Fálkinn - 28.08.1937, Qupperneq 2
2
F Á L K I N N
-------- GAMLA BlÓ ---------------
.,Blóð og GuH“.
Afar spennandi og efnismikil tal-
mynd, gerÖ undir stjórn
JAMES CRUZE.
Aðalhlutverkin leika
EDWARD ARNOLD,
BINNIE BARNES og
LEE TRACY.
Sýnd bráölega.
Það er æfintýri John Sutters, sem
mynd þessi segir frá. Sutter var um
eitt skeið ríkasti maður heimsins, þvi
að hann átti alla Kaliforníu um það
leyti, sem gullið fanst þar í landi.
En það var einmitt gullið, sem gerði
hann öreiga að kalla mátti á svip-
stundu.
John Sutter flýði ættland sitt,
Sviss, vegna þess að hann var grun-
aður um að hafa myrt mann. Æfi-
sögur hans geta ekkerl um, hvort
þessi grunur hafi verið á rökum
bygður eða ekki, en það eitl er víst,
að hann flýði vestur um haf, og
ferðaðist áfram stað úr stað frá
austurströndinni alla leið þangað til
hann komst vestur á Kyrrahafs-
strönd. Hann kyntist á leiðinni
manni einum enskum, sem hjet
Pete Perkins og komst með honum
til Suðurhafseyja. Þar höfðu þeir þó
skamma viðdvöl en hjeldu aftur fil
lvyrrahafstrandar, og þar lókst
Sutton að fá eignarhald á landi, hjá
spánska landstjóranum Alvarado.
Landið sem hann fjekk er sem svar-
ar hálfri Kaliforníu, og settist hann
þar að, sem nú er San Francisco,
reisti þar búgarð og hafði fjölda
fólks i þjónustu sinni. Var hann bú-
höldur hinn besti og alt ljek í
lyndi lijá honum, þangað til gullið
fanst í Sacramentodalnum. Þá byrj-
aði fólk að streyma að, úr öllum
áttum. Og í stað þess að vera stór-
býli, varð nú borg þar, sem heitir
San Francisco. Hann flæmdist burt
af nýlendu sinni, því að „gamm-
arnir“ urðu honum ofjarlar.
Þegar Sutton fór frá Sviss, árið
1839, skildi liann þar eftir konu
sína og marga syni. Hann Ienti
vitanlega í nýjum ástaræfintýrum í
ferð . sinni vestra, en gleymdi þó
aldrei konu sinni. Og fallegasti hluti
myndarinnar, sem sýnd verður i
GAMLA BIO innaiv skamms segir
frá endurfundum hans og konunnar.
Þessi mynd er sannsöguleg i öll-
um atriðum og þessvegna hefir
kvikmyndafjelagið, sem tók hana,
lagt alla alúð við að gera hana sem
rjettasta, svo að hún getur talisl
raunverulegur þáttur i því starfi,
sem Amerikumenn hafa byrjað í þá
átt, að gera kvikmyndir, er lýsi því,
hvernig land þeirra bygðist. En um
leið og myndin er söguleg heimild,
ei hún líka lýsing á því einkenni-
legasta æfintýri, sem nokkur maður
hefir upplifað. Og sögulokin, þegar
„fyrverandi ríkasti maður heimsins“
gengur dag eftir dag inn i ganginn á
rjettarsölunum, til þess að fá að
heyra úrslit málaferlanna, sem hann
á í við Bandaríkin, útaf eignatapi
sínu, eru svo átakanleg, að orð fá
ekki lýst því. — En myndin gerii'
það vel.
Ung ensk stúlka varð nýlega fyr-
ir bifreið og meiddist svo mikið á
öðrum fæti, að vonlaust þykir um,
að hún geti nokkurntíma dansað
sæmilega framar. Hún fjekk 36.000
krónur í skaðabætur, með þeim for-
sendum að henni yrði erfiðara að
giftast, úr þvi að hún gæti ekki
dansað!
Gísli Kristjánsson Laugaveg h?>,
verður 70 ára 28. ágúst.
UPPÁHALDS-GÍRAFFINN
í dýragarðinum í London, sjest hjer
á myndinni, nýkominn úr þrifabaði,
og er gæslumaður hans að bursta á
honum hálsinn. Skaftið á burstanum
verður að vera langt, til þess að
gæslumaðurinn nái upp á efstu hæð
gíraffans.
ÞETTA ER JOE LOUIS,
svarti linefakappinn frægi, sem lagði
Max Schmeling að velli og tók síðan
heimsmeistaratignina af James Brad-
dock í Chicago 22. júní í sumar,
sem sjest lijer á myndinni. Á næst-
unni á hann að etja kappi við enska
hnefakappnnn Tommy Farr.
Viðureign Roosevelts forseta við
hæstarjett Bandaríkjanna, sem
dæmdi ómerka ýmsa bjargráðalög-
gjöf forsetans, hefir verið umtals-
efni um víða veröld síðan í fyrra.
Hjer sjást dómarar rjettarins, að af-
lcknum rjettarfundi, dómsforsetinn
Charles Evans Huglies til hægri og
einn af yngri dómendum, Benjamin
Cardozo til vinstri.
Þegar tóbaksnantn
var glæpnr.
Ýmsir hafa ýmigust á tóbaksnauln
nú á dögum, bæði vegna þess að
hún sje heilsuspillandi og af því
að þeir þola sjálfir illa reyk. En
hvað er það á móti því sem var í
gamla daga, þegar tóbaksnautn var
talinn glæpur og varðaði við lög.
