Fálkinn - 11.04.1941, Síða 2
2
F Á L K I N N
- GAMLA BÍÓ -
GOSI
heitir hún myndin hans Walt Dis-
ney, teiknimyndarhöfu.ularins heims-
fræga, sem eftir aö hafa skemt tug-
um miljóna meö „Mickey Mouse“ og
fjölda smærri mynda, rjeðst í það
að búa til heilkvöldsmynd um „Mjall-
livit og dvergana sjö“. Besti rithöf-
undur Dana, Jóhannes V. Jensen,
gerði sjer ferð til Walt Disney sið-
ast er hann fór til Ameríku og sá
þá „Mjallhvít" í smíðum. Og í pistl-
um, sem liann skrifaði í dönsk blöð
er hann kom heim, ljet hann svo
ummælt, að af öllum skáldskap, sem
hann hafði kynst í Bandaríkjunum í
ferð sinni, væri enginn stórfenglegri
en Mjallhvítarmynd Walt Disney.
Nú er hjer í uppsiglingu á Gamla
Bió næsta heilkvöldsmyndin, sem
Walt Disney gerði á eftir „Mjallhvit“.
Hún heitir Pinnochio og hefir verið
skirð Gosi á íslensku, eins og sagan,
sem myndin er gerð eftir og kom út
hjer fyrir nokurum árum. Saga jjessi
er eftir Italann Carlo Lorenzini, sem
skrifaði undir nafninu C. Collodi,
kom hún út á ítölsku fyrir 00 árum,
en enskumælandi þjóoir kyntust
lienni ekki fyr en um aldamótin.
Varð hún brátt ein visælasta barna-
bókin, sem völ var á, að sínu leyti
eins og Mjallhvit, og þvi ekki nema
eðlilegt, að Walt Disney veldi hana
til að beita hugkvæmni sinni á.
Gos>i er í raun og veru svolitill
dauður strákur — úr trje, sem Gep-
petto gamli trjeskeri hefir tálgað,
eins og svo margt annað fallegt. Og
honum líst svo vel á þennan smíðis-
grip sinn, að hann óskar þess, að
hann væri orðinn lifandi. Bláklædd
álfamær kemur inn i stofuna þegar
Geppetto er sofnaður og hlæs lií-
andi anda í Gosa. En þarna er við-
staddur annar ofurlítill peyi, sem
Jimini Cricket heitir og hann gerir
álfamærin að einskonar uppeldisföð-
ur Gosa. Þeir Gosi og Jimini eru því
einskonar andlegir tvíburar. Myndin
hefst með því, að Jimini situr uppi
á bókastafla og er að syngja vísu,
en byrjar svo að segja söguna af sjer
og Gosa og öllum þeim æfintýrum,
sem þeir rata í. Þarna kemur hver
persónan annari fáránlegri við sögu
og allskonar skepnur og ófreskjur,
því að engin takmörk eru því sett,
hvað Walt Disney getur upphugsað
og teiknarahópur hans fest á papp-
írinn.
Mynd þessi er tekin af RKO Radio
Picture og er öll með litum (Tecni-
color). Það eru alveg undursátnleg
litbrigði, sem tekist hefir að fram-
Ieiða í þessari mynd. Hún er í einu
orði saat galdraverk.
Kristleifur Þorsteinsson, fræða-
þulur, að Stórakroppi, varð 80
ára 5. þ. m.
Altaf,
- en þó sjerstaklega
á hátíðum og tylli-
dögum, þurfa menn á
Hárvötnum,
Ilmvötnum og
Bökunardropum
að halda.
Vjer framleiðlum þessar v3rur úr rjettum efnum með rjettu verði.
Fá§t í öllum versluiiiiiu.
Afengisverslun ríkisins
TJOLD
af öllum stærðum.
fyrirliggjandi
veiðarfæraverslun
- Fálklnu er be§ta lieimilisblaðið. -
Nú handprjóna inæðurnar
fötin á litlu börnin sín, en
þær nota eingöngu Gefj-
unargarn, af því þær vita
af reynslunni, að það
tryggir best heilsu barn-
anna.
Notið eingöngu Gefjunar-
garn í allan prjónafatnað.
Or meira en 100 mismun-
andi litasamsetningum að
velja. —-
Munið
GEFJUNAR-prjónagarn.
VERKSMIÐJUÚTSALAN
Gefjiin - Iðunn
Aðalstræti.
- NÝJA BÍÓ -
SWANEE RIVER.
Þetta er mynd um Stephen Forster,
draumlynda tónskáldið, sem heillað-
ist svo af söngvum svertingjanna í
suðurríkjum Ameríku, að hann ein-
setti sjer að færa þá í aðgengilegan
búning og gera þá almennings eign.
Honum tókst það svo vel, að jjrátt
fyrir svertingjahatrið í Ameríku
urðu þessir söngvar Forsters —
„Negro Ministrels" sem kallaðir eru,
ekki aðeins með vinsælustu söngvum
allra Bandaríkjamanna heldur liafa
þeir einnig farið sigurför um mestan
hluta Evrópu, ekki sist Fngland, og
hafa náð þar litlu minni vinsældum
en þjóðlögin ensku, írsku og skotsku.
Þetta er verk Forsters, að varðveita
þessi ljúfu og listrænu lög svertingja
frá gleymsku. Jafnvel lijer úti á ís-
landi hafa þessi lög Jengi átt vin-
sældum að fagna, svo sem „My old
Kentucky Home“, „Ó, Súsanna“ og
„Swanee River“ eða „Old Folks at
Home“.
En sjálfur naut Forster ekki ávaxl-
anna af f>essu mikilsverða starfi
sínu. Hann var ógæfumaður í orðs-
ins fylsta skilningi og barðist jafn-
an við fjeleysi og raunir. Myndin er
æfisaga hans og segir frá ástum hans
og suðurríkjastúlkunnar Jane Mc-
Dowell frá Louisville i Kentucky, en
það var hún, sem stappaði i liann
stálinu. Hann var ráðleysingi mikill
og varð ekkert úr tónsmiðum sínum
— þá fyrstu seldi hann fyrir 15
dollara kórstjóranum E. P. Christy,
sem gerði lagið frægt og græddi
stórfje á því. En þegar Forster reyndi
að seija músíkforlögum verk sín þá
fjekk hann þau jafnan endursend. Svo
skall þrælastríðið á, og þá bakaði
Forster, sem var norðurríkjamaður,
sjer óvild þar nyðra með því að tón-
setja svertingjalög. Varð þetta til
að loka lionum öil sund um langt
skeið, og draga hann niður í skítinn.
Hann sigraði ekki fyr en á bana-
stundinni, er lagið „Swanee River“
kom fyrir almennings eyru.
Leikarinn Don Ameche fer með
hlutverk Forsters í myndinni og
fylgir hjer mynd af honum í liiul-
verkinu. En mótleikari hans, Jane,
er Andrea Leeds. A1 Jolson, hinn
frægi söngmyndafrömuður leikur
Christy kórstjóra, en kórsöngvararnir
eru sungnir af hinu ágæta kóri Hall
Johnsons. Hinir ágætu söngvar njóta
sín prýðilega í myndinni, og leikur-
inn er ógleymanlegur. Myndin segir
í rauninni merkan þátt úr sögu
Bandaríkjanna, og sjerstaklega má
ráða öllu söngelsku fólki tii að sjá
hana. Hún er tekin af Fox Film og
verður sýnd á 2. dag páska.