Fálkinn - 22.10.1943, Qupperneq 14
14
FALKINN
SÆNSK KVIKMYND
Nýjar stórmyndir, sem væntan-
lega munu verða sýndar hjer
bráðlega eru þegar fullgerðar.
SÍÐAN stríðið skall á hafa sænsk-
ir kvikmyndaframleiðendur eigi
setið auðum höndum, en látið frá
sjer fara ýmsar eftirtektarverðar
kvikmyndir. Þær hafa eigi að-
eins verið eftirtektarverðar sakir
hins háa listræna mælikvarða, sem
lagður liefir verið til grundvallar
þar, heldur eigi að síður vegna hins,
að þær hafa dirfst að segja mein-
ingu sína um málefni, sem ef til vill
mundu verða þyrnir í auga sumra
erlendra þjóða, er þær fjalla um
norræn efni og baráttu norrænna
þjóða gegn erlendum kúgururri hæði
fyr og síðar. Fyrir nálægt ári liðnu
lcom myndin „Far þú í nótt“ fram
á sjónarsviðið, en sú kvikmynd end-
urspeglaði hina dramatisku sögu
baráttu, er sænskir bændur háðu til
þess að verða frjálsir á 17. öld, er
frelsi þeirra var í voða vegna á-
gengni útlendra fógeta. Þessi mynd
er ennþá sýnd á sænskum kvik-
myndahúsum. í iok ágústmánaðar
í ár kom önnur kvikmynd fram á
hvíta tjaldinu í kvikmyndaleilchús-
um Svíþjóðar, og efni hennar er
frásögn af hreystilegri og harðri
baráttu bræðraþjóðar einnar, sem
Svíþjóð á, og sem hefir verið her-
numin af einu af stórveldunum, er
nú eigast við í stríði. Myndin heit-
. ir „Þar brennur eldur“ og hefir orð-
ið stórkostlega eftirtektarverð.
Hún byrjar á því að sýnt er dag-
legt lif leikara við þjóðleikhúsið í
þessu norræna landi, sem við er átt.
Hermálafulltrúi erlends rikis er ást-
fanginn af ungri og geðslegri leik-
konu, sem er fremst í flokki stall-
systra sinna við þetta leikhús. En
um þessar mundir er hún að leika
Rosaiind í hlutverki í leikriti Shake-
speares: „Skógarlíf“. Viðtal þeirra,
úr gamla leiknum, varpar nýrri,
töfrandi birtu yfir efnið — og sam-
band þess við núverandi ástand í
heiminurn. Hermálafulltrúinn segir
við leikendurna, að honum sjeu þeir
kærir, og bvður þeim heim til sín
eftir frumsýninguna. En rjett í því
að veisla hans á að hefjast, fær hann
tilkynningu frá sendilierra sinum
um það, að landið eigi að takast
hernámi í fyrramálið, og að það
muni koma sjer vel, að gestir hans
verði kyrrir hjá honum, til þess að
draga athygli allra frá því, að nokk-
ur hætta sje á ferðum. Hann býður
við þesari ráðagerð um, að hann
eigi að gerast einskonar Júdas i
þessu lilutverki sinu, en verður að
hlýða gefnum fyrirskipunum. Sam-
kvæminu er tæplega lokið, þegar
árásin er gerð á hið varnarlausa
landi. Hinn göfugi vinur gerist alt
í einu bitur fjandmaður. Innrásar-
herinn óskar að fá starfslið Þjóð-
ieikhússins til afnota, þegar í stað,
til þess að hann megi yfir því ráða,
en þeiri beiðni er svarað með blá-
köldu nei-i. Af því leiðir, að leikhús-
stjórinn er fangelsaður þegar í stað,
en lítilsvirður dóni er settur i hans
stað. — En þrátt fyrir þetta hefir
hatrið og fyrirlitningin blossað upp
víðsvegar um landið; frelsisást þjóð-
arinnar verður ekki bæld niður. —
„Aldrei skulu þeir merja okkur“
verður orðtak þjóðarinnar. Hin unga
primadonna verður ein af fyrstu
fórnarlömbum árásarrikisins. Hún
er skotin banasári í sama augnabliki
og hún er að lesa upp i leynisendi
útvarpsins, „Frelsis-sendistöðin“,
fallegt kvæði, þar sem þjóðin er
hvött til þess að gefast aldrei upp
gagnvart andliti myrkra'veldanna —-
aldrei láta eldinn hætta að loga.
