Fálkinn - 12.05.1944, Side 7
F Á L K I N N
7
Ein af dstæðunum fyrir þvi. lwe vel spréngjiiflugvjelum
bandamanna leksl að hitta markið i árásarferðum og teksl
vel að finna staðina, sem varpa skal sprengjum á, er sú,
að á u.ndan þeim eru sendar Ijettari vjelar, sem imrpa
niður mislitum eldsprengjum, sem lýsa npp staðinn. Hjer
er mynd af þessum auðkennum Ijettu vjelanna.
í fyrsta skifti í sögunni hafa innfæddir hermenn frá ný-
lendum i Vestur-Afríku verið fluttir til fjarlægra vígstöðva
til þess að gegna þar herþjónustu. Þeir tcafa barist í Abiss-
iníu og síðan í Libýu, en nú hafa þeir verið sendir alla
leið til Austur-Indlands. Hjer er liðþjálfi einn frá Sierra
Leone, Peter Levy að nafni, við vjelbyssuna sína ein-
lwersstaðar i Indlandi.
TIL HÆGIiI:
Efst: Hjer er verið að leggja slðuslu hönd á smíði
Mosquitóflugvjelar. Þessar flugvjelar eru mestpart úr
trje og mjög tjettar en hafa eigi að síður dugað mjög
vel til sprengjuárása á ÞýskaTand.
Næstefst: — Síðan bandamenn fengu leyfi Portugals-
stjórnar til þess að hafa flugstöð á Azoreyjum hefir flug-
sókninni gegn kafbátum Þjóðverja miðað stórum áfram.
Hjer sjesl ein af varðflugvjelum bandamanna þar á eynni.
Næslneðst: — Þetta er önniir tegund af flugvélum banda-
nvanna á Azoreyjum að taka sig til flugs. Það er meðfrtím
þessum vélum að þakka, að Þjóðverjar missa nú fleiri kaf-
báta en þeir sökkva skipum.
Neðst: — Myndin er tekin meðan á þýskri loftárás stend-
ur á London. Loftvarnastöð lýsir upp loftið, svo að byss-
urnar geti hitt flugvjelarnar.