Fálkinn


Fálkinn - 20.10.1939, Síða 4

Fálkinn - 20.10.1939, Síða 4
4 F Á L K I N N AKURLENDI m sem áður var SJOR Holland er láglent og sjórinn hefir rænt þjóðina miklu landi. En nú rænir þjóðin iandi frá sjónum. y UIDER ZEE eða Suður- ^ sjór í Hollandi, er feiknastór fjörður, er myndast liefir á þann hátt, að stórflóð úr Norðursjó brutust inn yfir lága fjörukampa og flæddu vfir lægsta land Evr- ópu. Öldum saman hafa Hollend- ar varið ærnu fje til þess að verj- ast ágangi hafsins, en þar var við ofurefli að etja. Síðan á 16. öld liafa verið uppi ráðagerðir um, að hlaða sjávargarð fyrir opið á Suðursjó, og þurka hann og um miðja síðustu öld var fjelags- skapur myndaður í þeim tilgangi, en lengi vel varð litið úr fram- kvæmdunum. Fjöldi áætlana kom fram um þelta verk, en engar þeirra náðu samþvkki. Peningar voru nægir fyrir liendi, en á hinu strandaði, að meim treystu ekki áætlunum verkfræð- inganna. Tæknin var ekki enn komin á það slig, að menn treyst- ust til að lilaða garða, sem stæði af sjer öldur hins opna hafs. En árið 1922 kom loks fram áætlun er menn treystu, um lok- un Suðursjávar og um þurkun hans og ræktun. Fyrsti þátlur verksins var auðvitað sá, að hlaða garð l'yrir fjarðarmynnið. Þar er allstaðar grunt, en þó reyndist fyrirhleðslan allmiklum erfiðleikum bundin. Afl flóðs og fjöru var mikið, en þó var það erfiðast er stormar komu af hafi og stórflóð gengu á landið og varnargarðana, sem verið var að steypa. Nú er þessi fló.ðgarður fullgerður fyrir nökkrum árum og er hið traustasta mannvirki, sem talið er að standast muni allar árásir 'Ægis, hversu jötun- efldar sem þær sjeu. Um sjálfa þurkun Suðursjávar liafa menn lengi verið ósammála. Sumir vildu þurka upp allan fjörðinn, en aðrir ekki nema tvo þriðju af honum. Sigruðu þeir siðarnefndu. En' liversvegna ekki að þurka upp allan fjörðinn, úr því að garðurinn var kominn? munu menn spyrja. Hafa Hollendingar ekki nóg að gera við alt það akurlendi, sem liægt er að vinna úr greiþum hafsins? Víst er það en þrjár veigamiklar ástæður eru þarna fyrir liendi. í fyrsta lagi þvkja engin tiltök að gera gott akurlendi úr þeim hluta Suð- ursjávar, sem kallaður er Yssel- meer, þvi að bolninn er svo fá- tækur þar af gróefnum. í öðru lagi getur það. verið mjög ]>ýð- ingarmikið, ef stríð ber að hönd- um, að geta látið sjóinn flæða Að ofan I. v.: fíörn að leika sjer i gömlu skipsflaki, sem fjarað hefir uppi i fjarðarbotniimm. — T. h.: Uppdrúttur, er sýnir landið, sem jmrkað hefir verið óp farið er að rækta. yfir alt Norður-Holland. ()g í þriðja lagi er það talið mikils- vert, að eiga þarna i firðinum stórt lón með ósöltu vatni, ef langvarandi þurkar kynnu að lcoma. Allur Suðursjór er um 660.000 hektarar, en nú verða 120.000 hektarar skildir eftir, sem ósalt stöðuvatn, en 240.000 verða að akri. Vilanlega gerist alt þetta ekki í einu vetfangi. Fjörðurinn er þurkaður upp smátt og smátt, en ])að sem fyrst var þurkað er nú komið í fulla rækt og það liefir komið á daginn, að landið er af- arfrjósamt og eftirsóknin eftir nýbýlum þarna á fjarðarbotnin- um er mjög mikil. Hjá búnaðar- ráðuneytinu hollenska liggja fyr- ir beiðnir um meira land, en hægt verður að þurka á næstu líu árum. Þetta nýja land verður ólíkt hinu gamla Hollandi, með öllum vindmyllunum, skurðunum og síkjunum, því að þarna er alt gert miklu hagfeldara en áður var og í samræmi við nýustu bú- vísindi. Hollendingar eru gömul búskaparþjóð en jafnframt mikil framfaraþjóð í húskap. Á nýbýl- unum er flest miðað við vjela- notkun og ameríkanskar fyrir- myndir óspart notaðar, til þess að geta rekið húskapinn með sem bestum arði. Ekki veitir af því að landið er dýrt. Hingað til hefir hollenska rik- ið varið vfir 12 miljónum króna Hollensldr bændur við viniui á hinum forna hafsbotni. Þeir nota fullkomnustu vjelar við ræktun og uppskeru.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.