Fálkinn - 06.08.1938, Síða 2
2
F Á L Ií I N N
GAMLA RÍÓ
England á friðar
og éfriðartíma.
Nautgriparæningjarnir.
Afar spennandi mynd, sem sýnir
bardaga ríðandi lögregluliðs
við nautgripaþjófa í Arizona.
Aðalhlutverkin leika:
BUSTER CRABBE og
KATHARINE DE MILLE.
Sýnd bráðiega!
Á síðasta ári dóu ýmsir menn,
sem vert er að geta, þó að langar
dánarminningar hafi ekki komið um
þá í blöðunum. Hjer skulu nokkrir
nefndir: í Flomaton í Alabama dó
feitasti maður heimsins, Jack Eckert,
63 ára gamall. Hann vóg 739 pund.
— í London dó Richard Howlett, 70
ára gamall. Lífsstarf lians hafði ver-
ið það, að hugsa um þó 500 einkennis
búninga, sem Georg V. Englakonung-
ur átti. — í Oklahomo dó ríkasti
Indíáni heimsins, Enus Wilson, 35
ára að aldri. Hann ljet eftir sig
fimm miljón dollara. — í Sydney dó
mest „tattóveraði“ maðurinn i heimi,
W. J. Bennell. Á skrokknum á hon-
um voru 800 myndir en þó dó hann
ekki af því. — í Beacon í Bandaríkj-
unum dó John Wells, 83 ára. Hann
hafði verið 59 ár æfi sinnar í tugt-
húsinu. — í Washington dó „Old
Babe“, 99 ára. Hún var elsti fíllinn í
dýragörðum heimsins. — í London
dó Aigernon Asthon, 77 ára. Hann
hafði komið 3000 aðsendum greinum
í ensku blöðin.
Frú Þóra Á. Ólafsdóttir Laufás-
veg 3, ver&ur 70 ára 5. f>. m.
Stórmerkileg og skemtileg kvik-
mynd sem sýnir manni í stórum
dráttum sögu Englands síðustu
40 árin. Eru í mynd þessari þætt-
ir, sem hafa verið í eign ýmsra
ríkja, og birtast hjer í fyrsta
sinn almenningi.
Fyrir alla áhugamenn um, söguleg
efni er naúðsynlegt að sjá kvik-
myndina England á friðar og áfrið-
artíma. Þarna er dregin upp í stuttu
máli saga Englands frá því á Viktor-
íutímunum og til vorra daga. Myndin
er full af áhrifaríkum atburðum frá
upphafi til enda.
Berlingske Tidende segir: „Á að-
eins einni klukkustund lifir áhorf-
andinn heilan mannsaldur, og þar á
meðal hina stórkostlegu og skelfi-
legu viðburði síðasta aldarfjórðungs,
sem byrjuðu svo sakleysislega, en
enduðu í — ja, það veit enginn....“
Annað stórblað Hafnar segir: —
„Myndin er áhrifarik frá upphafi til
enda, og engan mun iðra að sjá
liana."
DAVID HEARST
yngsti sonur blaðakonungsins ame-
rikanska, er nýgiflur 17 óra gam-
alli dansmær, sem ainerikönsku
blöðin telja fegurstu stúlku í heimi.
Eru þau komin til Englands í brúð-
kaupsferð.
Fyrir skömnui andaðist María ekkjudrotning í Rúmeníu, mjög mæl og
mikilhæf kona. Hjer á myndinni halda tiðsforingjar heiðursvörð um
líkkistu hennar.
Hnefaleikari sem var að keppa í
Illinois kvartaði undan því eftir
sjöttu lotu, að hann hefði óþægindi
í fótunum. Þegar farið var að at-
huga málið kom það í ljós að hann
hafði vinstri skó á hægra fæti og
öfugt.
Paramount-myndin Nautgriparæn-
ingjarnir, sem sýnd er um leið er
ein af þessum hóvaðasömu amerísku
myndum, sem mörgum þykir svo
gaman af. Hún iðar af krafti og
fjöri. Byssuskot og bardagar, mann-
dráp og aðrir óróaviðburðir
ganga gegn um alla myndina.
