Fálkinn


Fálkinn - 25.06.1943, Qupperneq 14

Fálkinn - 25.06.1943, Qupperneq 14
14 FÁLKINN Martin Agrosky: Hvernig við gerum innrás í Evrópn Martin Agronsky hefir verið /rjetta- maður National Broadcasting Com pany. Hann hefir sent frjett frá vígstöðvunum í Evrópu, Miðjarðar hafslöndum, Singapoore og Ástralíu. Hjer lýsir hann þyí í stuttu máli, hvernig hann hugsar sjer innrásina. ETTA er áriS sem lítur innrás bandamanna í Evrópu — upp- hafið að endalokum Hitlers. — Hið mikla vigi, sem möndulveldin hafa bygt í Evrópu er ekki óvinnandi. og inn í þetta vi,gi eru svo mörg hlið, að jafnvcl ekki sameinaðir herir Hitlers, Mussolini og fylgihnatta þeirra geta gætt þeirra, ef á þau verður reynt samtímis. Hernaðarlistin, sem ríður mönd- ulveldunum að fullu eru ekki einar nýjar vígstöðvar, heldur ef til vill fimm eða tíu nýjar vígstöðvar á allri strandlengju Evrópu. Af því sem jeg hefi sjeð á ýmsum vigstöðvum í undanfarin þrjú ár, hefi jeg myndað mjer þá skoðun, að sigur bandamanna í Evrópu bygg- ist á þeim forsendum, að ekki sje ein leið notuð til innrásar, heldur margar leiðir samtímis. (Greinarhöf. visar til uppdráttar er fylgir grein hans, en sem ekki er hægt að birta lijer, og eru þar sýnd- ar helstu innrásarleiðirnar. Eru þær þessar: — Frá Skotlandi i Noreg norðan Þrándheims. Frá Suður- og Austur-Englands til Brest, Cherbourg, Le Havre, Dieppe, Dunkirk og Hol- lands. — Frá Alsir og Tunis til Mar- seille, Genua, Neapel og Sikileyjar, — Frá Egyplalandi til Saloniki. Og loks frá Rússlandi vestur á bóginn. Eina leiðin, sem hann telur að Hitler ■ gæti notað til útrásar gegn vestur- veldunum, er suður Spán og til Mar- okko og gæti hann þá komist að baki bandamönnum í Afríku. Og svo heldur hann áfram): Með innrásinni suður yfir Ermar- sund hittir innrásarherinn alla helstu staði frá Brest til Hollands. Þar verða fyrir honum 12—-15 nazista- hersveitir, gráar fyrir vígvjelum og í hljei af öllum þeim ramgerðu virkj- um, sem Goebbels hefir gortað svo mikið af og sagt vera 725 mílna löng, og að okkar áliti eru á 25 til 70 mílna breiðu belti. — En hins- vegar njótum við þeirra hlunninda að aðdráttarleiðirnar eru stuttar og að hið risavaxna enska fluglið er nærri. Manntjónið í slikri innrás mundi verða ógurlegt, en sigur ekki óhugsandi. Meðan þessi innrásaher væri að ráðast suður yfir Ermarsund gæti annar innrásarher ráðist á hina lítt vörðu strönd Norður-Noregs. Það mundi binda þúsundir af nazista- hermönnum. Jafnframt gætu tveir stórir herir gert innrás frá Afriku yfir Miðjarð- arhaf og komið sjer fyrir á vígstöðv- um gegn hinum lingerðari möndul- hermönnum í Suður-Evrópu. Markmið innrásarhersins mundi i vestanverðu Miðjarðarhafi verða i fyrsta lagi Marseille, sem frá fornu fari hefir verið noluð sem hlið að Rhone-dalnum og iðnaðarhjeruðum Mið-Frakklands. í öðru lagi Sardinía og Corsica, viðkomustaðirnir á leið- inni til Genua, Milano og iðnhjerað- anna í Norður-Ítalíu; í þriðja lagi Neapel, sem er brennidepill vestur- strandarinnar, og í fjórða lagi Sikil- ey, suðurvörður Mussolini. Frá stöðvum i Egyptalandi yrði gerð þriðja árás hinna sameinuðu herja Breta og Bandarikjanna. Yrði fyrst ráðist á vigi nazista á Krít með flugliði, notaðar sömu aðferðir og Þjóðverjar þegar þeir náðu eyjunni á sitt vald. Minna lið — þvi nær eingöngu sjóliðar — gætu gert hinar illa vörðu Tylftareyjar ítala undan Litlu-Asiu- ströndum, óvirkar. En aðalhernum mundi verða stefnt til Saloniki, en austur: til Búlgaríu, þar sem komið yrði að baki nazistum; til norðurs um Vardar-skarð, hina sögufrægu herleið norður til Jugoslavíu og inn í hjartað á Mið-Evrópuriki Hitlers: Dónárdalinn. Við þessar innrásir bandamanna úr suðri og norðri mundi svo bæt- ast sókn Rússa úr austri, á allri víg- linunni. Úr öllum þessum innrásarliring kringum möndulveldin hlytu að myndast að minsta lcosti einar víg- stöðvar, þar sem bandamenn lifðu betur. Og minnast skyldu menn þess, að á þeim vigstöðvum mundi mynd- ast annar bandamannaher; her liinna hefnandi og hungruðu borgara hinna kúguðu þjóða. Þessi áætlun kann að virðast ósennileg. En innrásin i Norður- Afriku mundi einnig hafa þótt ó- sennileg áður en hún var gerð, í nóvember, þegar heimurinn frjetti um flota bandamanna i höfnunum í Marokko og Alsir. 