Fálkinn - 27.08.1938, Page 2
2
F Á L K I N N
----- GAMLA BÍÓ --------------
Samkepni og ást.
Falleg og hrífandi söng og mús-
ikmynd, sem gjörist í Búdapest
og á Donau.
Aöalhlutverkin leika:
Wolfgang Liebeneiner,
Marie Andergast,
George Alexander,
Joe Stöckel.
Budapester Symphonihljóm-
sveitin leikur undir.
Sýnd bráölega!
Bessi mynd, sem Gamla Bíó sýnir
á næstunni, gerist í Budapest í
Ungverjalandi og á ánni Donau og
er samin af Peter Franke en tekin
undir stjórn Willi Beiber. Falleg
hljómlist er sterkur þáttur i mynd-
inni og hafa þrír menn verið um
að semja hana og sumpart vefa hana
upp úr gömlum og kunnum lögum,
því að þau eru mörg lögin og ljóðin,
sem kend eru við Donau.
Efni leiksins segir frá tveimur
skipaeigendum, sem eru keppinautar,
því að báðir halda uppi siglingum á
Donau. Annar er Ungverji og heitir
Ferenc Vary en. hinn er Bajernbúi
lieitir Jakob Schaffleitner. Ung-
verjinn á fallega dóttir, sem heitir
Etelka, Bajarinn ungan son, sem er
að koma heim úr tíu ára útivist og
á nú að fara að kynna sjer útgerð
föður síns, lil ])ess að geta tekið við
fyrirtækinu að honum liðnum. Faðir
hans vill láta hann byrja á að kynna
sjer siglingarnar með því að gerasl
stýrimaður á einu skipi sínu. En
dóttir Ungverjans er líka mikið við
fyrirtæki föður síns riðin.
Nú vill svo til, að þau tvö liittast,
Bajarasonurinn og Ungverjadóttirin
og verða þegar hrifin hvort af öðru
og gera með sjer stefnumót. En svo
vill til, að stúlkan getur ekki komið
á stefnumótið vegna óþægilegra anna
við fjelag föður síns, sem er í örg-
ustu f j árh agsk röggum. Heldur Baj-
arasonurinn, að hún hafi brugðist
sjer og liefst nú alleinkennilegur og
sniðuglega samansettur gamanleikur,
sem hjer yrði of langt að lýsa. Hann
endar vitanlega með því, að þau kom-
asl að vitneskju hvort uin annað,
þessir tveir eimskipafjelagserfingjar,
einmitt um það leyti, sem Bajarinn
er að kaupa hið máttvana fyrirtæki
keppinauts síns. Og þá er ekki vandi
að ráða fram úr, hvernig muni fara
milli þeirra Etelku Vary og Scheiff-
leitners hins unga.
Hlutverk hinnar ungu stúlku leik-
ur Marie Andergast, hin upprennandi
„stjarna“ sem svo mikla athygli hef-
ir vakið siðustu árin. Mótleikari
hennar er Wolfgang Liebeneiner.
Joe Stöckel leikur föður hans, hinn
bajerska útgerðarmann, en hinn
gamal-vinsæli Georg Alexander leik-
ur Ungverjann, föður Etelke, sem er
að fara á hausinn, vegna þess að
honuni er flest betur gefið en út-
gerðarmenska. — Budapester Sym-
poniorkester leikur víða í myndinni.
Frederick Rebell sigldi 6 metra
skemtibát alla leið frá Ástralíu til
Californíu án þess að hlekkjast á.
En á höfninni í Los Angeles slitn-
aði báturinn upp þar sem hann lá
fyrir akkerum, rak á land og brotn-
aði í spón.
Það er kvartað undan því hve mik-
ið ófrelsi menn eigi við að búa nú á
dögum, en það er ekki ný bóla, að
lög sjeu sett sem skerða persónulegt
frelsi einstaklinganna. Þannig voru
fyrirmæli um það í Róm um 200 ár-
um f. Kr. hve mörgum gestum fólk
mætti bjóða í veislur, hvaða lit
stúlkur mættu hafa á klæðum sínum
og hvað brúðkaup eða jarðarför mætti
kosta.
Sigurður Þórðarson frá Árdul
varð 75 áira 25. þ. m.
Frú Ólafía Magnúsdóttir, til
heimilis á Sauðárkróki, varð
60 ára 25. ágúst.
50 ára varð þ. 12. þ. m., frú
Ágústa Ebenesardóttir frá Egr-
arbaklca, nú búsett í Hafnargötu
9 Keflavik.
Svefninn sein maður fær fyrir mið-
nætti er langhollastur líkamanutn.
Slöckmann prófessor í Duisburg
hefir gjört fjölda athugana á nem-
enduin sínuin um „næringargildi"
svefns og komist að þeirri niður-
stöðu, að 4 tíma svefn, frá ltl. 8 til
miðnættis geri meira en jafngilda 0
tima svefni eftir miðnætti. Tauga-
sjúkdómar og' magaveiki hverfur oft
ef maður fer snemma að liátta.
