Fálkinn - 22.09.1944, Blaðsíða 1
38.
XVII
Reykjavík, föstudaginn 22. sepí. 1944.
Marlene Dletrich I Reykjavík
Síðan stríðið hófsl hafa ýmsir inerkir
gestir komið hingað til íslands, en fæstii
hafa. haft langa viðstöðn. Og um komn
jfœstra þeirra var vitað fyrr en þeir voru
farnir aftur. Þannig gerði Hollandsdrotting
ekki vart vrð sig þegar Inin var hjer á ferð-
inn. Hinsvegar hafa þau Clmrchill gamli
og Marlene Dietrich hæði verið svo náðng
að sýna sig hann á svölinn Alþingisháss-
ins, en hún í sainkomuhúsum hersins, Tri-
poli og inni á Hálogalandi. Þar hafa nokkr-
ir útvaldir, og nokkrir, sem hafa hermanna-
kynni, fengið að sjá þessa dis úr riki.kvik-
myndanna
Því að Marlene Dietrich er ekki komin
hjer til að sýna sig íslendingum, heldur
til að skemta hermönnum frá Bandaríkj-
linum. Hún er ein þeirra mörgu, sem ferð-
ast laiul úr landi milli bækistöðva amerík-
anska hersins og syngur og leikur fyrir
hermennina. Fjöldi leikara í Bandaríkjun-
um vinnur þetta sama verlc hið fræga
(ólk, sem áður hafði laun á borð við kon-
unga, vinnur nú þegnskylduvinnu, allt til
þess að vinna striðið. Því að einn þátturinn
í hernaðinum er sá, að sjá um að hermönn-
unum leiðist ekki.
Marlene Dietrich hefir verið á ferðah.gi
mestan hluta þessa árs. í janúar fór hún í
sex mánaða ferð til herstöðvanna í Afríku
og Asíu. Eftir stutta viðdvöl heima lagði
hún upp í ferð þái, sem hún er nú í, og fór
þá fyrst til Labrador og Grænlands, og
þaðan hingað. Með henni eru í ferðinni
söngvarinn Craig Mathues, sem er fararstj.,
Lin Mayberry, svipbrigðaleikkona af Ijett-
ara taginu, pianistinn Jerry Cummings og
gamanleikararnir Mandy Kaye og Joey Faye.
Hópurinn er í þann veginn að leggja upp
til Englands og síðan eitthvað lengra. Hver
veit nema hann e.ndi þessa leið í Berlín! —
A öðrum stað í blciðinu segir ýmislegt frá
Marlene Dietrich, sem áður hefir ekki verið
sagt frá í blöðunum hjer.