Fálkinn - 02.05.1941, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
Nú hafa Þjóðverjar tekið af Bretum mest af því landi, sem þeir unnu í Líbyu. En
þessar myndir eru af bresku sókninni. Efst t. v.: Hjer sjást Brenbyssuvagnar,
sem notaðir voru í sókninni. Næst efsl: Og hjer eru byssur, sem notaðar eru til
þess að skjóta á skriðdreka óvinanna. Reyndust þeir ágætlega í Libyu. — Neðsta
myndin erfrá Grikklandi og sýnir grískt fólk umkringja enska stríðsvagna, til þess
að bjóða þá velkomna. — T. h efst: Enskt lið, vopnað sem fótgöngulið, en
hefir mótorhjól til að geta komist hratt yfir. Næst-
efst: Bretar missa mikið af skipum, en mikið er
bygt í staðinn. Hefir aldrei verið unnið eins ó-
sleitilega á skipasmíðastöðvum Breta og nú. Hjer
er skip að hlaupa af stokkunum. Neðst: Enskir
hermenn með þýsk tundurdufl, sem rekið hefir í
land í Englandi. Sjerstök deild frá flotanum R.M.S.
(Rendering Mines Safe) hefir með höndum, að
gera tundurdufl þessi óskaðleg.