Fálkinn


Fálkinn - 08.12.1939, Blaðsíða 2

Fálkinn - 08.12.1939, Blaðsíða 2
2 F Á L K 1 N N GAMLA BIO Mikill er fjöldi þeirra bóka, sem ril- aðar hafa verið um síðustu lieiin- styrjöld 1914—18. En líklega eru fá- ar þeirra, sem farið hafa aðra eins sigurför um heiminn og hækur þýska skáldsins Erich Maria Remarque’s. Fer jiar saman skýr og lifandi frá- sögn og listrænn still. Flestir Islend- ingar munu kannast við Remarque af bókum iians, sem þýddar hafa ver ið á islensku: .Tiðindalaust á Vestur- vígstöðvunum1 og ,Vjer hjeldum heim’. En Remarque liefir ritað fleira en þær, m. a. skáldsöguna „Kammerater“, sem að vísu er ekki stríðsbók, en öllu heldur eftir-stríðssaga. Hafa sjálf- sagt fjöldamargir lijer lesið þessa hrifandi skáldsögu á dönsku eða ein- liverju öðru tungumáli. Nú hefir Metro-Goldvvin-Mayer gert mynd af þessari sögu Remarque’s. — Sýnir Gamla Bíó myndina bráðum og heitir lnin „Vinirnir" á íslensku. Það er mjög eftirtektarvert, að eigi eru færri en fjórir heimsfrægir kvik- myndaleikarar í aðalhlutverkunum, nfl. þau Robert Taylor, sem leikur EUen Lonkamp, Margaret Sullivan, sem fer með' hlutverk Patriciu Holl- mann, ástmeyjar Lohkamps, Fran- cliot Tone leikur Otto Köster, og Ro- bert Young leikur Gottfried Lenz. Þetta leikendaval sýnir, að vandað er til myndarinnar. Hjer mun ekki verða rakið efni myndarinnar, enda munu mjög marg- ir kannast við söguna. Allir hljóta að hrífast af aðalpersónunum: fjelögun- um þremur, Lolikamp, Köster og Lenz, sem alt eru menn, sem stríðið hefir þjakað, eyðilagt að meira eða minna leyti. Samheldni þeirra og vinátta er svo fórnfús og fölskvalaus, að öllum lilýtur að hlýna um lijartarætur við að kynnast þeim. Óskipta samúð allra hlýtur og hin sjúka, en indæla stúlka, Patricia, sem lífið hefir leikið svo grátt. Ef þjer viljið sjá góða mynd, sem skírskotar til djúpra og hreinna lil- finninga, til viðkvæmni og samúðar, þá skuluð þjer ekki sleppa þessari inynd fram hjá yður. /VfW/VlVM' Valdemar Hamen, framkv.stj. Hrefnug. 3, verður 50 ára 9. þ.m. NYJA BIO Næsta blað verður Jólablað Fálkans 1933 % m 9 &/A Jálablaðið verður að þessu sinni bæði stærra, vaiul- aðra og fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr. 1 því verður tl efni við allra hæfi, aragrúi mynda, sumar þeirra lit- prentaðar. Helstu atriði innihaldsins eru þessi: £ Jólahugleiðing eftir biskupinn, herra Sigurgeir Sig- urðsson, Jól á Ungverjasljettu, eftir Aage Blomberg, með mörgum myndum. Saga, er nefnist Jólastrandið eftir Chr. fíogö. Stór mynd af nýju listaverki eftir Einar Jónsson. Löng grein með fjölda mynda um hitaveituna *|| í Reykjavík. Jól í Leningrad eftir Lindemann. Sani Briggs saga efti'- Duncan. Uppi á mæni Noregs, ferða sögubrot með fjölda mynda eftir Sk. Sk. Grein um Ur, borg Abrahams, með myndum. Fjalla-Finnar flvtja, grein. Grein um Jólasiði á 16. öld. Jólablað barnanna með lit- prentuðum myndum, Litli og Stóri, Jólakrossgáta. Um Þingvallamynd Sigurðar málara. Á gufuskipi til Gríms- eyjar fyrir 43 árum eflir Oscar Clausen. Jólasaga eftir Huldu. Sæfá/kinn eftir Örnulf Ree. Kvennasíða. Grein