Fálkinn - 28.08.1937, Síða 15
F Á L K I N N
15
Nýjar bækur:
Þessar bækur eru nýkomnar í
bókaverslanir:
RIT
JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR,
öll síðari hefti bindanna, svo
að nú er verkið alt komið út.
MANNFAGNAÐUR.
Þetta er úrval af þeim ræð-
um, sem Guðm. Finnbogason
hefir haldið í ýmsum mann-
fagnaði. Prýðileg bók að efni
og útliti.
FRÁ LIÐNUM KVÖLDUM.
Nokkrar smásögur eftis Jón
H. Guðmundsson. Jón er
efnilegur ungur rithöfundur;
sögur eftir hann hafa birst í
blöðum og timaritum og hlot-
ið ágæta dóma.
ÞRÁÐARSPOTTAR.
Sex sögur eftir íslenska konu
í Vesturheimi, Rannveigu K.
Sigbjörnsson.
RÖSKUR DRENGUR.
Drengjasaga eftir dönsku
skáldkonuna Helene H0r-
lyck, þýtt hefir Þorsteinn
Halldórsson. Sagan er
spennandi og ágætlega
skrifuð.
SKRÚÐGARÐAR.
Eftir Jón Rögnvaldsson garð-
yrkjufræðing á Akureyri.
Þeir sem vilja láta líta lag-
lega út í kringum hús sín,
þurfa að eignast þessa bók.
í bókinni er fjöldi mynda
og uppdrátta.
KENSLUBÓK í ÍTÖLSKU.
eftir Þórhall Þorgilsson.
VIRKIIt DAGAR I
eftir Guðm. G. Hagalín. Þetta
er önnur útgáfa. Fyrsta út-
gáfan seldist í fyrra á mjög
stuttum tíma og síðan hefir
verið mikil eftirspurn eftir
bókinni.
KEYPTUR Á UPPBOÐI
eftir Conan Doyle. Lítil bók,
kostar aðeins 1 krónu.
Allar þessar bækur fúst hjá
bóksölum am land alt.
Hræddir
við konuna sína.
Hertoginn af Marlborough (1650
1722), yfirhershöfðingi Önnu drotn-
ingar, var giftur einni hirðmeyjunni,
seni hjet Sarah Jennings. Hún var
l)æði falleg og ráðrik og hafði mann ■
inn sinn í vasanum. Þessi frægi
herstjóri, sigurvegarinn frá Malpla-
uuet segir í brjefi, sem til er enn,
að hann sje liræddari við konuna
sina en 60.000 dáta. Sarali sagðist
elska manninn sinn, en eigi að síð-
ur kúgaði hún hann. Og hann hlýddi
henni af því að ha'nn var hræddur
við hana.
Abraham Lincoln (1809—’65)
hafði grun um það undir eins í
trúlofunarstandinu, að hann mundi
fr.ra halloka í hjónabandinu. Unn-
usta hans hjet Mary Todd og hún
dró ekki fjöður yfir, að hún ætlaði
sjer að stjórna manninum. Brúð-
kaupsdaginn konl brúðurin og gest-
irnir til kirkjunnar en brúðgumann
vantaði. Það varð að fresta brúð-
kaupinu. En við næstu tilraun sá
Mary fyrir því, að hafa Abraham
sinn vísan. Þau giftust og Mary
fórst skammarlega við þennan merk-
ismann.
James Watt (1836—1819) var tvi-
giftur og fyrra hjónabandið var
farsælt. Seinni konan botnaði ekk-
ert í áhugamálum og starfi Watts.
Hún var kattþrifin en mesta skass.
Fleygði hún oft ýmsu, sem hún
taldi skran, út úr vinnustofu lians,
en þegar hann maldaði í móinn
fleygði hún honum út líka. Þegar
Watt hafði gesli og skassið vildi
fara að hátta, kærði hún sig koll-
ótta um gestina, en sendi vinnu-
konuna inn til þeirra og Ijet hana
slökkva á lampanum. Watt varð þá
að biðja gestina um að fara. Hann
varð mjög bölsýnn í ellinni og átti
leiðinlega daga, svo var konunni fyr-
ir að þakka.