Þetta gerist á sama stað sem elsk-
hugi hennar var til þess kvaddur að
láta skríða til skarar.
Aldrei er í myndinni, sjerstak-
lega á það minst, livaða land hafi
átt kvæðið, sem hún las upp, en
enginn er þó í vafa um hvaðan það
sje.. í lokaþættinum sjest fjöldi af
ungu fólki, sem hefir flúið yfir
landamærin til nágrannaþjóðarinn-
ar, sem enn nýtur þess að hún á
frelsi og stendur og bíður, þráandi
þess að þjóðin bak við snævi þakin
fjöll —- hinumegin — fái að njóta
þess lika. — — —
Gustav Molander hefir haft á
hendi leikstjórnina að þessari mynd.
Hann hefir unnið það starf með al-
gjörri kunnáttu og listfengi, og i
hlutverkin hefir hann fengið ýmsa
ágætustu leikendur Svíþjóðar. Sá
sem leikur leikhússtjórann, er frum-
höfundur kvikmyndanna sænsku,
Victor Sjöström, sem byrjaði tilveru
sína með því, að leika og stjórna
„Terje Viken“ — kvæði Ibsens, Þor-
geiri í Vík. Leikur hann þjóðleik-
hússtjórann með afbrigðum vel. —
Lars Hanson, sem — eins og Sjö-
ström — hefir dvalið árum saman
i Hollywood, leikur hernaðarmála-
fulltrúann, og nær þar hámarki þess
fruntaskapar, sem þjóð hans getur
sýnt, með innblæstri leikgáfu sinn-
ar. Aðal kvenhlutverkið leikur Inga
Tidblad (besta leikkona Dramatiska
Teatern á undanförnum áratug). Og
má nærri geta, að hlutverkinu er
óhætt í hennar liöndum. Augu henn-
ar geisla stundum af ánægju þeirri,
sem elska og ástúð ein getur fram-
kallað, en þau brenna líka af heift
og ógn og ofsa. Og þau lokast, eins
og andi heilags elds sje að slokna.
Karl Ragnar Gierow hefir samið
leikinn, eftir hugmynd Gösta Stev-
ens. Gierow hefir verið maður á
liraðri framfarabraut. En hann hefir
gert handritið að ýmsum bestu
sænsku myndunum, sem fram hafa
komið á síðustu árum.
Iðnsýningí Stockholm
Steinsteypa, sem hægt er að saga
eins og timbur, en er þó ljettara
en vatn, var meðal þess, sem
mesta athygli vakti á iðnaðar-
málasýningu í Stockholm í
sumar.
Fyrir stríðið voru haldnar í Stock-
holm og Göteborg stórar iðnaðar-
sýningar á ári hverju. Þetta hefir
verið dregið saman, en í sumar
sem leið var þó haldin iðnsýning í
Stockholm, sem var á stærri mæli-
kvarða væri en áður. Hún var köll-
uð „St. Eiriks-sýningin“, en eins og
kunugt mun vera öllum, sem Stock-
liolm þekkja, er St. Eirikur vernd-
ardýrlingur borgarinnar, frá fornu
fari. Einkunnaorð sýningarinnar
voru þessi: „Gegnum krepputíma
— til friðarins“. En tilgangur sýn-
ingarinnar var sá, að gefa almenn-
ingi yfirlit um hversu sænslcum iðn-
málum hefði orðið ágengt í þvi að
komast yfir örðugleikana, en um
leið að sýna hvað gera skal til þess
að undirbúa þjóðina undir friðar-
tímana, sem koma skulu.
