Fálkinn - 22.10.1943, Síða 3
F Á L K I N N
3
Ágrip af sötju og starfi K. F. D. H.
í Vaínaskógi
Flntt á vioslDliátíð sumarskóla skógarmanna í Lindarrjóðri 1943
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavik. Sirni 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpren/.
Skraddaratiankar.
Sá er fyrsti gallinn á litlu þjóð-
fjelagi, að þar þekkja svo að segja allir
hver annan. Og illmennin nota sjer
það og leyfa lyginni lausan taum-
inn. Ekki þarf að fara mörg ár aft-
ur í tímann til þess að minnast ó-
fagurra viðburða — að svokallaður
þingmaður, svífðist ekki að sletta
þjófsökum á látinn andstæðing, eða
reyna að níða andstæðinga sina
niður með þvi, að afi þeirra hafi
dæmt ranga dónia.
Þessi orð hljóða eins og ljau væru
aftan úr forneskju, enda eiga þau
þar lieima. Það er ekki þessháttar
orðbragð, sem bætir þjóðina eða
eflir, heldur dregur það hana aftur
á bak í sauröld og svartadauða.
Menningu íslands hefir stórlega far-
ið fram síðan Viðeyjarprentsmiðjan
var til. Og þetta vita allir læsir ís-
lendingar. En liinsvegar hefir sið-
gæðinu farið furðu litið fram. Það
vex máske nokkur ár, eins og trjá-
jurt, sem gróðursett hefir verið á
skjólgóðum stað. En sá er munurinn,
að vísirinn í skóginum nýtur þess,
sem hann þarf. En menningarvisir-
inn stendur á bersvæði. Að honum
er ekki aðejns leyft, heldur líka skylt
að ráðast. Máltækið segir eitthvað
um að einu gildi hvaðan gott komi,
— og er þetta þjóðlega hugsað og
talað. En nú eru til á íslandi menn,
sem hugsa sem svo, að einu gildi
hvaðan gott komi, og segja svo: Ef
þetta er ekki frá mínuni flokki þá
skal jeg berjast á móti þvi. En ef
það er maður úr mínum flokki, þá
skal jeg berjast fyrir þvi.
Svo er nú það. Og það er enginn,
sem vill bera skraddaranum á brýn, að
hann ljúgi því, sem hann vildi sagt
hafa. Meðan Alþingi er afdrep
hræsnara, lausagopa og froðusnakka,
þá er „ísafold illa stödd“. En það
er þjóðin sjálf og flokksstjórnirnar,
sem ráða, hvort betur ræðst eða
miður.
Jeg, sem þetta skrifa, get ekki úr
flokki talað. Jeg hefi ekki kosning-
arrjett í mínu eigin móðurlandi.
Þessvegna skora jeg nú á „háttvirta
kjósendur“ að undirbúa sig vel
unair næstu kosningar á íslandi.
Aðeins með þvi, að koma til dyr-
anan eins og maður er klæddur, en
hvorki láta Dani, Breta, Ameríku-
menn eða Þjóðverja hafa þar nokk-
ur áhrif á. Koma aðeins til dyranna,
eins og maður, sem kemur til dyr-
anna. Eins og íslenskur bóndi aust-
ur í öræfum. Það er sjálfstæði.
Það má segja, að „mjór sje mikils
vísir“. — Það þótti tiðindum sæta,
er Hvalfjarðarbáturinn lenti í Saur-
bæ fyrir 20 árum og sjera Friðrik
Friðriksson stje þar á land með dá-
lítinn drengjahóp og hjelt upp í
Vatnaskóg, þar sem liann liafði val-
ið sjer stað í fögru rjóðri, er liann
siðar nefndi Lindarrjóður.
Mátti segja, að þeir væru land-
nemar og frumbyggjar á þessum
slóðum, og ættu því við ýmsa örð-
ugleika að striða í fyrstu, en fyrir
eldmóð og áhuga forgöngumann-
anna sigruðust þeir á öllum örðug-
leikum. Hafði sjera Friðrik sjer við
hönd ágæta samstarfsmenn svo sem
Hróbjart Árnason, Kristján Sighvats-
son, Ingvar Árnason o. fl., en i
Reykjavík liafði liann einnig ágæta
styrktarmenn, svo sem Harald kaup-
mann Árnason og marga fleiri. —
Sjera Friðrik kom þá þegar heim
til mín, því að við vorum skóla-
bræður og góðkunningjar og fjekk
hann aðstoð til þess að koma far-
angrinum á ákvörðunarstað. Mjer
var hin mesta ánægja að komu sjera
Friðriks og nábýli hans, og heim-
sóttuin við hvorn annan, er tæki-
færi bauðst. Var sönn unun að sam-
ræðum hans og glaðlegu viðmóti.
