Fálkinn - 29.10.1938, Qupperneq 7
F Á L K I N N
7
Þó að margl breytist oy nýjar að-
ferðir til skemtana komi fram á
hverju ári heldur hringekjan enn
fullu gildi. Hvar sem komið er á
markaðsstaði erlendis eða skemti-
deildir sýninganna eru hringekj-
urnar sú skemtun, sem aðsóknin
er mest að. Myndin er af skemti-
stað í Blackpool í Englandi.
Eftir langar og harðar deilur virð-
ist nú svo, að sættir sjeu komnar
á milli írlands og Englands, og de
Valera, sem fyrir rúmum 20 árum
var dæmdur til lífláts fyrir land-
ráið, er nú tíður gestur hjá stjórn-
arherrunum í London. Nú verður
írland forsetadæmi og enska land-
stjóraembættið sem var írum mest-
ur þyrnir í augum, hefir verið af-
numið. Mynclin hjer að neðan er
af hinum fyrsta forseta írlands, dr.
Douglas Hyde, sem orðinn er 78
ára. Á myndinni sjest dóttir hans
og börn hennar.
Myndin að ofan er af sýningu
danskra K. F. V. M.-skáta, sem
haldin var i Rosenborgargarði í
Kaupmannahöfn og tóku kvenskát-
ar víðsvegar úr landinu og frá Sví-
þjóð þátt í sýningunni. Flokkurinn
gengur hjá lngrid krónprinsessu.
sem sjest heilsa lengst til hægri á
myndinni. Hún er skáti.
Myndin til vinstri sýnir, hvernig
hljómleikahöllin á heimssýningunni
i New York á að líta úi. Er hún i
funkisstíl og afar lík útlits flug-
skálanum gamla í Vatnagörðum,
en líklega er hún prýðilegri en
hann innvortis. Byggingin kostar
hálfa aðra miljón króna.