Fálkinn - 12.05.1944, Page 4
4
F Á L K I N N
Einar Jónsson sjötugur
Víðfrægasti og vinsælasti lipta
maður Islands, Einar Jónsson
frá Galtafelli, fyllti sjöunda tug
æfi sinnar í gær. Því að „Þjóð-
hátiðarárið“ og á lokadaginn er
hann fæddur og nær æfi Iians
yfir merkilegt skeið í sögu
landsins, og má það teljast ein-
kennileg tilviljun, að ísland
skyldi eignast þennan mæta son
einmitt árið 1874, þegar veru-
lega fór að rofa til eftir margra
alda myrkur.
Það hefði verið skemtilegt,
að ástæðurnar hefðu verið dá-
lítið öðruvísi í Hnitbjörgum í
gær, en raun ber vitni. Safn
Einars hefir verið lokað al-
menningi síðan skömmu eftir
hernámið 1940 og er það enn.
Og nú loks Iiefir verið ráðist í
að framkvæma aðgerðir á hús-
inu, sem nauðsynlegar voru
orðnar fyrir mörgum árum.
Starfa margir menn að því að
múrhúða húsið og ef allt geng-
ur tafalítið má gera ráð fyrir
að. viðgerðinni verði lokið á
miðju sumri. Og þá er þess að
vænta, að safnið verði opnað
almenningi á ný.
En þó að safnið hafi verið
lokað almenningi um skeið og
hljótt um það, hefir listamað-
urinn í Hnitbjörgum ekki ver-
ið óstarfandi. Sí og æ starfar
hann að nýjum verkefmim og
sífelt fjölgar listaverkum hans.
Fyrir nokkru var svo þröngt
orðið í Listasafninu, að byggja
varð viðbótarbyggingu austan
við safnið, en nú er hún orðin
full líka. Er áformað að byggja
aðra tilsvarandi byggingu við
suðvesturhornið.
„Skáldið í Hnitbjörgum“ hef-
ir Einar Jónsson oft verið
nefndur og er það síst rang-
nefni. Það mun hafa verið
Bjarni heitinn frá Vogi, sem
nefndi hann „leirskáld“ og
sneri þannig við merkingu orðs-
ins. Einar Jónsson er djúpvitur
maður, sem hvorki er háður
stefnum eða „ismum“. Hann
hefir frá öndverðu farið sinu
fram, hvað sem hver sagði, og
oft orðið að þola andblá’stur
fyrir. En hann hefir sigrað.
Hann hefir verið hugsjónum
sinum trúr og þessvegna er
hann nú virtur og elskaður
meira en nokkur annar lista-
maður íslenskur.
Úr safni Einars Jónssonar. „Lampinn“ blasir við á myndinní.
Og vissulega á liann eftir að
hafa áhrif á alla þá, sem fegurð
unna, um margar ókomnar ald-
ir. Þess bæri að óska, að land-
ið og þá sjerstaklega liöfuðstað-
urinn eignaðist fleiri af mynd-
um hans í bronse, svo að þær
gæti blasað við sem víðast, und-
ir berum himni, almenningi til
íhugunar og unaðar. En fyrst
og fremst ber að óska þess, að
safnið i Hnitbjörgum verði
opnað á ný sem allra fyrst.
íslendingar hafa eigi kunnað
að meta Einar Jónsson sem
skyldi. Hinsvegar hafa útlend-
ingar kunnað það. Þeir eru
orðnir • margir útlendu ferða-
mennirnir, sem liafa látið svo
ummælt, að þó að náttúra Is-
lands sje fögur og sjerkennileg
þá hafi þeir orðið enn hrifnari
Úr álögum. Myndin er gerð á áninum 1916—27.