Fálkinn - 11.04.1941, Side 7
F Á L K I N N
7
I I
Timburs þarf líka við í hernaði. Verkfræðingadeildirnar í Englandi hafa sög-
unarmyllur og taka við timbrinu ósöguðu en láta myllurnar rista það l borð-
við, gaddavírsstaura, planka og annað, sem þurfa þykir. Þarna er verið að gera
gaddavírsstaura úr trjágreinum, „einhversstaðar í Englandi".
Á hverri enskri loftvarnastöð er flokkur manna, sem hefir það sjerstaka hlut-
verk með höndum, að slölckva eld. Hafa þessir menn bjargað fjölda mannslífa,
meðal annars Þjóðverja, sem hrapað hafa til jarðar í brennandi flugvjelum.
Þessir slökkviliðsmenn eru í asbestfötum og geta því komið nærri brunanum.
Hjer á myndinni sjest einn þeirra vera að sprauta slökkvivölwa á brennandi
flugvjel.
Efst: Flugmenn úr enska flotanum eru æfðir í að
þekkja óvinflugpjelar, eftir eftirlíkingum, sem
sveima neðan í loftvarnlabelgjum, og hitta þær
með Ijósmyndavjelum. — Næstefst: Ensk flota-
skytta skoðar eina loftvarnabyssuna, sem fylgdi
tundurspillunum, er Bandaríkjamenn seldu Eng-
lendingum. — Neðst: Ástralskir hermenn, sem hafa
farið hálfa leið kringum jörðina til þess að berjast
með Bretum. Hjer eru þeir að æfa sig í meðferð
loftvarnabyssa.