Á sunnudögum kom liann ætíð með
allan drengjahópinn til kirlcju og
messaði oft, eða þá að jeg var fyrir
altari, en hann stje í stólinn. Ferð-
ir voru þá venjulega sjóleiðis og
hafði hann fyrir sið, ef bíða þurfti
að ganga i kirkju og flutti þá fagra
ræðu, mintist hins mikla trúarskálds
Hallgríms Pjeturssonar, sem um
skeið var perstur hjer og allir minn-
ast með lotningu og aðdáun, vegna
hinna dýrlegu og ógleymanlegu
sálma hans. Hann gleymdi ekki að
útlista þelta fagurlega fyrir hinum
ungu lærsveinum sínum, og er jeg
viss um að þeir eiga fagrar endur-
minningar frá þeim guðræknisstund-
um, sem og dvöl sinni í Vatnaskógi.
En livað er að segja um hina
ungu drengi, sem voru í Vatnaskógi
undir handleiðslu sjera Friðriks og
aðstoðarmanna hans. Því er skjót-
svarað, að þeir voru mjög prúðir,
sátu stiltir í kirkjunni, sungu og
hlýddu með athygli á það, sem fram
fór. Einnig veitti jeg hinu sama
athygli, er jeg var gestur í tjöldum
þeirra, og einnig er þeir voru að
leikum. Varð jeg aldrei var við ljótt
orðbragð eða ósátt, eins og stundum
má sjá og heyra á götum og að
leikum barna i Reykjavík.
En livernig var sumarskóli drengj-
anna í Vatnaskógi? Því er best svar-
að með því, að jeg sá sjera Friðrik
eitt sinn faðma lítinn dreng, eins
og væri hann faðir hans. Hann var
öllum drengjunum sem góður faðir,
og drengirnir elskuðu hann og virtu
og lilýddu því fúslega leiðbeining-
um lians og þeim reglum, sem settar
voru. í þessum sumarskóla lærðu
þeir fagra siði og prúðmensku, söng
og leikfimi, bera virðingu fyrir fán-
anum og hlýða á Guðsorð. — Jeg
fann, að sjera Friðrik var okkur
prestunum til fyrirmyndar, hvernig
við ættum að koma fram við spurn-
ingabörn vor, og eins er vjer værum
að liúsvitja á heimilunum, svo að
öll feimni barnanna hyrfi, og þau
yrðu okkur vinveitt, og jafnvel
hlökkuðu til heimsóknar okkar. Já,
hann var hverjum föður til fyrir-
myndar með börn sín.
Jeg hef oft liugsað og sagt, að
Saurbær væri ekki nema hálfsjeður,
fyrr en komið væri í Vatnaskóg. Jeg
söðlaði stundum hest minn og fór
þangað ýmist einn eða með öðrum
á fögrum sumardegi. Mjer fanst að
þá ljetta af mjer öllum áliyggjum
hversdagslífið og jeg vera svo
frjáls og ljettur í lundu í þessari in-
dælu kyrð, og jeg geta hljóður not-
ið þéssarar miklu náttúrufegurðar,
sem Vatnaskógur hefir að bjóða, og
enda mun hefjast á hærra og æðra
svið. Jeg skil því vel, að skáldandi
Hallgríms Pjelurssonar hefir liafist
hátt á slíkum hrifningarstundum,
við þessi skilyrði, og sama máli
gegnir um síra Friðrik Friðriksson.
Síra Friðrilc hefir vígt og helgað
Lindarrjóður. Báðir þessir andans
menn liafa dvalið hjer og helgað
staðinn. Hjer ríkir kyrð og friður,
langt frá skarkala, ys og þys borg-
arlífsins. Hjer er staður til helgra
og háleitra. hugsana og tilbeiðslu.
Hjer andar guðs blær og hjer fær
andinn hafist hátt í bljúgri bæn og
ákalli. Hjer er lieilagur staður og
vjer tökum undir með skáldinu:
Hjer andar guðs blær og hjer verð
jeg svo frjáls,
í liæðir jeg berst lil Ijóssins strauma,
æ lengra, æ lengra að lindum
1 himinsbáls,
uns leiðist jeg í sólu fegri drauma.
Frh. á bls. U.
Einar Erlendsson, húsasmíöameist-
ari, varð 60 ára 15. þ. m.
Frú Þóra Jóhannsdóttir, Þingholts-
strœti 15, varð 65 ára 19. þ. m.
Egill Denediktsson, framkvæmdastj.,
Tjarnarcafé, varð 50 ára 18. þ. m.
Kristján Eriendsson, trjesmíðameist-
ari og kaupmaður i Eikarbúðinni,
verður 40 ára 23. þ. m.