um Ole Bull eftir Theodór Áraason, og margt, margt fleira, sem alla fýsir að lesa. Athygli skal vakin á því, að Jólablöð Fálkans undanfar- in ár, hafa algerlega selst upp, og er því vissara að tryRg'ja sjer þetta sjerstaklega vandaða Jólablað í tíma. a 1 j»'£. % tS ir % 'is'' M nt % sp p. m & Nýkomið Brjásthöld - belti - karsdet - dreglar og beltisíeygjur - tekið upp 1 dag. BIúndustDÍug TuII í brjdsthöld AV. Það sem á að saumast fyrir iól, pantist sem allra fyrst. Lífstykkjabúðin Hafnarsiræti 11 — 5ími 447Z MIKIL LEIKNI. Þýskur leikfimismaður sýnir hjer leikni sína með því, að standa á liöndunum á tveimur kylfum. Það leika fáir eftir. VEGNA BENSfNLEYSIS. Brúðhjón ein i Rómaborg gátu ekki fcngið bifreið vegna bensínskorts i Ítalíu. Þessvegna notuðu þau tví- menningsreiðhjól. Ungar stúikur þurfa eigi síður en ungir karlmenn að hugsa um að „koma sjer áfram“, sem kailað er. En það þýðir eins og kunnugt er: efna- legl sjálfstæði, metorð og velgengni. En slikl finst mörgum ungum stúlk ■ um best tryggt með því að eignast mann, sem er sæmilega vel loðinn um lófana, helst vellríkur. Hitt er annað mál, að ástin gerir stundum óþarfa strik í reikning, fer sinar göt- ur og gengur á snið við ríka manns- efnið og kastar sjer e. I. v. um háls- inn á einhverjum blá-skínandi snauð- um piltungi. Og það má einmitt sjá ástina leggja slíka lykkju á leið sína i myndinni, sem Nýja Bíó ætlar bráð- lc-ga að sýna. En hún heitir „Fávis- ar meyjar“, tekin af Fox. í upphafi sjáum við þrjár ungar meyjar, systurnar, Pamelu, Liz og Mo Charlers, þær eiga hænsnabú í Kans- as og svo er ein frænka þeirra svo þægileg við þær, að hún arfleiðir þær að 5000 dollurum. Mörgum kann nú að þykja það bærilegur stofn fyrir þrjár ungmeyjar að eiga bæði hæsna- hú og svo 5000 dollara.En þær Pam- ela, Liz og Mo Chartes eru stórhuga og vilja meira. Og þetta „meira“ er — ríkur eiginmaður. Þær ákveða að verja arfinum til þess að ná í þennan ríka mann. Vogun vinnur og vogun taparl En það getur verið dýrt að umgangast hin ríku mannsefni, hvað þá að krækja í þá! Þær systur haga þvi sókninni svo, að ein þeirra á að þykjast vera vellrík heimasæta, það skal vera Pamela, Liz á að leika að- stoðarstúlku hjá henni, en Mo að vera herbergisþerna. Fritt föruneyti! Svo leggja ungu systurnar þrjár af stað eins og meyjarnar í æfiritýrunum þegar þær lögðú leið sína i kóngs- garð. En þessar þrjár beina för sinni lil Californíu í þeim erindum að hitta miljónamæringa og krækja i þá. Hvernig tekst sú veiðiför? Lesendur verða að veita sjer svarið sjálfir og geta það með því að fylgja ungu meyjunum fávísu á hvíta ljereftinu í Nýja Bió. — í aðalhlutverkin er vel valið, Pamclu leikur Loretta Young, cn Van Smith, elskhuga hennar, leikur Joel McCrea. — Hver er þetla, sem gengtir þarna? — Það er Pettersen konsúll. Það var hann, sem konan hljóp frá með gjaldkeranum hans. — Hvernig tók hann því? — Hann er farinn að jafna sig núna. En fyrst í stað gat hann ekki ráðið við sig af kæti. — Er nokkur i yðar fjölskyldu giftur? — Já, konan mín.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.