Fálkinn - 27.01.1939, Page 7
F Á L K I N N
7
Það vakti allmikla athygli er for-
ingi franska lofthersins, Vnillemin
hershöfðingi var boðinn til Þýska-
lands og tekið þar með mikilli við-
höfn. Var þetta tekið sem tákn
samdráttar milli Frakka og Þjóð-
verja, eftir hatur það sem ríkt
hefir milli þjóðanna síðan á stríðs-
árunum. Myndin er tekin við her-
sýningu er haldin var við minnis-
merki hinna föllnu í heimsstyrj-
öldinni. Á miðri myndinni sjási
þýski flugforinginn Milch, Vuille-
min og franski hershöfðinginn /1 .v-
tier, sem var fylgdarmaður Vuille-
mins.
Myndin að neðan er háspennustöð
vísindastof'nunar hins heimsfræga
danska prófessors Bohr og getur
stöðin framleitt miljón volta
spennu. Neðst sjásl prófessorarnir
Bohr og v. Hevesy.
Það þótti tíðindum sæta er Char-
les Lindbergh flaug frá New York
til Parísar á 33 tímum. Nú hefir
fluginu fleygt svo fram, að það
þótti litlum tíðindum sæta, er fjór-
ir þýskir flugmenn flugu lengri leið
— frá New York til Berlínar á 20
tímum, á flugvjelinni Branden-
bnrg. Myndin að ofan sýnir þó að
einliverjir hafi orðið til að fagna
þeim. Flugmennirnir sjást fremst
á myndinni og er flugstjórinn, von
Moreau, lengst til hægri.
Ungverjar tjetu ekki á sjer standa
að „halda innreið sína“ í lönd þau,
er þeir fengu dæmd af Tjekkosló-
vakíu. Tók Hortliy ríkisstjóri þátt
í þeirri för og reið sjálfur í broddi
hersveita sinna. A myndinni t. v.
sjást ungar stúlkur í bænum Kom-
aron taka á möti hinum nýja þjóð-
höfðingja sínum.