Fálkinn


Fálkinn - 20.10.1939, Blaðsíða 8

Fálkinn - 20.10.1939, Blaðsíða 8
8 F Á L K I N N UilLLY BEHT5En: SKÝRINGp SEM TEKIN VAR GILD. J)AÐ var orðið áliðið, en Berg for- stjóri hafði ákveðið að fara gang- andi heim til sín, svo að hann fengi hreint ioft í lungun. Hann hafði átt svo annríkt upp á siðkastið, að taug- arnar voru ekki i sem bestu iagi — þessvegna hjelt hann sig hafa gott af útiloftinu. Klukkan var að ganga níu og það var dimt og fáment á ldið- argötunum á Friðriksbergi. Hann reyndi að ganga í hægðum sínum en tókst það ' ekki — hann uppgötvaði að hann skálmaði áfram, þegar hann fór fram úr manni, sein rjett áður hafði verið góðan spöl á undan honum. Hann snarstansaði. Hann heyrði liáan hvell, sem hann hjelt fyrst að væri sprunguhvellur frá hílhring, svo að hann fór að lilusta. Hann heyrði kallað á hjálp, en svo varð alt hljólt aftur. Berg leit kringum sig. Maðurinn, sem nú var spölkorn fyrir aftan hann sneri alt í einu við og hljóp á burt eins og fætur toguðu. Þá kom Berg auga á opin glugga í húsi til hægri og þar var tjós. Þetta var tvílyft hús, sjerbygt. Þaðan hlaut neyðar- ópið að hafa komið. Berg hljóp þangað. Dyrnar að neðri hæðinni voru opnar, hann fór inn og var að vörmu spori kominn inn i stofuna með opna glugganum. Framundan honum var stór bil- liard og hjá honum lá maður, sem hjelt á billiardtein í annari hend- inni. Á grænum dúknum á borðinu iá skammbyssa og rauk enn úr hlaupinu —• og við borðbrúnina studdist ung stúlka. Hún var falleg, og þó að stund og staður væri eig- inlega ekki til slíkra hugleiðinga, varð Berg undir eins fyrir áhrifum frá henni. Þegar hann kom inn sneri hún sjer að honum og hrópaði: „Hann er dauður. Hann hlýtur að hafa verið myrtur!“ Berg var órótt. Tilhugsunin um að eiga að afhenda lögreglunni þessa ungu stúlku, var honum ógeðfcld. Bara að hann hefði ekki farið að álpast þarna inn. „Hvað á jeg að gera?“ sagði hún. „Verið þjer bara rólegar, jeg skai liringja á lögregluna.“ „Lögregluna!“ Það var eins og orðið hefði einskonar töframátt. „Jeg hefi ekki drepið liann. Jeg sver yður, að jeg er saklaus- Þjer megið ekki afhenda mig lögreglunni.“ Berg var í verstu klípu. Stúlkan var ljómandi falleg og víst ekki nema um tvítugt. En hann ætlaði að gera skyldu sina, hann varð að kalla á lögregluaðstoð. „Þjer ldjótið að skilja,“ sagði hann og gekk að litla borðinu þar sem siminn stóð, en hætti við að hringja þegar hann sá að hún náfölnaði. „Þjer megið ekki láta líða yfir yður. Nú skal jeg reyna að ná i vatn lianda yður.“ Hann fann fljót- lega eldlnisið og kalda vatnið virt- ist hressa stúlkuna. Hún talaði ró- legar en áður. „Lofið mjer að fara áður en það er orðið of seint. Jeg liefi ekki gert það. Þjer skuluð 'fá nafn mitt. og heimilisfang." Hún tók nafnspjald upp úr töskunni sinni. „Svo skal jeg segja yður alla söguna siðar, og þá munuð þjer skilja mig.“ Berg forstjóri var maður, sem bar virðingu fyrir lögunum, og jafnvel þó hann sárvorkendi stúlkunni, varð hann að gera skyldu sína. Hvað svo sem skeð hafði, varð lögreglan að rannsaka málið. Hann hafði aðeins eina skyldu: að kalla á lögregluna. Hann leit af henni til þess að forð- ast að sjá framan í hana, því að hann þoldi varla að sjá augnaráð hennar, en flýtti sjer að símanum. En þegar liann hafði borið heyrn- artólið að eyranu og lieyrði suðuna, fann hann að tekið var laust í hand- legginn á honum. „Jeg vil heldur deyja ....“ „Takið þjer þessu nú skynsamlega," sagði Berg og slepti heyrnartólinu aftur. „Þó að jeg hefði fulla samúð með yður, þá hljótið þjer að skilja, að .... „En lofið þjer mjer að fara, því að nærvist mín liefir enga þýðingu. Ilún getur aðeins orðið til þess, að gera miska þeim, sem enga lilutdeild eiga í þessu móli.“ „Sje svo að þjer sjeuð ekkert við við þetta riðin — hvað eruð þjer I)á að gera hjer?“ Hún svaraði rólega. „Jeg skal segja yður það seinna. En nú lofið þjer mjer að fara?“ í sama bili heyrðist fótatak fyrir utan. „Nú er það of seint,“ hvíslaði Berg, „en jeg skal hjálpa yður.