Fyrir þremur þúsund árum fóru
úlfaldar frá Mesopotamíu nákvæm-
lega sömu leiðina til Palestinu og
Sýrlands, sem þeir fara enn þann
dag í dag. Járnbrautir og bifreiðar
hafa ekki ennþá gert „Skip eyði-
merkurinnar óþörf.
í Drekkið Egils-öl
Halldór Steinsson tæknir verð-
ur 65 ára 31. þ. m.
Guðmundur Jónsson, stórkaup-
maður verður 50 ára 1. sept.
næstkomandi.
Magnús Jörgensson, ökumaður,
Seljalandi við Reykjavik, verð-
ur sextugur laugardaginn 27.
ágúst.
Flestar af stærri borgum heimsins
liafa fyr eða síðar orðið fyrir tjóni,
svo miklu að nærri hefir stappað
fullri eyðingu. Oftast nær af völdum
elds. En það er segin saga, að þær
liafa jafnan risið fegurri upp úr
öskunni en þær voru áður. Tíu sinn-
um hefir pest geysað i Rómaborg og
tvisvar sinnum mátti heita að borg-
in gjöreyddist af eldi, en 6 sinnum
liefir hún orðið að gefast upp fyrir
umsát óvinaliers, vegna þess að
fólkið var farið að hrynja niður úr
hungri. París liefir veríð umsetin af
óvinum 8 sinnum — síðast 1870—71
— tíu sinnum hefi borgin þolað hall-
æri, tvisvar sinnum pestina og einu
sinni eyddist hún að miklu leyti af
eldi. Stambúl hefir brunnið 9 sinnuin
en fimm sinnum verið setið um liana.
------ NÝJA BIÓ. ----------
Gæfubörnio.
Bráðskemtileg þýsk kvikmynd
frá UFA. Aðalhlutverkin leika 4
lang frægustu og vinsælustu
leikarar Þjóðverja:
LILIAN HARVEY,
WILLI FRITSCH,
PAUL KEMP og
OSKAR SIMA.
Aukamynd:
FERÐALAG UM DANMÖRKU.
Hrífandi landslagsmynd tekin á
ferðalagi víðsvegar um Dan-
mörku.
Sýnd bráðlega!
Lillian Harvey og Willy Fritsch
eru aðalpersónúrnar í myndinni
„Gæfubörnin“ sem sýnd verður bráð-
um á Nýja GBíó. Af þeim nöfnum
má ráða, hvers efnis myndin sje —
hún er ein af þessu gáskafullu UFA-
myndum, sem oft verða vinsælar hjá
fólki hjer í höfuðstaðnum. Þessi
mynd stendur síst að baki þeim
myndum, sem hjer hafa sjest með
þessum persónum og ekki spillir það
til, að Paul Kemp leikur þarna all-
stórt hlutverk, sem vinur og hjálpar-
maður WiIIy Fritsch. Hitt er annað
mál, að , hjálparstarfsemi“ hans fer
allinjög í handaskolum á stundum,
og einna verst þegar mest liggur á.
Willy Fritsch leikur þarna blaða-
mann við ameríkanskt blað, „Morn-
ing Post“ og á að hlusta á rjettar-
höld yfir ungri stúlku, sem er kærð
fyrir flakk og betl. Hann er allsend-
is óvanur því að skrifa um þess-
konar, því að hann er ljóðskáld, en
hefir gert þetta fyrir bænastað vina
sinna á blaðinu. Rjettarhaldið fer
þannig, að Willy verður bálskotinn
í stúlkunni (Lillian Iiarvey) og gift-
ist henni í snatri til þess að forða
henni frá fangelsi, en gleymir alveg
að skrifa greinina um rjettarhöldin,
lianda blaðinu. Það er hinn rjetti
dómsmálafrjettamaður blaðsins, sem
fær skömmina fyrir þetta og fjelagar
lians tveir á blaðinu og eru þeir
reknir úr stöðu sinni fyrirvaralaust.
En nú segir af þeim nýgiftu lijón-
unum. Þau eru vitanlega bæði ger-
samlega auralaus og ekki geta hinir
burtreknu og atvinnulausu vinir
þeirra lijálpað þeim. Þeim tekst að
aura saman í seðil á veðreiðum og
vinna þar 1500 dollara en tapa þeim
aftur og þannig gengur koll af kolli
með öll þeirra fjáraflaplön. Yrði ot
lant að rekja þá sögu lijer.
Myndin er að öllu samanlögðu
bráðskemtileg, ekki síst Paul Kemp,
þessi góðlátlegi og sí-vandræðafulli
meinleysisgripur, sem maður verður
aldrei þreyttur á að sjá.