Fálkinn - 08.12.1939, Side 11
FÁLKINN
II
SANTA LUCIA
i.
Fyrir rjc.ttum tveimur árum vor jeg
staddur á Liselund skólanum í Dan-
rnörku. Áður en gengið var til náða
að kvöldi þess 12. desember, var
það tilkynt, að liginn, góður gestur
kæmi í heimsókn snennna morgun-
inn eftir, og að allir, yngri sem eldri.
yrðu að fara á fætur til að fagna
honum. Annars var ekkert gefið upp
um það, hver hann væri, og ef spurt
var um það, urðu svörin ógreið. —
I’að var eins og nauðsynlegt væri.
að skólafólkið tifði í fullkominni ó-
vissu um það, hver gesturinn væri.
hað segir sig sjálft, að margir
gengu mjög eftirvæntingarfullir til
hvílu þetta kvöld, og án efa hcfii
það liaft svefn af sunnim. Klukkan
sex um morguninn liringdi skóla-
bjallan í ákafa, og nú varð hreinasta
kapphlaup um það að komast sem
fyrst í fötin. Eftir fáar mínútur voru
allir komnir niður í ganginn og
andlit margra voru hálft eða heilt
spurningarmerki. Hvað var eiginlega
a seiði?
Nú var öllum boðið til sætis í
ar.nari skólastofunni, sem var upp-
Ijómuð. Borð voru „dekt“, og á
þeim stóð löng röð af kaffibollum
og kökudiskum. Það var greinilegt
„tilhald" í vændum.
I.oksins fór það að kvisast, hver
væri á ferðinni — Sancta Lucia. Hver
var Sancta Lucia?
Þarna stóð maður augliti til aug-
litis við hana.
Hún kom syngjandi og brósandi
inn í dyrnar á skótastofunni með
þrem i för með sjer. Góði gestur-
inn var kominn. — Hún var í snjó-
hvítum klæðum. Um höfuð sjer hafði
hún fagran sveig, og var komið fyrir
i honum logandi kertum, er báru
mikla birtu. Þernan var og hvit-
klædd og hafði einnig sinn kertn-
sveig, en hann var allur svipminni
en sveigurinn hennar Sancta Luciu,
eins og vera bar.
Sancta Lucia og þernan gengu
fram og aftur um stofuna með söng
og gestirnir glöddus við birtuna og
siinginn. — Þær vor að boða ná-
lægð jólanna, frið þeirra og fögnuð.
Sancta Lucia lijelt á bakka með
kaffikönnu á og gekk meðfram borð-
unum og helti í kaffibollana, og
þtrnan á eftir með kökudiskinn i
hendi. — Það var unaðsleg stund
í skólastofunni á Liselund meðan
Sancta Lucia dvaldi þar. Það hafði
ekki verið ofsagt, að tiginn og góð-
ur gestur væri á ferðinni, þar sem
hún var.
II.
— Víða í katólskum löndum er
13. desember — Sancta Lucia-dagur-
inn — haldinn hátíðlegur. Þessi sið-
ur hefir náð fótfestu hjer á Norður-
löndum, einkum í Svíþjóð'. í Dan-
mörku þekkist hann ekki, og að
hann var haldinn liátiðlegur i Lise-
lund stóð í sambandi við það að
kona skólastjórans, frú Amelie Doel,
er sænsk.
Sancta Lucia-dagurinn er haldinn
•til minningar um dýrlinginn, Luciu
hina heilögu, er helgisögnin segir, að
uppi liafi verið um 300 e. Kr.
Sagt er að hún hafi verið frá Sikil-
cy og hafi liðið pislarvættisdauða i
Sýrakúsa árið 304 e. kr.
Lucia var af mjög tignum kristn-
um ættum og erfði mikið fé eftir
föður sinn. Það gaf hún alt fátæk-
um í trú á það, að móðir hennar
niundi batna, er þjáð var af slæmum
sjúkdómi. Hún var trúlofuð, er þetta
gerðist, og er sagt að unnusti henn-
ar, sem var heiðinn, liafi orðið svo
reiður fyrir þessa fjársóun hennar,
að hann liafi ákært liana sem kristna
fyrir yfirvöldunum. Yfirvöldin skip-
uðu að liegna henni með því, að
setja hana í vændiskvennaliús, en
þegar hún neitaði ao hlýða því harða
boði, var viðarkesti komið fyrir i
kringum hana, oliu helt á, og kveikt
i. En þegar eldurinn grandaði henni
ekki, var hún.lögð í gegn með sverði.
III.
Nafnið Lucia er álitið að dregið
sje af latneska orðinu lux, þ. e. Ijós.
Og út frá því liefir myndast önnui'
sögn um hana.
Samkvæmt þeirri sögn var Sancta
Lucia nunna. Hún var augnfögur,
svo að af bar, og fyrir því feldi
þjóðhöfðingi einn brennandi ást til
hennar. Reif Lucia þá úr sér augun
og sendi lionum þau i fati. Hafði
þetta svo mikil álirif á hann, að
hann snerist til kristinnar trúar. —
Fyrir hænrækni sína og trúarhita
fjekk lnin augun samt aftur. — í
sambandi við þessa sögn er það
sennilega tilkomið, hve augnveikt
fólk hafði mikinn átrúnað á Sancta
Lucia.
Sancta Lucia-hátíðiin er hátíð lirein-
lcika, ljóss og birtip og varpar Ijóma
sínum inn í svörtustu skammdegis-
skuggana. Og lagið Sancta Lucia,
sem allmargir Islendingar kannast
við er fnlt fegurðar og tilbeiðslu.
Sigurjón Guðjónsson.
er miðstöð verðbrjafavið-
skiftanna.
Sjúklingurinn: — Hvernig haldið
þjer að þetta fari, Jæknir?
Læknirinn: — Það er þrent, sem
gengur að yður. Einn sjúkdómur-
inn — þetta i lungunum, er bann-
vænn, en hitt hugsa jeg að mjer tak-
ist að lækna.
fSpgp
SIMON BOLIVAR FERST.
Hollenska farþegaskipið „Simon
Bolivar“ fórst nýlega í Ermasundi.
Það rakst á tundurdufl ekki aðeins
einu sinni, heldur tvisvar, hvert dufl-
ið á fætur öðru. 86 mahns fórust.
Það voru sannarlega síðustu forvöð
að taka myndina, eftir örfáar mín-
útur var „Simon Bolivar“ ekki ofan-
sjávar. Nokkur skip voru viðstödd,
flugvjelin yfir skipinu er ensk.
§
SIEMENS
PROTOS BRAUÐRIST
KRÓMHÚÐUÐ.
Borðprýði. — Steikt brauð
— herramannsmatur. —
Tilvalin tækifærisgjöf.
Fæst hjá
R AFTÆK J ASÖLUM.
Svaf í þrjá mánuði
— blundaði í hálfan.
Læknarnir á liáskólaspitalanum í
Dorpat hafa verið að glíma við ein-
stakt tilfelli af svefnsýki. Það var í
fyrra, að átján ára gömul stúlka
sofnaði og svaf í þrjá mánuði sam-
fleytt. Varð að dæla ofan i hana
næringu, svo að hún veslaðist ekki
upp af hungri. Þegar hún vaknaði
eftir jicnnan langa svefn tók hún
svo fljótum bata, að læknarnir hjeldu,
að hún væri sloppin. En nú er hún
farin að sofa aftur. Fyrst blundaði
hún í fjórtán daga og er sofnuð
löngum svefni á ný.