Fálkinn - 27.08.1938, Side 11
F Á L Ií I N N
11
YNCSffV
U/CNMNtNIR
Lærið að hlaupa rjett.
Jeg efast ekki um, að mörg ykkar
iðkið hlaiiis, og að sumir ykkar
strákanna ætlið ykkur að verða
hlauparar, því að það er hæði
skemtilegt og holt að hlaupa. En
það eru ekki allir, sem hlaupa rjett.
Hjerna á myndinn sjáið þið bæði,
hvernig maður á að fara að hlaupa
rjetl og hvað maður á að forðast.
fyrir aftan markalinuna — fyrir alla
muni ekki fyrir framan!
Mynd 2. sýnir stetlingarnar þegar
orðið „Tilbúnir“! er sagt.. Líkams-
þunginn er látinn hvíla á handleggj-
unum og stellingarnar eru þannig,
að kroppurinn sje Iárjettur eða því
sem næst.
Mynd 1. sýnir í hvaða stelling-
um þið eigið að vera áður en hlaup-
ið byrjar og sagt er: Á rjettum stað!
Ofurlitlar holur eru grafnar í jörð-
ina, svo að þið hafið góða við-
spyrnu með báðum fótum. Holurn-
ar eru merktar með skákrossi. Og
fingurgómunum styðjið þið niður,
Mynd 3. sýnir þegar farið er af
stað. Þegar orðið „Hlaup!“ er sagt,
kastar maður sjer áfram með því að
spyrna báðum fótum snögt í um
leið og maður rjettir úr kroppnum.
Handleggjunum er sveiflað, til þess
að halda jafnvæginu og auka lirað-
ann. Maður spyrnir sjer af stað með
hægra fæti, sem er stigið á A og
sveiflar þeim vinstri á B. Mynd 4.
sýnir rjettan líkamsburð, stil, með-
an á hlaupinu stendur. Það er hlaup-
ið hátt á tánum og um að gera að
teygja vel úr aftari fætinum og lyfta
fremra linjenu hátt. Mynd 5: ldaupið
á að vera eftir nákvæmlega rjettri
línu og það á að hlaupa á táberg-
inu og rjetta fæturna beint fram.
Efst á mynd 5 sjáið þið teikningu
af rjettum fótaburði, en að neðan
er bæði fótaburðurinn, viðnámið og
stefnan rangt! Mynd 6. sýnir ljelegt
hlaupalag. Aftari fóturinn gengur of
langt aftur og er lyft of hátt og ekki
nógu vel teygt á kroppnum.
Þið skuluð nú athuga myndina vel
og reyna svo að temja ykkur rjett
hlaupalag. Þá verður hraðinn meiri
og áreynslan minni.
Þið takið þunnan pappa og teiknið
á hann viðeigandi munstur, t. d. eins
og á mynd 1. Leggið svo pappann á
púða og gatið munstrið eftir öllum
aðallínum með svo sem % centimetra
millibili. Svo saumið þið í, með mis-
litu ullargarni og látið svo lykkju
upp úr hverju gati. Þegar ísaumnum
er lokið klippið þið ofan af öllurri
lykkjunum, svo að ísaumurinn verð-
ur eins og flos (sjá III) og gólfdúk-
urinn er tilbúinn.
Gölfdtlkur f brúðustofuna.
Fanyar lamafólksíns,
framhaldssaga með myndum.
9. Kapítuli: Nú vercnar ástandið.
25. Þeir feðgarnir gátu ekki fundið
neitt úrræði til að hjargast úr þess-
um ógöngum og kom saman um að
fara að sofa, og vona, að með morg-
undeginum kæmu einhver bjargráð.
Þeir sofnuðu báðir vært og John
vaknaði ekki fyr en albjart var orð-
ið af degi. Hann vaknaði við, að ein-
hver var að þukla á honum. Það var
Tzo Lin. Hann var mjög tígulega
klæddur ennþá, en nú taut hann
John með mikilli virðingu. „Leyfið
mjer að heilsa hinum nýja drotn-
anda mínum,“ tautaði hann, „og leyf-
ið mjer að minna yður á, að það er
kominn tími tit að fara á fætur.
Itáðið bíður i dómþingssalnum og
það stendur til að taka mikilvæga
ákvörðun."
26. John fór að tygja sig. Hann sá
ekkert til föður síns en hugsaði sem
svo, að hann mundi enn vera sofandi
inni í herberginu við hliðina á svefn-
herbergi hans. Tzo Lin færði John
klæðnað, sem var af alveg sömu
gerð og sá, sem John hafði sjeð
gamla Lamann í daginn áður. Það
virtist enginn vafi vera á því lengur
að John liefði verið látinn taka við
lama-tigninni! Á leiðinni úr herberg-
inu inn í dómþingssalinn sagði Tzo
Lin John í stuttu máli frá því, sem
í vændum væri: Hættulegur glæpa-
maður hafði verið handsamaður þá
um nóttina og nú átti John að
'stjórna rjettinum, er samkvæmt lög-
um ríkisins mundi dæma manninn til
dauða! Það fór liryllingur um John
og hann vonaði, að hann gæti slopp-
ið við þetta ógeðfelda verk, með því
að afsaka sig með því, að tiann þekii
ekki landslögin.
27. Nú var John leiddur inn í
dómssalinn og voru þar fyrir urn
tuttugu alvarlegir og síðskeggjaðir
menn í munkakuflum úr skjanna-
hvítu efni. Þeir heilsuðu honum með
djúpum hneigingum og einhverju ó-
skiljanlegu tauti og komst hann við
af þessari kveðju, þvi að haiin fann,
að þessir gömtu menn trúðu á liann
og tignuðu hann. Undir eins og Jolin
hafði sest i forsetasætið í dómnum
komu tveir menn inn, vopnaðir spjól
um, með fangann á milli sin. Jolin
rak upp skelfingaróp og spratt upp.
Maðurinn sem stóð fyrir framan
hann, með hendurnar bundnar á bak
aftur og vopnaða menn á báðar
hendur, var enginn annar en — fað-
ir hans!
Hvað skeður nú....?
Túla frænka.
I GLERHUSI.
I Varsjá eru mestu nýtísku tal-
simaturnar i heimi. Þeir eru úr
gleri og alveg hljóðheldir, svo að
hávaðinn á götunni truflar ekki.
VEÐURATHUGANIR.
í Hurbanks í Californiu hafa ver-
ið gerðar tilraunir með að senda
lítil útvarpstæki upp í himingeim-
inn með loftbeígjum. Al' merkjum
sendaranna eiga veðurfræðingarnir
að geta fengið miklu gleggri fregnir
af veðrinu en þeir hafa liaft áður.
YNGSTI SONUR ItOOSEVELTS,
John Roosevelt og unnusta hans,
Anne Lindsey Clark, sjást hjer á
myndinni. Þau hjeldu brúðkaup sitt
nýlega.