Fálkinn - 12.05.1944, Síða 14
14
F Á L K I N N.
Rúnki rommbúðingur og fíör júnior (Arsæll Pálsson og W. NorðfjörðJ.
ALT í LAGI, LAGSI.
Frh. af bls. S.
Mammoni sínum, að liami gleymir
alltaf að hann sje harðtrúlofaður
nema unnusta hans, Svana (Inga
Þórðardóttir minni hann á það.
En foreldrar hennar eru Hálfdán
Theódórs miðstöðvarkyndari (Har.
Á. Sigurðsson) og Kálína kona hans
(Emilía Jónasdóttir). Loks her að
geta þeirra sem koma við sögu í
fyrsta þætti. Esekiels Kvist, sem er
skrifstofustjóri hjá Jóni Span, i bóm-
olíuhlutafjelaginu Híbó (Jón Aðils).
Þetta fólk er hinn eiginlegi „grund-
völlur“ í leiknum, en þar með er
eigi allt upptalið. Lárus Ingólfsson
bregður sjer í mörg gerfi að vanda,
syngur margar vísur, þar á meðal
fyrirtaks vísu um hann Jón bróður
sinn, sem lánið ljek alltaf við, og
svo syrpu laga, einskonar „sam-
fellda dagskrá". Og þá ber eigi að
gleyma ísak Hólmfast lireppstjóra
og mjólkurnefndarformanni (Gunn-
ari Bjarnason), sem sendur er norð-
Gunnar fíjarnas. sem Isak Hólmfast.
an úr landi tii þess að athuga svind-
ilbraskið hjá Jóni Span. Sú athugun
verður til jDess að rjettara þykir að
láta Esekiel skrifstofustjóra hverfa
ofan í kjallara um sinn og gerast
miðstöðvarkyndari, en Hálfdán gamli
kyndari er dubbaður upp í skrifstofu
stjóra. En dóttir áðurnefnds hrepp-
stjóra, úngfrú Ýsa ísax (Aurora Hall-
dórsdóttir) er kvennasíðuritstjóri í
Reykjavík og kemur þarna mikið
við sögu. Það fellur vel á með þeim
henni og Esekíel skrifstofustjóra og
þau syngja og dansa saman eina
skemtilegustu vísuna i allri revyunni
og fara í „mömmuleik“.
Fjöldi annara leikara kemur þarna
frain. Hermann Guðmundsson söngv-
ari leikur þarna sendisveitarritara,
sem er nokkurskonar aukakærasti
Svönu litlu Hálfdánardóttur, Wil-
helm Norðfjörð kemur fram sem
hinn alkunni Bör Börsson og svo
sem Eyvindur, á móti Ingu Þórðar-
dóttur sem Höllu, í herinileik að
síðasta þætti Fjalla-Eyvindar, sem
vakti óskiftan hlátur.
En jiað sem mestu skiftir er, að
tilsvörin eru meinfyndin, þó að oft
hafi „meira eitri verið spúð“ á
náungann en í þetta sinn. Þessi
revya er í rauninni græskulausari
en ol't áður, en hún er eigi að síður
engu ófyndnari.
Og hún er alveg prýðilega leikin
og vel sett á svið, svo að enginn
vafi er á að hún á langa lífdaga
fyrir höndum. Höfundarnir, sem
hal'a tekið sjer samheitið „Fjalar-
kötturinn“ eru þeir Emil Thorodd-
sen, Indriði Waage og Ilaraldur A.
Sigurðsson — fyndnir menn, glögg-
ir á liað sem vel fer á sviði, og
samhentir í verkum sínum. Hljóm-
sveit undir stjórn Tage Möller ann-
ast hljóðfæraleikinn og tekst það vel.
Leiktjöld og búningar er prýði-
legt, ekki síst í síðasta þætti. Hefur
Lárus Ingólfsson málað tjöldin, en
Indriði Waage á hugmyndina að
búningunum. Ásta Norðmann hefir
samið og æft dansana.
íþróttanefnd Hafnarfjaróar.
Blaðið hefir verið beðið að birta
eftirfarandi:
— Síðastliðið haust kaus bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar og iþróttafjelög
bæjarins, íþróttanefnd, til þess að
vinna að bættum skilyrðum til úti-
íþróttaiðkana í bænum, en öll skil-
yrði til slíkrar starfsemi hafa verið
mjög slæm undaiifarið.
Hefir nefndin nú ákveðið að festa
kaup á landi í bænum eða í nágrenni
hans, en til slíkra framkvæmda
þarf mikið fje.
Hefir ijiróttanefndin ákveðið að
stofna til happdrættis og munu i-
þróttafjelög bæjarins sjá um sölu
miðanna, sem munu verða boðnir
nú næstu daga Hafnfirðingum og
öðrum þeim, sem áhuga hafa á í-
þróttamálum.
Ákveðið er að dráttur i happdrætti
þessu fari fram 1. júní næstkomandi
Hallaór Jónsson, bóndi að Litlabæ ú
Grimstaðal:., verður 85 ára 14 maí.
Sigurhans fí. Vignir, Ijósmyndari,
verðnr 50 ára i dag (12. maí)
Jóhc.nn fí. fíuðnason, bygyingur-
fulitrúi, Suðurgötu 100, Akranesi,
verður fimtugur 12 mat.
< ( Skipsfílt.
!! Carbolin,
Cuprinol,
,, Blakkfernis,
< > Koltjara,
«> Hrátjara,
;; Bik,
3; Verk,
j; Plötublý,
< i *
:: Verslnn
0. Ellingsen h.f.
(Framkv.stj.: Jón Sveinbjörnsson)
Laugavegi 159
framkvæmir allskonar:
vjelaviðgerðir
rafmagnssuðu og
rennismíði.
Einnig máimsteypu.
Áhersla lögð á vandaða vinnu.
Drekkið Egils ávaxtadrykki
og verður undir engum kringumstæð-
um frestað.
Skorað er á alla Hafnfirðinga og
aðra þá, er íþróttum unna, að styrkja
þetta nauðsynlega málefni með liví
að kaupa miða i nefndu happdrætti.
Hafnarfirði 5. maí 19kk.
íþróttanefnd Hafnarfjarðar.