Fálkinn


Fálkinn - 20.10.1939, Blaðsíða 10

Fálkinn - 20.10.1939, Blaðsíða 10
10 F Á L K I N N Nr. 570. Gjöf skal gjaldast, ef vinátta á að haldast. S k p í 11 u p. — Er þetta lýsi mí alveg glænýtt? —• Ilaldið þjer að við slátram hval í hvert skifti, sem við sjáum yður komu til að kaupa lýsi fyrir 25 aura? Ræða fyrir minni kvenna: Maður nokkur talaði fyrir minni kvenna og gerði það vel. En þegar hann var að enda við ræðuna, kom liann auga á nokkrar kvenmyndir á veggnum og bætti við: — Eiginlega eru allar þessar mál- uðu fegurðargyðjur á veggjunum ó- þarfar þegar við sjáum hversu marg- ar sitja við borðið hjerna. Tveir innbrotsþjófar voru að leita að fjemæti í stofunum og varð ððr- um þeirra á, að velta smáborði í ó- gáti. — Hver er þarna niðri? heyrðist þegar kallað ofan af loftinu. — Mjá, mjá! sagði innbrotsþjófur- inn, sem var fljótur að átta sig. Fáeinum mínútum síðar varð hin- um innbrotsþjófnum á, að gera ein- livern hávaða. Og aftur heyrðist rödd ofan af loftinu: -— Hvað er þetta? — Það er bara annar köttur til, \ar svarað. Ritdómur: — Þó er ein blaðsíðan góð í bókinni og það er sú síðasta. Hún er auð. — Ilaldið þjer bara áfram, Han- sen. Jeg hlusta. Fuglahræðan. Unnustan hans Mons hafði sett honum stefnumót í garðinum hjá sjer, inni á milli kirsiberjatrjánna, klukkan tvö um daginn. Loksins kom hún klukkan átta um kvöldið og og Mons var orðinn óþolinmóður ag sagði: Hversvegna hefirðu látið mig standa hjerna i sex tima, í steikj- andi sólskini, og þrestirnir gargandi alt í kringum mig? — Það var einmitt vegna þrast- anna. Þeir sækja svo í kirsiberin núna. Gilsfjörð fór í heimsókn til lengda- forelda sinna lilvonandi og hitli tengdapabba í dyrunum, all þung- búin n. Jeg verð að segja þjer það áður en þú ferð inn, að jeg er orðinn gjaldþrota. Jeg hefi mist aleiguna — á ekkert eftir. Hörmung er að heyra þetta, sagði Gilsfjörð. — Svei mjer ef jeg tími, að taka hana dóttur þína, þegar svona stendur á. Það er best að þú hafir hana — þá hefirðu þó altaf eitthvað. YNd/W U/SNbURHIft ÆHnltri í SMHarleyíi. (Framhaldssaga með myndum). 16. Pjetur Söfren sagði drengjun- um nú, að þar sem trúðavagninn stæði, befði ferleg ófreskja átt heima forðum daga. Og binumegin við stóra vatnið var heiðinn blótstaður. Síðan komu munkar í landið og boð- uðu kristni. Þeir kristnuðu heið- ingjana og steyptu skurðgoðum þeirra af stalli og reistu kirkju, þar sem hof þeirra hafði verið. 17. En ófreskjan, sem átti heima þarna i hólnum, reiddist er hún heyrði klukknahringingarnar. Og svo tók hún ógurlega stóran stein og kaslaði honum yfir vatnið, og ætlaði að mölva kirkjuna. En steinn- inn kom niður rjett utan við kirkju- garðsvegginn, og þar liggur hann inn í dag. 18. En ekki gátu munkarnir samt rekið ófreskjuna af höndum sjer. Hún breytti sjer í ógurlegt sæ- skrýmsli — einskonar Miðgarðs- orm og steypti sjer í vatnið. „Og þar er þetta kvikindi enn,“ sagði Pjetur Söfren, en af því að það mátti lesa það út úr svipnum á strákunum, að þeir trúðu ekki meira ei' svo því, sem liann sagði, bætti hann við: „Jeg hefi sjálfur sjeð þetta skrýmsli koma upp á vatnsborðið HJÓLBÖRUR, sem ykkur geta komið að gagni til ýmsra þarfa, getið þið hægíega búið ykkur til sjálf úr nokkrum kassa- ftölum, og framhjóli af gömlu reið- jóli. (Takið eftir málunum á teikn- ingunni. Þau eru í sentimetrum, eins og vant er). Botninn, a, er negldur á gaflana, L og c. Hliðafjalirnar, d, eru síðan negldar utan á, og okarnir tveir, e, negldir að framan og aftan i botn- inn, þannig að naglarnir úr þeim, gangi upp í gaflana. — Gamalt hjól af reiðhjóli — það gerir minna til hvort það er með lofthring dða ekki er fest á sívalan járnhút eða rör, sem verður hjóláSinn, þannig að ás- inn geti ekki snúist i hjólinu. Hann á að snúast í tveimur legum, sem jiið fe;tið framan á börurnar (við h). Má Inia þær til úr runnu, flötu járni. Utan á legurnar setjið jiið svo slífu úr járnbút, sinn hvoru meginn, svo að'hjólásinn gangi ekki til hliða. Þið nemið af hliðarfjölunum, silt hvoru meginn, svo þær verði eins og sýnt er á teikningunni. HVER GETUR ÞAÐ? Spurðu einhvern kunningja þinn, hvort hann geti hnýtt hnút á segl- garnsspotta, án þess að sleppa af honuni endunum. Mig mundi furða á því, ef hann gæli það, en nú skal jeg segja þjer, hvernig á að fara að því. Krosslegðu hendurnar, eins og sýnt er á teikn- ingunni, og taktu sinni hendi í hvorn enda spottans. Svo rjettir þú út hendurnar, og l)á kemur hnút- urinn á spottann um leið. og ausa með halanum, sem að vatn- ið freyddi eins og i þvottabala."

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.