17. JÚNÍ. Frh. af bls. 3 Síðan hófst mótið á íþróttavellin- um með þvi að Ben. G. Waage, for- seti Í.S.Í. flutti skörulega ræðu. Þá fór fram íþróttasýning stúlkna úr Ármanni, undir stjórn Jóns Þor- steinssonar og pilta úr K.R. undir setjórn Jens Magnússonar. — En næst var hundrað metra hlaup. í því varð hlutskarpastur Finnbjörn Þorvalclsison (Í.R.) á 11,4 selc. — í langstökki sigraði Oliver Steinn (F. H.) og stökk 6.39 m. —. í liástökki Skúli Gnffmundsson (K.R.); hann stökk 1.80 m. — 1 kringlukasti Jens Mofjnússon (K.R.) 33,38 m. — 1 kúluvarpi Jóel Kr. Sigurffson (f.R.) 13,47. Og i 80 metra hlaupi kvenna Iíekla Árnadóttir (Á.) 11,4 sek. Egils ávaxtadrykkir Skotanum dettur margt skrítið i hug, til dæmis manninum, sem kom heim klukkan fjögur að nóttu til og konan spurði: „Hvar hefirðu verið?“ Hann svaraði: „Það getur verið að jeg hafi verið í brúðkaupi, líka get- ur verið að jeg hafi verið í jarðar- för, en hvort heldur var, þá er svo mikið víst, að gaman var það!“ Bókaíregn. Booth Tarkington: KELI (PENROD) Spegilsútgáfan, 1943 Bootli Tarkinglon hefir um langt skeið þótt einn allra skemtilegasli höfundurinn i hópi amerískra nú- tímaskálda, og vinsældir hans eru eigi hvað síst að þakka sögum þeim, er hann skrifaði um Penrod og ævin- týr hans. Eigi munu neinar þessara sagna hafa komið út á islensku fyr en nú, að Bókaútgáfa Spegilsins. sem gaf út „Snabba“ enska skáldsins Wodehouse í vetur, hefir gefið út Penrod i islenskri þýðingu, og heitir söguhetjan þar Keli. Er það strákl- ingur í barnaskóla vestur í Banda- ríkjunum, næmur fyrir öllum utan- aðkomandi áhrifum og aldrei af baki dottinn, en reynir altaf að klóra i bakkann þangað til hann lendir í vanda og bjargar sjer úr þrengingun- um — oftast með skreytni. Er lýsingin á Kela og brögðum hans reist á djúpri sálfræðilegri þekkingu og góðum skilningi á hugs- unarhætti barnsins, svo að þó að ekki væri öðrum kostum sögunnar til að dreifa þá væri mikill fengur að bókinni. En þó mun lesandinn meta hana eigi síður fyrir það hve hnyttin hún er og bráðskemmtilega skrifuð. Maður getur skellililegið að undanbrögðum og uppátækjum Kela litla, alt frá því að hann lýgur hcilli sögu í kenslukonuna sína, til þess að komast hjá refsingu fyrir það að hann hefir svarað henni útaf. Og svo rekur hver atburðurinn annan, hver öðrum smellnari. Það er t. d. ekki leiðinlegt að lesa um þá Samma og Kela jaegar þeir efna til einskon- ar fjölleikaskemtana, þar sein þeir sýna fjórar mýs, þvottabjörn og tvo negrastráka, — annar þeirra hefir það til síns ágætis að vanta fingur og liinn það að vera svo málhaltur að hann skilst ekki — en báðir það, að faðir þeirra hefir drepið mann með heykvísl. Þegar nýjabrumið er farið af þeirri sýningu bætist þeim nýr liðsmaður, sem mikið þykir til koma vegna þess að móðursystir lians hefir drepið fjóra menn á rottueitri og hefir verið dæmd til hengingar. - Þá er ekki síður skemti- legt að Ivela þegar hann hittir yfir- mann sinn, Gutta, og ætlar að fara að beita kunningjana, sem honum eru máttarminni, sömu brögðum og Gutti hefir beitt hann. Böðvar rithöfundur frá Hnífsdal hefir þýtt söguna og virðist þýðing- in mjög lipur og þægileg aflestrar, en talsvert er þar mikið af prent- villum, sem þó er lisogt að lesa i málið. Bókin er prentuð á góðan pappír, frágangur hinn snyrtileg- asti og bandið íaglegt. Ritstjórinn: — Nú, hvað varð hon- um MacTavisli að fjörtjóni? Blaðamaður: — Einhver hafði sagt honum að hann gæti fengið bux- urnar sínar pressaðar ókeypis með þvi að láta vegvaltarann fara yfir þær. Ritstjjórinn: — Hvernig gat það drepið hann? Blaðamaður: — Þeir gleymdu að færa hann úr buxunum.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.