“ Fyrst starði hún á liann skelfingu lostin, en svo var eins og framkoma lians gerði liana rólegri, og að hún treysti honum. Berg forstjóri tók sírnann og hringdi til lögreglunnar. Hann sagði í stuttu máli frá því, sem gerst hafði, og bað uin hjálp. t sama bili opnaðist hurðin og lít- i 11, skorpinn karl, með hvast nef stakk hausnum innfyrir. Hann var i baðslopp og hárhýjungurinn ógreidd- ur. „Hvað hefir skeð hjer?“ spurði hann svo lágt að varla heyrðist. „Var ekki skotið hjerna?“ Berg leit illilega til mannsins, seni inn kom. Hann hafði komið á versta tíma. Þessvegna svaraði hann stuttur í spuna: „Hver eruð þjer?“ „Jeg heiti Andersen, bókhaldari, og á heima hjer uppi á loftinu. Jeg heyrði skotið rjett áðan.“ „Hversvegna komuð þjer þá ekki undir eins?‘ „Jeg var í baði, herra . . . .“ ----- Berg.“ „Og svo var jeg dálitla stund að hleypa mjer í nærfötin. En livað hefir komið fyrir herra Torp?“ Litli bókhaldarinn fjekk ekkert svar. Berg langaði ekkert til að ræða málið við hann. Lögreglan mundi koma eftir augnablik og hann varð að hjálpa stúlkunni. Hann varð að leika á lögregluna og á þann hátt flæklist liann inn i mál, sem enginn vissi hvernig hann kynni að sleppa úr aftur. Lögreglan gæti máske eins vel grunað hann um að hafa myrt manninn. En nú hafði hann tekið ákvörðun og svo var honum nauðug- ur einn kostur að taka afleiðingun- unum. „Verið þjer bara róleg,“ sagði liann við ungu stúlkuna. „Lögreglan kem- ur fljótt, svo að við komumst heim innan skamms. Við verðum aðeins að gefa skýrslu um, hvernig það at- vikaðist að við erum hjerna, að við gengum hjer hjá, heyrðuin skotið og neyðarópin og fundum svo manninn skotinn hjerna. Honum vanst rjett að sjá þakk- lælið í augum stúlkunnar, áður en lögreglan kom inn. Það voru Bremer og Hansen, lög- reglufulltrúar. Bremer fór þegar að athuga umhverfið en Hansen sneri sjer að fólkinu, sem var statt þarna inni. Hann sneri sjer fyrst að Berg forstjóra og spurði: „Hver eruð þjer?“ „Berg forstjóri." „Og ungfrúin?“ Berg hikaði sem snöggvast en svo sagði hann: „Það er unnustan mín, ungfrú Sydow. Og þessi maður,“ lijelt hann áfram og benti á gamla mann- inn, sem auðsjáanlega skalf, sumpart eftir baðið og sumpart vegna þess hvernig á stóð, „er Andersen bókari, sem á heima hjerna uppi á loftinu." „Hefir nokkuð verið hreyft hjer í stofunni síðan þið komuð inn?“ spurði Bremer lögreglufulltrúi. „Jeg fór fram í eldhús til að sækja vatnsglasið, sem stendur þarna á borðinu, en annars hefi jeg ekkert hreyft, síst af öllu dauða manninn og skotvopnið. Skammbyssan liggur þarna á billiardborðinu." „Og hvaða samband höfðuð þjer við myrta manninn?" „Ekkert. Við gengum hjerna lijá, unnustan mín og jeg. Þá heyrðum við skot og svo neyðaróp, og þegar við konnnn hjerna inn, um dyrnar — sem stóðu opnar — sáum við þessa sjón/ „Getið þjer sagt hvað klukkan var þegar ])jer heyrðuð skotið?“ „Já, hana hefir vantað tíu mínút- ur i níu.“ „Sáuð þjer engan fara út úr hús- inu þegar þjer komuð?“ „Nei, alls ekki.“ I þessu mintist Berg mannsins, sem hann hafði gengið fram hjá um sama leyti og hann heyrði skotið. En það var ekki rjett að minnast á þetta við lögreglumánninn. Það gat verið hættulegt, því að maðurinn hefði borið, að Berg hefði verið einn, en ekki með stúlku. Lögreglumaðurinn yfirheyrði nú stúlkuna og var framburður hennar alveg samhljóða því, sem Berg hafði sagt. Loks voru þau bæði látin færa sönnur á riöfn sin, og unga stúlkan rjetti frain samskonar nafnspjald og lúin hafði gefið Berg. Svo var Andersen bókari yfirlieyrð- ur og hann bar, að meðan hann var að baða sig, hefði hann heyrt skot. Hann hafði verið dálitla stund að komast úr baðinu og ofan stigann og hann lýsti því, sem fyrir augun hafði borið, þegar hann kom inn. Bjett áður en hann kom inn úr dyr- unum, hafði hann heyrt að Berg var að tala við lögregluna í síman- um. Tímanum, sem hann taldi að skotið hefði heyrst á, bar saman við það, sem Berg hafði sagt. Nú kom Bremer lögreglufulltrúi til þeirra. Hann hafði lokið við að scmja skýrslu sína um húsakynnin. Það virtist vafalaust að þarna hafði verið framið morð. Maðurinn liafði verið drepinn með skamm- byssuskoti í vinstra gagnauga og skotið hafði komið úr svo mikilli fjarlægð, að sjálfsmorð gat ekki komið til greina. „Eftir dálitla stund koma sjerfræð-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.