Hún er ætluð sterkum taug-
um. — Vestur í Arizona í
Ameríku er nautgripaþjófn-
aður mjög .tíður og sýnir
myndin hinar harðvítugu
sennur, sem verða milli
þjófa og ræningja annars-
vegar, og hinsvegar bænd-
anna, sem með hjálp lög-
reglunnar eru að verjast
þessum vágestum.
Iiinan um alla þessa við-
burði er fljettað ástarsögu.
Ungur piltur frá Ne\v York,
Jim Traft að nafni, verður
ástfanginn af ungri og fal-
legri Arizona-stúlku, Molly
Dunn. Hún er ekki auðunn-
in, en öllu lýkur nú vel, eins
og í flestum kvikmyndum,
eftir að Jim hefir sýnt það
í bardögunum við nautgripa-
ræningjana, að hann er eng-
inn heigull, heldur þróttmik-
ið karlmenni.
Blaðamenn i Belgrad hjeldu ný-
lega liappdrætti til ágóða fyrir sig.
Stærsti vinningurinn var ókeypis
áskrift að blaði í þúsund ár. Á það
að ganga í arf til ættingja þess sem
vinnur það.
------ NÝJA Bló. -----------
Hinn hræðileg!
sannleikur.
Bráðskemtileg amerísk kvikmynd
frá Columbia-film. — Aðalhlut-
verkin leika:
IRENE DUNNE og
CARY GRANT.
Þetta er ein af allra fyndnustu
og skemtilegustu kvikmyndum,
sem gerðar hafa verið í Amerikú
siðustu ár. Hún hefir hvar-
vetna hlotið mikið lof og aðdáun
áhorfenda.
Nýja Bíó sýnir bráðum mynd frá
Columbia kvikmyndafjelaginu und-
ir nafninu. Hinn hrœðilegi sannleik-
ur, með þau Irene Dunne og Cary
Grant i aðalhlutverkunum.
Mynd þessi var sýnd nýlega í
Kaupmannahöfn og komst Berlingske
Tidende þannig að orði í dómi um
liana: „Það var hlegið mikið og
hjartanlega í kvikmyndahúsinu í
gær, og það var ærin ástæða til
þess. „Hinn hræðilegi sannleikur"
er einn skemtilegasti gamanleikur,
er hjer hefir verið sýndur um lengri
tíma, og hann mun fylla kvikmynda-
húsið livað eftir annað. Gary Grant
var eiginmaðurinn, hrífandi, fyndinn
og ástfanginn. Irene Dunne var eigin-
konan, töfrandi og óútreiknanleg.
Aukapersónurnar allar voru ágætar.
— Það var skemtilegt kvöld í stuttu
máli sagt.“
í sama streng taka hin Kaup-
mannahafnarblöðin. Politiken segir:
„Hinn hræðilegi sannleikur er skemti
leg, amerísk gamanmynd, sem vekur
hjartanlegan hlátur." ■—
— Ung hjón eru að skilja, og það
er ekkert skilnaðinum til fyrirstöðu
annað en það, að þau geta ekki orð-
ið ásátt um hvort þeirra eigi að fá
uppáhaldshundinn, Smith, sem er
stríhærður, skynugur völskurakki.
Eftir mikið þóf og málalengingar
fellir dómarinn úrskurð um að kon-
an (Lucy) skuli fá hundinn. Eigin-
maðurinn (Jerry) kann þessum úr-
skurði illa, — en það er þó bót í
máli að honum er dæmt leyfi til
þess að heimsækja hundinn fjórt-
ánda hvern dag.
Svona er nú uppliafið að þessari
fjörugu mynd, sem ekki verður hjer
frekar rakin.
Ameríkumenn eru nú farnir að
búa til gerfitennur i hundana sína.
Tannlæknirinn Fosland í Aberdeen
í Washington bjó nýlega til lieilan
tanngarð í gamlan hund, sem hafði
mist allar tennurnar i efra skolti.