Nálægt 225 fyrirtæki sýndu fram-
leiðslu sína þarna, en þriðjungur
þeirra var frá vjelfræðitækninni.
Meðal gerfiefna á sýningunni má
Gerist
áskrifendur
Fálkans
nefna nýtt efni, líkt gúmmí og heit-
ir „Modotex“, sem ætlað er til þess
að geta komið í stað leðurs i skósóla
og þvi um likt. Meðal annara hluta
á sýningunni voru ýms efni til bygg-
inga og svo einangrunarefni t. d.
steyptar liellur, nefndar „Siplorex“,
sem eru svo mjúkar, að hægt er að
saga þær með venjulegri timbursög,
en þó ljettari en vatn. Þarna var
lika sýndur ryðhreinsari, sem etur
á burt alt ryð, og. hefir reynst að
vera örugt hreinsunarlyf á járn,
áður en það er málað eða málmhúð-
að.
K. F. U. M.
Frh. af bls. 3.
Það má öllum vera gleðiefni, að
þótt síra Friðriks hafi ekki notið
við um skeið, er starfi hans lialdið
áfram af ágætum mönnum, og fje-
lagið hefir með hverju ári eflst og
dafnað, svo sem raun ber vitni.
Hjer er kominn veglegur sumarskáli,
sem getur rúmað fjölda manna og
veitt skógarmönnum ágætt húsaskjól
og allan aðbúnað, þótt úti geysi regn
og stormur, ólíkt því, sem var í
fyrstu. Það hefir þvi sannast hjer,
að „mjór er mikils vísir“. Núver-
andi forstöðumenn K. F. U. M. þeir
Magnús Runólfsson og Ástráður Sig-
ursteindórsson, guðfræðingar, auk
margra annara góðra styrktarmanna
liafa lijer lialdið uppi merki fyrir-
rennara þeirra, síra Friðriks, og
hans góða og heillarika starfi í þágu
æskulýðsins. Þess er enn mikil þörf,
að beina ungum drengjum inn á
kristilega og trúarlega braut á þess-
um byltinga og umbrota-tímum. Jeg
veit um unga drengi, sem þrá að fá
að dvelja hjer um tíma, og jeg veit,
að þeir geta haft milcið gagn af
dvöl sinni hjer, og þau hollu og
kristilegu áhrif, sem þeir verða hjer
fyrir, geta liaft ómetanleg áhrif á
liinar ungu sálir þeirra, og mótað
lifstefnu þeirra.
Er það huglieil ósk mín og hinna
fjölmörgu unnenda K. F. U. M„ að
fjelag þeirra megi blessast og blómg-
ast í framtíðinni, og að því megi
auðnast að leiða hina ungu æsku á
rjetta leið, vekja sanna kristlega trú
í hjörtum þeirra. Það varðar svo
miklu, að „undirstaðan rjett sje
fundin“ og hinum ungu sje beint á
rjettar brautir þegar i æsku, og er
þeir eldast munu þeir ekki víkja
af hinum rjetta vegi.
Drottinn hefir blessað hið kær-
leiksríka starf, sem hjer hefir verið
unnið á liðnum árum, verkin sýna
merkin, og vjer viljum biðja þess,
að hann megi vera hjer enn með i
verki á komandi árum, og starf
K. F. U. M. bæði hjer i Lindarrjóðri
sem og annarsstaðar, megi bera
blessunarríka ávexti og árangur í
framtíðinni, til sannra heilla fyrir
æskulýð landsins.
Einar Thorlacius.
Yélaverkstæði
Signrðar Sveinbjörassoiiai*
Sími 5753 — Skúlatún 6 — Reykjavík
Tekur að sjer viðgerðir á bátamótorum,
alt að 25 hestafla.
Prufukeyrum og innstillum vjelarnar að
við gerð lokinni.
Með þessu er hægt að gera gamla vjel
sem nýja.
Sendið mótorana í heilu lagi, til þess að
hægt sje að gera þá í stand fullkomlega.
Kanpi einnigr notaða mötora.