Fálkinn - 27.08.1938, Qupperneq 7
F Á L K I N N
7
■
> s s\\\ s \NS \\\\^S
HELEN WILLS MOODY
liinn frægi ameríkanski tennismeist-
ari er enn í fullu fjöri og tók nýlega
þátt í ensku kappmóti, í Wimbledon.
GEORG BRETAKONUNGUR
afhendir hinn dýrmæta enska knatt-
spyrnubikar formanni Preston-fje-
lagsins, Smith. Preston flokkurinn
vann úrslitasigurinn i Wimbledon
með einu marki gegn engu í viður-
eigninni við Huddersfield.
FRA SPANI.
Hjer á myndinni sjest einn af
mörgum hermönnum úr stjórnar-
hernum spánska, sem hefir tekist að
flýja norður yfir landamæri Frakk-
lands. Vottar liann gleði sína yfir
að vera sloppinn úr landi, með því
að kyssa landamerkjasteininn.
BRÓÐIR KONOYE FURSTA
forsætisráðherra Japana, er hljóm-
listarmaður og stjórnaði nýlega
hijómsveit í Berlin og þótti vel tak-
ast. Myndin er tekin við það tæki-
i'æri.
ÞETTA ER EKKI
Bjarni Björnsson að leika Jörund í
Skálholti, heldur Lauge Koch hinn
danski ljósmyndaðúr í Kaupmanna-
höfn áður en hann lagði af stað í
landaleit þá, sem hann fór í norður
í höf í vor.
MINNING FALLINNA í KÍNA.
Ung Kinverjastúlka heiðrar minn-
ingu fallinna hermanna með því að
ieggja blóm á minnisvarða þeirra
í Langfang í Norður-Kína.
ÞÝSK FASISTATÍSKA
Heimsókn Hitlers í Róm hefir liaft
áhrif á kventískuna í Þýskalandi.
Þýsku stúlkurnar eru farnar að nota
svona hatta, sem eru nákvæm eftir-
líking af fasistahúfunni.
ÞÝSK GANDREIÐ.
Þennan vagn er nú verið að reyna
á þýsku járnbrautunum. Hann er
með sætum fyrir 100 farþega, hefir
600' hesta dieselmótor og getur kom-
ist 195 kílómetra á klukkustund.
HAILE SELASSIE
er enn ekki af baki dottinn, þó að
Bretar og Frakkar hafi nú raun-
verulega viðurkent forræði ítala í
Abessiníu. Skaut liann máli sínu til
alþjóðasambandsfundar sem kom
saman 9. maí og fjekk vitanlega ekki
áheyrn þar heldur. Hjer sjest keisar-
inn í London ásamt Asfao Wossen,
elsta syni sínum.
ÚTLAGINN TROTSKI.
Það getur farið svo, að Trotski
verði bráðlega neitað um landvist í
Mexico. Olíunámamennirnir þar i
landi hafa krafist þess að1 hann
verði gerður útlægur. Hjer sjesl
Trotski vera að halda ræðu.
GULLBRUÐKAUP FORDS.
Maður heyrir s’jaldan talað um að
Ford sje kvæntur, en svo mun þó
vera, þvi að hann átti gullbrúðkaup
nýlega. Hjer sjást karl og kerling
á brúðkaupsdaginn.
SIGURSÚLAN FLUTT.
Vegna hinna miklu breytinga, sem
verið er að gera á gatnaskipun í
Berlin, verður að flytja hina frægu
„Siegessáule“ úr stað. Verður hún
flutt af Königsplatz og inn í miðjan
Tiergarten. Jafnframt verður stall-
urinn undir súlunni hækkaður.