Fálkinn - 20.10.1939, Blaðsíða 14
14
F Á L K 1 N N
Sigurður Guðmundsson, skrif-
stofustj. hjá Eimskip, lngólfs-
stnvti 8, verður 60 árci 22. þ. m.
Geirþrúður Kristjánsdóttir frá
Sandi, verður 50 ára 26. þ. m.
Skúli Einarsson, Akureyri, varð
75 ára 17. þ. m.
STÆRSTA FYRIRTÆKI
AKUREYRAR. Frh. af bts. 3.
sambandi við hina frækilegu aflraun,
sem Norðlendingar liafa unniS með
Laxárvirkjuninni. Stóra myndin sýn-
ir skarðið, sem Laxá myndar í hraun-
hálsinum ofan við' Brúarfossa. Sjest
þar í skarðinu sjáif aflstöðin, sem
ekki þarf að bæta við, þó að orku-
magn versins sje tvöfaldað eða meira.
Til hægri á þessari mynd sjest neðsti
hlutinn af aðleiðslupípunni, sem gerð
er úr timbri, járngirt, eins og pípur
Elliðaárstöðvarinnar. Á annari litlu
myndinni sjest opið á þessari sömu
trjepípu, þegar verið er að setja
hana saman. Loks sjest á síðustu
myndinni Suhr Henriksen verkfræð-
innur, sem annast hefir framkvæmd
verksins fyrir hönd Höjgaard &
Sehultz.
'
•íáti'•
iliii
'■ ;l| ÍÍÍ * ft i SmmlÆÉMámm 'I - hl —r 1 - . 1
■kJBbL fsöP • 'ZxS w jsm
KONGUR HJÁ KVENSKÁTUM.
Danskir kvenskátar hjeldu nýlega
20 ára afmæli sitt í Hörhaven við
Aarhus, höfðu þar tjaldbúðir og æf-
ingar. Ingrid krónprinsessa tók þátt
í þessu afmæli, en svo kom annar
gestur alveg á óvænt og það var
Ivristján konungur. Dvaldi hann á
Marselisborg, skamt frá Aarlius, og
kom ríðandi til skátatjaldbúðanna
afmælismorguninn. Og vitanlega
fylktu stúlkurnar liði og tóku virðu-
lega og skipulega á móti konungin-
um. Á myndinni sjest konungurinn
ríða í hvítum einkennisbúningi fyr-
ir framan skátafylkinguna, en á eft-
ir honum koma smærri fylkingar og
í baksýn eru tjaldbúðirnar. Kven-
skátum hefir fjölgað afarmikið i
Danmörku síðustu árin.
UNDRALÆKNIRINN DAUÐUR.
Fyrir nokkrum árum gaus uþþ su
fregn, að maður einn suður í Gail-
spach, smábæ í Austurríki, læknaði
fiesta sjúkdóma, sem áður þóttu o-
læknandi. Hjet maður þessi Michae)
Valentin Zeileis. Streymdi fólk að úr
öllum áttum til þess að fá bót meina
sinna hjá þessum undralækni, og
kvað svo mikið að gestakomunni,
að þarna í þorpinu risu upp gisti-
hús, til þess að hýsa sjúklingana, en
þeir skiftu jafnan hundruðum og
stundum þúsundum. Gallspach varð
einskonar Lourdes.
En fyrst er ait frægast og núna
síðustu árin hefir sjaldan verið get-
ið um undralæknirinn í Gallspach i
blöðunum. Þó hefir hann jafnan
stundað lækningar og margir jtykj-
ast .hafa fengið bót meina sinna hjá
honum.
Nú minnast blöðin á Zeileis aftur.
Hann dó nefnilega fyrir skömrnu.
Yið tilraunir sem hann var að gera
með meðul og geislalækningar hafði
liann fengið stór sár á hörundið og
jtað dró hann til bana.
Kvikmyndari á frímerkjum.
Einn af vinsælustu mönnum í
Bandarikjunum á síðustu áratugum,
var kvikmyndaleikarinn og flugmað-
urinn Will Rogers. Hann græddi of
fjár, bæði á kvikmyndaleik og út-
varpi og fjölleikhúsum, en gaf jafn-
harðan. Og jafnan þegar stórslys
báru að höndum var hann fyrstur
manna til þess að gangast fyrir sam-
skotum og halda skemtanir fyrir
ættingja fráfallinna manna. Sjálfur
fórst hann vofeiflega — hann fórst
á flugi i Alaska ásamt hinum heims-
fræga eineygða flugmanni Wiley
Post, sem flogið hafði kringum jörð-
ina á skemmri tíma en nokkur annar
r.iaður. Og þá varð þjóðarsorg í
Bandaríkjunum. — Nú hefir verið
gefið út frímerki með mynd Wills
Rogers, fyrsta frímerkið sem gefið
hefir verið út með mynd af kvik-
myndaleikara. En ekki eru það
Bandaríkin sem hafa gefið það
út heldur smáríki í Nicaragua. Will
Rogers var ennþá vinsælli þar en í
Bandaríkjunum, því að þegar jarð-
skjálftarnir miku urðu í Managua,
sem er höfuðborg Nicaragua, fór
Rogers þangað sjálfur og stjórnaði
björgunarstarfinu með annálsverð-
um dugnaði og gaf stórfje til sam-
skota handa þeim, er fyrir mestu
tjóninu urðu.
Fálkinn
er fjölbreyttasta blaðíð.
MODEL-FLUGVJELAR.
frá átta þjóðum tóku nýlega ])átt í
samkepni, sem haldin var á Great
West-flugvellinum i Middlesex, um
gullbikar, sem Pjetur Jugoslavakon-
ungur bafði gefið til verðlauna. Hjer
sjest Hollendingurinn vera að kasta
sinni vjel til flugs.
Guðjón Knútsson, skipstjóri
Lindarg. M, verður 70 ára 26.
þ. m.