Fálkinn - 30.08.1940, Síða 14
14
F Á L K I N N
Norður í æfintýralönd ....
Frh. af bls. .5.
liaukhvössuni sjónum yfir haf-
flötinn, en árangurslaust. Við
liöldum fyrir Horn og inn á
Húnaflóa. Blíðveðrið helst stöð-
ugt, en síldin felur sig í djúpinu,
þrátt fyrir allar óskir og bænir,
sem stíga upp frá islenska fiski-
flotanum, sem nú sveimar fyrir
ströndum Norðurlandsins.
„Huginn“ leitar lengra og
lengra norður og austur, óra-
veg út i hafsauga, fram fyrir all-
an flotann. Svo færir hann sig
aftur upp undir landið.
Dagarnir hafa liðið tilbreyting-
arlaust, en ánægjulega. Blátt eða
sólglitað haf svo langt, sem aug-
að eygir, — endalaus þögul víð-
átta, sem færir frið i sál manns.
Engar búksorgir, —- engar á-
hvggjur frá degi til dags. Hið
liðna verður fjarlægur klukkna-
hljómur, — dimmur deyjandi
ómur, en framtiðin óráðið æfin-
týri.
Og þó að jeg viti, að hugur
annara skipverja er órórri, —
liugur þeirra, sem eiga afkomu
sína og sinna, næsta ár, undir
síldveiðinni þetta sumar, — þá
ber enginn það utan á sjer. Um
alt skipið hljómar glaðværð og
gáski. — Brosandi, veðurbarin
andlit mæta manni alstaðar. Það
er eins og allir kinki kolli liver
framan í annan og segi: „O,
þetta lagast .... og mikil er
l)lessuð blíðan.“
Svo er það einn síðari hluta
dags, þegar fyrstu bláskuggarn-
ir eru að vefja sig um fjalla-
hringinn, að við erum staddir
norður undir Grímsey. —
Þarna vaggar hún sjer fram-
undan á dimmbláum haffletin-
um, eins og risavaxinn, dökkur
töfrafugl. Áköf löngun gripur
mig til að heimsækja fornar
slóðir mínar þar. Jeg færi þetta
í tal við skipstjórann, sem tekur
elskulega undir mál mitt. Og
augnabliki síðar ristir Huginn á
fullu stími í dökka sjávarsljetl-
una áleiðis til hinnar nyrstu ís-
lensku bygðar.
Svo rennum við upp á víkina,
sem var aðal-lendingarstaður
eyjarinnar. Þar er nú verið
að byggja hafskipabryggju.
.Teg stend á þilfarinu og horfi á
dökkgræn túnin, sem breiða sig
eftir öllum bökkunum að vest-
anverðu. Kvöldrökkrið er að fær-
ast yfir þau. Umhverfis litlu
húsaþyrpinguna niður í Víkinni,
hafa skuggarnir þegar hreiðrað
um sig og fyrir ofan túnin og
bæjaröðina teygja gulgrænar
hæðarnar sig upp í blárökkrið.
— En yfir vikinni og umhverfis
skipið okkar sveima máfar og
kríur og ritur í flokkum og loft-
ið hrannast af friðlausu gargi
þeirra ....
— Stundu síðar stend jeg i
fjörunni og heilsa nokkrum
fornkunningjum. — Þá fæ jeg
að vita, að það fellur ferð frá
HAAG-ÐÓMSTÓLLINN.
Ekkerl hefir mannkynið líklega
þráð heitar en það, að eilífur frið-
ur gæti haldist. Og márgir hafa ver-
ið svo bjartsýnir, að halda að stund-
in væri komin; -þegar síðasta stríðs-
vitfirring var liðin hjá, hjeldu þeir,
að nú gæti það ekki átt sjer stað
framar, að mannkynið yrði svo ó-
viturt að steypa sjer að nýju út i
óskapaæði styrjaldanna. En altaf
hafa ný jel riðið yfir. Aldrei virðast
þjóðirnar ætla að vitkast, hvað því
viðvíkur, og altaf er hægl að finna
nýjar ástæður fyrir því að heyja
stríð. — Eftir síðustu heimsstyrjöld
hafa þeir sennilega verið margir,
sem trúðu því statt og stöðugt, að
nú myndi sigur friðarins í heimin-
um trygður um ókomnar aldir. Og
satt er það, að aldrei hefir eins mik-
ið verið gert lil þess að tryggja frið
þjóða milli, og i biii varð nokkur
árangur af því starfi. Margar og
miklar vonir voru tengdar við Þjóða-
bandalagið, en svo fór, að það reynd-
ist blekking ein, að það væri þess
umkomið að fyrirbyggja ófrið til
lengdar, eins og nú svo áþreifan-
lega er komið á daginn. Sama er að
segja um dómstólinn í Haag. Þó voru
ýmsar smærri millilandadeilur út-
lcljáðar á friðsamlegan hátt fyrir
þeim dómstóli. Má l. d. minna á
deilu Dana og Norðmanna um Aust-
ur-Grænland, enda var þar um frið-
samar menningarþjóðir að ræða.
Myndin lijer að ofan er af Haag-
dómstóinum að starfi. — Eru það
fimmtán dómarar, og sá, sem situr
í miðju, er Ameríkumaðurinn Kell-
ogg, sem margir munu kannast við.
eynni til Akureyrar eftir næsta
sólarhring.
Jeg ákveð þvi að kveðja lijer
„Hugin“ og fjelagana, sem jeg
hefi eignast þar.......
„Að heilsast og kveðjast,
það er lifsins saga“.
En það er angurværð i liug
minum, þegar jeg kveð. Og
jeg geng hljóður við lilið minna
fornu fjelaga upp úr víkinni.
— -— Og þó finn jeg einhvern
fögnuð streyma um mig eins og
ávalt, þegar jeg stig á land í
þessari ey, sem svo margar
vorbjartar endurminningar eru
bundnar við. —
.Teg hefi veifað til skipsfjelag-
anna og við höfum ákveðið að
hittast á Siglufirði síðar um sum-
arið. En þetta átti þó að ske fyr.
Því að þegar jeg vaknaði næsta
morgun og flýtti injer út i sól-
skinið, sá jeg hvar „Huginn“
vaggaði sjer enn á víkinni og
neðan úr fjörunni komu nokkrir
glaðværir náungar „frá borði“ á
móti mjer. Yið áttum eftir að
dvelja saman einn sólskinsdag í
Grimsey.
En það er önnur saga.
Steindór Sigurðsson.
Egils ávaxtadrykkir
/ hergagnaverksmiðjum stríðslandanna cr nú unnið dag
og nóli, og hefir framleiðslan margfaldast síðustu mán-
uði. Myndin sýnir nokkrar loftvarnahyssur, sem verið
er að Ijúka við.