Fálkinn - 01.11.1940, Side 10
10
F Á L K I N N
VNft/W
U/£NMIRMIR
Einfalt eimskip.
Það er ekki svo mikill vandi að
smiða þetta gufuskip. Hjer er að-
ferðin.
Myndina I á að teikna á þunnan
pappa í þeirri stœrð, sem bátmrinn
á að vera. Það er hæfilegt, að hann
sje 20 sentimetrar á lengd. Teikn-
ingin er svo skorin úr með beittum
hníf, þar sem punktalínurnar eru
er aðeins gerð rák i pappann svo
að hann bogni undir linuna. Og svo
er báturinn límdur s'aman um sam-
skeytin með sterku lími. Þegar límið
er orðið þurt má lita bátinn með lit-
blýöntum og að því loknu er borið
á liann fernis eða shelllakk til að
gera hann vatnsheldan. Meðan liann
er að þorna, er hægt að taka til að
smíða í hann vjelina. Þið fáið ykk-
ur hænuegg og sjúgið úr því eftir
að hafa borað göt á báða enda. Síð-
an límið þið hálft eggjaskurn i botn
bátsins. Þegar heila eggið er tæmt
leggið þið skurnið i vatn til að skola
það. Nú eru búnar til tvær þóftur
úr vír, sem festar eru milli borð-
stokkanna. Svo leggið þið eggið ofan
á þær. Síðan er búinn til dálítill
reykháfur úr pappa og er hann limd-
ur á eggið eins og sýnt er á mynd-
inni. Þá er gufubáturinn tilbúinn.
Eggið er nú hálffylt af vatni. Dýfið
svo bómullarlagði í suðuspritt og
setjið hann undir eggskurnið í kjal-
soginu. Setjið síðan heila skurnið
á sinn stað og kveikið í bómullar-
lagðinum, eftir að hafa sett tapp-
ann í sprittflöskuna og farið með
hana frá. Eftir stutta stund sýður
vatnið i egginu og gufan streymir
út um litlu holuna að aftan og knýr
bátinn áfram. Holunni að framan
verður að loka með lakki.
Heimilislaus. Þau sofa á gólfinu í skólastofu í London.
Kúlur óvinanna hafa lagt heimili þeirra í rústir, og sjálf
hafa þau mörg sloppið nauðulega lífs af.
Nr. 417. Adamson fglgir söginni fast eftir.
S k r í 11 u r.
— J-a! Mjer finst nú þessi gœs
vera heldur mögur
Nauðungartóhakið í stríðinu —
og krcppunni.
Sjóveiki.
„Æ-i, heyrðu, háseti, hvernig
kemst jeg i káetu nr. 41 án þess að
fara fram hjá borðsalnum?“
„Jeg sje aldrei viðskiftamenn í
versluninni hjá yður. Á hverju lifið
þjer eiginlega?"
„Það er verslunarleyndarmál.“
Jæja, þá förum við á fætur og
gerum tiu luijábeygingar!
Sölubörn komið
og seljið FÁLKANN.