ýmsra velgerðarstofnana i Kaup- mannaliöfn. Kemur liann inn og af- hendir stofnunum að gjöf fimni til tíu þúsund krónur, tekur kvittun fyrir, stílaða á „Danielsen, Kongens- gade í Odense“ og fer síðan. En við nánari eftirgrenslan er enginn Dan- ielsen til á þeim stað i Odense, sem hann nefnir. Hefir þessi ókunni vel- gerðarmaður gefið nálægt 50.000 krónur á þennan hátt,

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.