Fálkinn - 12.05.1944, Qupperneq 2
2
FÁLKÍNN
Biskupinn kominn heim frá Ameríku.
Á sunnudaginn var kom lierra
biskupinn Sigurgeir SigurSsson heim
úr för sinni til Canada og Bandaríkj-
anna, en þangað fár liann sem opin-
ber fulltrúi rikisstjórnarinnar, m. a.
til þess að sitja 25 ára afmæli Þjóð-
ræknisfjelagsins. Hefir hann verið á
þriðja mánuð í ferðinni og mundi
það etnhverntíma þótt skammur
tími, meðan samgöngutæki voru
seinfærari en nú er — þegar á það
er litið live víða hann fór um. En
það munar undireins miklu á Amer-
ikuför þegar flogið er beint milli
íslands og Ameríku, í stað þess að
í gamla daga varð fyrst að fara
sjóleiðis til Bretlandseyja og sigla
þaðan vestur.
Biskupinn kann frá mörgu að segja
úr þessu mikla ferðalagi og fengu
blaðamenn ofurlitið að lieyra úr
ferðasögunni á mánudaginn var.
Hjer yrði of langt að fara að birla
nokkra ferðasögu, enda hafa dagbiöð-
in birt jafnóðum frásagnir af komu
hans til ýmsra borga og íslendinga-
byggða og af viðtökum þeim sem
hann fjekk, bæði af hálfu fslend-
inga og annara aðila.
Rjett eftir að biskupinn kom
vestur sat hann þing Þjóðræknis-
fjelagsins í Winnipeg, dagana 21.-
23. febrúar, en það mun vera fjöl-
mennasta Þjóðræknisjjing sem haldið
hefir verið af íslendingum vestra.
Að því loknu heimsótti hann flestar
/slendingabyggðir í Canada og víða
í Bandaríkjunum og var hvarvetna
vel fagnað. f Bandaríkjunum heim-
sótti liann flestar stórborgir og víða
voru þar íslendingar, sem fögnuðu
honum, auk annara. Alls kom hann
í 12 stórborgir og í ferðinni flutti
liann um 50 erindi og ræður og hafði
viðtöl við blaðamenn svo liundruð-
uin skifti. Það ræður því að líkum
að ferðalagið hefir verið erfitt —
sífeld langferðalög og þess á milli
fundir og önnur samkvæmi. Alls
mun láta nærrl að biskupinn liafi
ferðast um 24.000 km. í þessari för
sinni.
Viðtökurnar voru hvarvetna hin-
ar innilegustu. Allir kepptust um að
sýna lierra Sigurgeir hverskonar
sóma, og m. a. má geta þess, að
tveir háskólar kjöru liann lieiðurs-
doktor. Heimsóknir á ýmsuin stofn-
unum tóku sinn tíma, og m. a.
kynntist biskupinn kvikmyndaborg-
inni Hollywood, meðan hann dvaldi
í California.
Ilann heimsótti einnig fjöldá ís-
lenskra heimila og liafði tal af ís-
lenskum námsmönnum við ýmsa
háskóía Bandaríkjanna. Og þess má
geta að víða skírði liann börn ís-
lendinga vestra og í New York
'fermdi liann einnig börn. Sömu-
leiðis gaf hann hjón * saman. —
Það ræður því að líkum, að biskup-
inn hefir eigi setið auðum höndum
í ferðinni, þegar hugleitt er það sem
áður getur, að hann talaði um 50
sinnum í kirkjum og á mannfund-
um.
— Biskupinn lætur mjög vel af
ferðinni og gleðst yfir því að hafa
kynnst Vesturheimi yfirleitt og sjer-
staklega Vestur-íslendingum. Þjóð-
ernisvitund lieirra og ást til Islands
er vel vakandi, jafnvel hjá yngstu
kynslóðinni — börnum íslendinga,
sem fæddir eru vestanhafs. í>eim
fækkar nú óðum meðal íslendinga,
sem fæddir eru lijer á landi. en þó
má víða liitta þá enn. En allir, bæði
ungir og gamlir þurfa margs að
spyrja að heiman.
Hinar miklu samgöngur og hin
nánu kynni, sem hafa orðið yfir
hafið síðustu árin hafa stórum aukið
áhuga Ameríkumanna yfirleitt fyrir
íslandi, og jafnframt orðið (il liess
að brúa það djúp, sem oft virtist vera
milli Jslendinga austan liafs og vestan.
Fjarlægðin hefir rhinkað. Og ef-
laust liefir það haft mikil áhrif til
aukinnar kynningar er beint stjórn-
málasamband var tekið upp og ís-
land eignaðist sendiherra í Was-
hington og ræðismenn í ýmsum borg-
um Bandaríkjanna og Canada.
Meðal þeirra Vestur-íslendinga, er
biskupinn hitti í förinni, var Arin-
hjörn Bardal, fornvinúr Sigurðar
heitins Eiríkssonar, föður biskups.
Á myndinni sjesf' Bardal vera að
afhenta biskupi að gjöf áletraða
borðklukku til minningar um Sigurð
föður hans.
Mcðal þeirra manna, sem einkum
greiddu för biskups vestra, var
Richard Beck prófessor, forseti
Þjóðræknisfjelagsins og einn helsti
forvígismaður íslensks þjóðernis í
Vesturheimi. Hann er nú væntan-
legur hingað heim innan skamms,
sem gestur íslands á lýðvcldishátíð-
ina 1. júni næstkomandi.
Púll Slefúnsson slórkaupmaður fvú Asj/eir Ásgeirsson, bankastjári verð-
Pverú, verður 75 úra 18. maí. ur 50 úru 13. maí.
Ráðningarskrifstofa
landbúnaðarins
er tekin til starfa í Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu
8—10, í sambandi við Vinnumiðlunarskrif-
stofuna og undir forstöðu Metúsalems Stefáns-
sonar.
Skrifstofutími verður fyrst um sinn ki. 9—12
og 1—5. Sími 1327. Pósthólf 45.
Vinnukaupendur og vinnuseljendur, er óska
aðstoðar skrifstofunnar um ráðningar og snúa
sjer til hennar í því skyni skriflega, gefi sem
greinilegastar upplýsingar um allt, er máli
skiptir í sambandi við væntanlega ráðningu.
Þeir sem ekki geta sjálfir gengið frá ráðningar
samningi, verða að fela einhverjum öðrum
umboð til þ.ess.
Búnaðarfélag Islands
TEIKNIPAPPIR
í örkum 56x76 cm.
UMBÚÐAPAPPIR
í rúllum 40 cm.
Heildverslun Garðars Gíslasonar
Simi 1500