Jobn Wesley (1703—1791) stofn-
andi meþódistasafnaðanna giftist
ekkju sem lagði með sjer fjögur
börn i búið. Hún var síhrædd um
manninn sinn, og njósnaði ávalt um
ferðir hans. Þegar presturinn fjekk
heimsókn af konum í söfnuðinum,
stóð frúin altaf við skráargatið. Þeg-
ar grunur hennar varð sterkur, tók
hún Wesley og flengdi hann. Hún
liafði nánar gætur á brjefberanum
og skoðaði ávalt brjefin, sem liann
kom með til Wesley eða fór með
frá honum. Og ekki vílaði hún fyr-
ir sjer að opna brjefin til mannsins
síns. Afbrýðissemi hennar keyrði
svo úr hófi, að Wesley var í raun-
inni ekki frjáls maður.
Thomas Carlyle (1795—1881), hinn
heimfrægi skotski spekingur varð
i'yrir miklu hnjaski i lijónabandinu.
Það bar ekki ósjaldan við, að kon-
an bans grýtti bollum og könnum
framan i hann, þegar lienni sinn-
aðist. Hún hjet Jane Welsh og er
talinn „gáfuð kona en afar ör-
geðja“. Það var þetta öra geð, sem
oft gerði Carlyle lífið súrt, þó að
hinsvegar væri það ekki eintómur
skuggi. Fyrstu sex árin sem þau
voru gift bjuggu þau á landsetrinu
Craigenputtoch, sem Jaine fjekk í
heimanmund.
----x——
Skritin lagaírnmvörp.
í Bandaríkjunum hafa komið fram
ýms skrítin lagafrumvörp fyr og sið-
ar. Þannig hefir verið reynt að
lcoma fram lögum um það í Utah,
að allir baði sig, að minsta kosti
einu sinni í viku, og skuli varða
fangelsi ef út af sje brugðið. í Texas
eru menn ákaflega blótsámir enda
hefir komið þar fram frumvarp um,
að það skuli varða sektum, að bölva'
i síma! Hitt hefir þótt of viður-
hlutamikið, að láta blót yfirleitl
varða sektum, enda mun það reyn-
ast nægilega erfitl, að hafa eftirlit
með bölvinu í símanum livað þá
hinu. í New York liefir komið fram
frumvarp um að gera stóra vagna
með sýnigarpalli og aka þeim um
götur borgarinnar, með helslu fylli-
rafta borgarinnar, til þess að sýna
þá almenningi. Þá hefir komið fram
fruinvarp um það, að feimin brúð-
hjón, sem kunna þvi illa að glápað
sje á þau i brúðarskartinu, megi
senda fulltrúa fyrir sig lil prestsins,
til þess að gefa hjúskaparheitið i
þeirra stað. í Kansas er á döfinni
lagafrumvarp um það, að allir ó-
giftir menn, eldri en 45 ára skuli
greiða 25 dollara á ári i skatt. í
Colorado liggja háar sektir við því
að taka á móti drykkjupeningum.
Undanþegnir eru þó þjónar á svefn-
vögnum járnbrautanna.
Til Akureyrar
alla daga nema mánudaga.
H FHíSf PVíSÍt1 alla miðvikudaga, föstudaga,
111 dUlljiUli laugardaga og sunnudaga.
2ja daga ferðir þriðjudaga og fimtudaga.
Afgreiðsla í Reykjavík:
Bifreiðastöð íslands, Sími 1540.
Bifreiðastöð Akureyrar.
sem getur kallað sig fyrverandi for-
sætisráðherra Frakka, þó að ekki
yrði hann gamall i sessinum, sjest
hjer ásamt konu sinni, sem hann
giftist í sumar og lijet frú Blanc-
hart áður en hún varð frú Tardieu.
-------
VOPN GEGN BRYNREIÐUM.
Hið nýjasta vopn enska hersins
er fallbyssa, sem sjerstaklega er til
þess ætluð, að vinna bug á bryn-
reiðum. Hjer sjest gamall indverskur
hermaður vera að skoða fallbysu
þessa og kynna sjer notkun hennar.
KONA SEM FLUGKAPTEINN.
Hin kunna svifflugkona Hanna
Reitsch, sem sjest hjer á myndinni,
hefir getið sjer svo góðan orðstír,
sem stýrimaður svifflugna á Svif-
flugsstofnuninni í Darmstadt, að
Göring hefir gert hana að flugkap-
teini. Er það í fyrsta sinni, sem
kona hlýtur þann vegsauka.
WINSTON CHURCHILL,
hinn nafnkunni stjórnmálamaður
leggur á margt gjörva hönd. Þannig
var hann í sumar fenginn til að
vígja nýja eimreið, og sýnir myndin
hann að því verki.