Þá gekk bæði klerkastjettin og yfir-
völdin i skrokk á öllum tóbaks-
mönnum.
í Persiu kvað svo ramt að, að sá
maður sem staðinn var að því að
reykja tóbak, var dæmdur til dauða.
Það þótti hundahepni ef liann slapp
með að láta skera af sjer nefið.
Það var ekki heldur tekið nein-
um' vetlingatökum á tóbaksmönnun-
um í Rússlandi. Árið 1613 undir-
skrifaði Michael Feodorovitsj keis-
ari lög, sem álcváðu tóbaksreykinga-
mönnum æfilangt fangelsi og i Tyrk-
landi varðaði tóbaksnautn harðri
refsingu.
Alt fram að 1660 var tóbaksnautn
talin hinn skaðlegasti löstur í Sviss
og varðaði fangelsisvist.
Jakob I. Englandskonungur lagði
einnig harða refsingu við tóbaks-
nautn og enska þingið gekk svo langt
að það dæmdi mann einn, Ragldiff,
tii dauða, fyrir það að liann hafði
flutt þennan ósið inn í landið.
Auðvitað urðu páfarnir að láta
sig þetta mál einhverju skifta. Árið
1642 skrifaði Urban páfi VIII. erki-
biskupnum í Sevilla og skoraði á
hann að neyta ekki tóbaks, en cf
hann skelti skolleyrunum við þvi,
hótaði páfinn að lýsa hann í bann.
Innocentius páfi XI. ákvað, að alla
reykjandi presta skyldi setja af em-
bætti tafarlaust, og sekta þá um 25
dúkata.
En ekkert stoðaði. Tóbaksnautin
breiddist út eins og fjárkláði og öll
bönn reyndust einskis nýt. Og talið
er, að bönnin og refsiákvæðin hafi
orðið til þess að flýta meira fyrir
útbreiðslu tóbaks en nokkuð annað.
——x------
NÝJA BIÓ.
WAUER HUSTON
RUTH CHATTERTON
Amerisk kvikmynd samkvæml
hinni heimsfrægu sögu „Dods-
worth“ eftir Nobelsverðlauna-
skáldið
SINCLAIR LEWIS.
Leikurinn fer fram í Bcuularíkj-
unum, Auslurríki, Ítalíu og um
borð í risaskipinu Queen Mary.
Sinclair Lewis er ýmsum íslensk-
um lesendum kunnur af bókum sín-
um, en þó ekki nógu mörgum. Pví
að hjer er um að ræða einn sjer-
stæðasla rithöfund heimsins. Hann
er meinlega fyndinn og svo háska-
lega athugull, að lýsingar hans eru
gersimar öllum þeim, sem kunna að
lesa bók.
„Dodsworth11 er ein frægasta saga
Lewis. Hvort hún er sú besta, skal
ósagt látið, en lnin hefir orðið ein
aí þeim vinsælustu. Það er efni
þessarar sögu, sem United Artists
hafa kvikmyndað, og sett í aðalhlut-
verkin ágætisleikarana Ruth Chatt-
erton og Walter Huston. Meðferð
þeirri er svo frábær, að því er ekki
hægt að lýsa. Það var gert leikrit
eftir sögunni, og ljek Huston sama
hlutverk og í myndinni yfir 406
sinnum í New York. Dodsworth er
„bíIakongur“ og svo mikill iðjuhöld-
ur, að bærinn stendur og fellur
með honum. Bærinn er of litill fyrir
konuna hans — hún þráir að kom-
ast þangað, sem hægt sje að gera
meiri tilbreytingar á lifinu. Og svo
lsetur hann til leið1ast, að selja bíla-
verksmiðjuna sina, og fara í skemti-
ferðalag til Evröpu. Sú ferð er góð
lýsing á því, hvernig lunderni Ame-
ríkumannsins er. Konan fer að dufla
við einn og annan og maðurinn, sem
er þó ekki nema tiu árum eldri, geriv
það sama. Þegar að því er komið,
að þau eigi að fara heim aftur, vest-
ur um haf, vill hún ekki fara, en
lætur mann sinn leigja fyrir sig
bústað við Genfarvatnið í Sviss.
Hann fer vestur, en leiðist þar hrátl
einveran. Hann er orðin „rótlaus" —
hefir selt fyrirtæk það, sem hann
varð stór á og sem gerði bæinn
stóran. Hann fer aftur austúr um
haf, til þess að vitja konunnar. í
þeirri ferð gerast mörg tíðindi, sem
ekki verða rakin hjer. — En „Dods-
worth“ er ekki aðeins skilgreining
á hátterni Ameríkumannsins, sem á
nóga peninga. Hún er líka lýsing á
því, að þeir sem eiga nóga peninga,
uppgölva stundum, að það er ekki
hægt að fá alt keypt fyrir peninga.
Lánið í lífinu verður aldrei metið
i krónum eða aunun, því að jiað
liefir aldrei verið til kaups.
Sálarlífslýsingin, sem Lewis gefur í
myndinni er svo mikill gimsteinn,
að þeir sem horfa á myndina, kaupa
sjer bókina á eftir, ef þeir eiga hana
ekki áður.
Það er ástæðulítið að vera hrædd-
ur í þrumuveðri, þvi að hagskýrslur
sýna, að eins ein manneskja af
hverjum fjórum miljónum bíður
bana af eldingum. Þá er miklu
hættulegra að ganga um götur borg-
anna eða þjóðvegina, því að af
hverjum 4 miljónum farast 649 af
umferðaslysum.