Fálkinn - 07.07.1939, Qupperneq 15
F Á L K I N N
15
I
SIEMENS
PRnTHQ RAFMAGNS
rnu 1 Wo ELD AVJELAR
öll emaljeruð, einnig
steikarofninn að innan.
Með
HRAÐSUÐUPLÖTU
og
GLÖÐARRIST.
2000 — tvö þú&und —
vjelar þegar í notkun
á íslandi.
Breyting á símskeyta og
símtalagjöldum til útlanda.
Samkvæmt ákvörðun ríkissljórnarinnar hækka sím-
fkeytagjöld til útlanda frá og með 1. júli 1939 sem hjer
segir:
Belgía 76 aur. orðið Italía 92 aur. orðið
Danmörk 60 — — Noregur 71 — —
England 60 — — Pólland 98 — —
Finnland 94 — — Portúgai 99 — —
Frakkland 80 — — Rússland 129 — —
Færeyjar 36 — — Spánn 88 — —
Gibraltar 93 — — Sviss 87 — —
Holland 80 — — Svíþjóð 71 — —
írland (frír.) 67 — — Þýskalland 87 — —
Frá sama tima hækka einnig talsímagjöld. til útlanda
sem hjer segir:
Norðurlönd og Stóra Bretland kr. 33.00 fyrir 3 mín-
útna viðtalsbil.
Belgía, Frakkland og Holland kr. 47.25, Sviss kr.
61.50, Ítalía, Pólland, Portúgal og Spánn kr. 75.75,
Þýskaland 1. gjaldsvæði kr. 42.75, 3. gjalds:væði kr. 45.00,
6. gjaldsvæði kr. 51.30.
Póst- og BÍmamálastjórnin, 30. júní 1939.
ÞAÐ ER EINS MEÐ
HRAÐFERÐIR B. S. A.
og MORGUNBLAÐIÐ.
ALLA DAGA NEMA MÁNUDAGA.
Afgreiðsia í Reykjavík á
BIFREIÐASTÖÐ ISLANDS. — Sími 1540.
BIFREIÐASTÖÐ AKUREYRAR.
SUNDKNATTLEIKSMEISTARAMÓT
ÍSLANDS
var háð í sambandi við 50 ára aí'-
mælissundmót glímufjel. Ármann i
Sundhöllinni 24. mai. í mótinu tóku
þátt 3 sveitir, 2 frá sundfjelaginu Æg-
ir og 1 frá glímufjelaginu Ármann.
Úrslit urðu þau, að sveit Ármanns
sigraði og hlaut bikarinn og nafn-
bótina Sundknattleiksmeistarar ís-
londs, vann það A-lið Ægis nieð
2:1, en jafntefti varð við B-lið sama
fjelags. A-lið Ægis vann B-liðið með
4:2. 1 sveit Ármanns er talið fra
vinstri á myndinni: Sigurjón Guð-
jónsson, Stefán Jónsson, Þorsteinu
Hjálmarsson, Ögmundur Guðmunds-
son og Gisli Jónsson.
Kvikmyndasamtýningur.
Áður en Hitler „bjargaðk* Tjekko-
slovakíu, var eftirlitsmönnum kvik-
myndanna fyrirskipað, að banna
allar kvikmyndir, sem gætu „skaðað
lýðræðið i landinu eða beinlínis og
óbeinlinis gætu talist auglýsing fyrir
einræðisstjórnarfyrirkomulag." Það
þarf varla að taka það fram, að þetta
hefir nú verið felt úr gildi.
í Þýskalandi verður að senda all-
ar kvikmyndir til Göbbelsráðuneyt-
isins, áður en eftirlitsmennirnir fá
þær til skoðunar. Þar er alt klipt
úr þeim, sein kemur i bága við
kynstofnakenningar nasista og að
því loknu fá myndirnar einskonar
vottorð, sem heitir lipru, þýslui
nafni: Unbedenklichkeitsbescheinig-
ung.
í Póllandi er bannað að sýna
myndir um stjettabaráttu, fátækt
eða annað það, sem minnir á, að
ekki eru allir jafnir í þjóðfjeiag-
inu. Það er óneitanlega talsverð
takmörkun á myndaefni.
í Sovjet-Rússlandi eru 30.000 kvik-
myndahús, eða nærri því eins mörg
og i Vestur-Evrópu til samans. En
aðeins 8.000 þeirra hafa talmynda-
tæki.
í Papetee, höfuðstaðnum á Taliiti,
er kvikinyndahús, sem heitir Teatre
Moderne. Myndirnar, sem þar eru
sýndar, eru frá fimm til tuttugu ár-i
gamlar.
Á Nýja Sjáiandi var tekin ein
kvikmynd á síðasta ári. Hún var
sýnd einu sinni opinberlega, en
síðan var henni brent.
Barrymore barði konuna.
Hinn ágæti kvikmyndaleikari.
John Barrymore, er nýlega skilinn
við konuna sína. Tilefnið var l>að,
að hann barði hana til óbóta á leik-
sviðinu í viðurvist fjölda fólks. í
leiknum ijek frúin hlutverk sem
dóttir mannsins, sem Barrymore
ljek, og áttu þau að jagast samkvæmt
leikritinu. En áður en þau komu
inn á leiksviðið, hafði þeim lent i
sennu og þegar inn var komið, lagð*
hann liendur á hana og barði hana
betur en leikritið gaf tilefni til. Á-
horfendur dáðust að hinum eðlilega
leik, en frúin heimtaði skilnað.