Fálkinn - 12.05.1944, Side 5
í
FÁLKINN
J. i J " -
Heimþrú.
af listaverkum Einars Jónsson-
ar en henni.
En þetta er hvort i ætt við
annað. Náttúra íslands hefir
mótað list Einars Jónssonar frá
öndverðu. Stuðlahergið kemur
fram í verkum hans, línur og
form íslenskra fjalla endur-
speglast hjá honum. Við höfum
eigi síst á stæðu til að unna
Einari Jónssyni fyrir það hve
ram-íslenskur ifann er i lisl
sinni. Og hann er eigi aðeins í
samræmi við íslenska náttúru.
Dr. Guðmundur Finnbogason
hefir hent á, hve mjög hann er
skyldur hinum forna kveðskap,
sem frá öndverðu hefir verið
stolt og heiður þjóðarinnar.
Hjer skal eigi farið út í að
lýsa verkum listamannsins i
Hnitbjörgum. En myndirnar
sem hjer fylgja tala sínu máli
betur en nokkrar lýsingar.
Einar Jónsson er enn i fullu
fjöri. Og á þessum tímamótum
í æfi hans munu allir íslend-
ingar óska þess að hans megi
njóta sem lengst við og að hann
eigi enn eftir að auðga ættjörð
sína með nýjum og fögrum
verkum.
Kunnir
kuikmyndaleikarar
7. CHARLES BOYER.
Þessi frægi franski leikari, sem
nú virðist vera alfluttur til Ameríku,
cr fæddur í Figeac í Frakklandi 28.
ágúst 1899, en þar var faðir lians
kaupsýslumaður. Að loknu mennta-
skólanámi i Figeac fór Boyer til
París og stundaði nám við Sorbonne
háskólann. Gengdi síðan herþjón-
ustu og lagði stund á liljómlist, en
kom fram á leiksviði 21 árs og vakti
óskifta athygli. Þess er gelið að hann
hafi stjórnað leik með jafnöldrum
sinum þegar liann var 7 ára gamall.
Og í heimsstyrjöldinni síðustu tók
hann að sjer að lcenna serbneskum
flóttamönnum frönsku og gekk það
svo vel að liann lærði sjálfur serb-
neskm-En 1G ára var hann þegar
hann kom til Parísar í fyrsta skifti
og sá vana leikendur á sviði.
Eflir fyrsla leik sinn i París
fjekk hann hvert hlutverkið af öðru,
ljek kíðan í tveimur þöglum mynd-
um, en þá tóku talmyndirnar við.
Það var árið 1930 sem hann Ijek í
fyrstu lalmynd sinni, ,,Barcarole“,
sem leikin var hjá UFA í Berlín.
Ljek hann síðan í fjölda talmynda,
bæði í Frakklandi og Þýskalandi,
meðal annars á móti rússnesku
léikkonunni Önnu Sten. En fyrsta
myndin sem hann ljek i vestan hafs
hjet „Big House“ og önnur „The
Trial of Mary Dugan“. Þá hvarf
hann aftur til Frakklands og Ijek
m. a. í „Liliom“, en þar þykir hon-
um hafa tekist einna best upp. Af
öðrum myndum sem hann hefir
hlotið frægð fyrir má nefna „Love-
Affair“ og „Garden of Allah“ og
„Algiers“. Hefir hann síðustu tvö
árin leikið i ýmsum dýrustu mynd-
um, sem teknar hafa verið vestan
hafs, og þykir einn snjallasti ástar-
leikari, sem til er.
Þó að Boyer hafi dvalið alllengi
í Ameríku heyrist það á mæli lians
að liann er Frakki, en franski fram-
burðurinn hefir síst orðið til þess
að spilla vinsældum hans. Þó að
hann sje mikið kvennagull er hann
frcmur lítill vexti (5 fet og 9 þuml.),
en virðist að vlsu hærri en liann er.
í gamla daga þekkti jeg mr.
Smithers, sem vann hjerna hjá ykk-
ur. Jeg geri ráð fyrir að hann hafi
verið reyndur maður, og að hann
hafi liaft traust ykkar?
Bankastjórinn liorfði rannsóknar-
augum á gestinn og mælti lágt:
— Já, — honum var treyst, en
uú vona jeg að dómstólarnir prófi
reyndina í honum.
— Gætir þú lærl að elska mig?
spurði ungi maðurinn.
— Við skulum athuga það, svar-
aði stúlkan og varp öndinni. —
Jeg var ekki nema þrjár vikur að
læra liraðritun.